Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 26

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 26
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR * VLDL = very low density lipoprotein til aukinnar virkni lípóprótein lípasa sem stuðlar að auknu niðurbroti þríglýseríða en einnig hefur verið sýnt fram á minnkaða framleiðslu og losun þríglýser- íða og *VLDL í lifur (32-34). Þó einsýnt sé að ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur lækka þéttni þríglýseríða í blóði hafa enn ekki komið fram langtímarannsóknir sem sýna fram á minnkaða hættu á hjarta- og æðasjúkdómum samfara þessari breytingu á blóðfitu en líklegt verður að teljast að það dragi úr þeirri áhættu. Svo afgerandi eru áhrifin til lækkunar þríglýseríða í blóði að Omacor™ hefur verið skráð í þessum tilgangi í ýmsum löndum Evr- ópu og sótt hefur verið um markaðsleyfi fyrir lyfið í Bandaríkjunum. Háþrýstingur Háþrýstingur er mjög algengt heilsufarsvandamál í vestrænum samfélögum og áhugi á meðferð hans með breytingum á mataræði eða fæðubótarefnum hefur verið mikill (35). Þó meinalífeðlisfræði háþrýst- ings sé að miklu leyti óþekkt eru ýmis atriði í líffræði ómega-3 fjölómettaðra fitusýra sem benda til að þær geti komið að gagni við meðferð hans. Má þar nefna aukna myndun eikósanóíða með æðavíkkandi eigin- leika, svo sem prostacýklíns, og bein áhrif á samdrátt sléttvöðvafruma í æðaveggjum (36). Einnig hafa sumar rannsóknir sýnt fram á minnkuð viðbrögð æða við æðaherpandi efnum, svo sem angíótensíni II, og aukinn eftirgefanleika æðaveggja (37-39), en aðrar hafa ekki leitt í ljós slík áhrif (40,41). Margar vandaðar samanburðarrannsóknir á með- höndlun háþrýstings með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum hafa litið dagsins ljós og sumar þeirra sýnt fram á umtalsverða lækkun slagbils- og/eða lagbils- þrýstings (42,43) en aðrar hafi ekki staðfest þann ávinning (35,44). Þennan mun á niðurstöðum er erfitt að skýra. Þó kom í ljós í einni af stærri rannsóknunum að blóðþrýstingslækkandi áhrif voru í öfugu sambandi við hlutfall ómega-3 fjölómettaðra fitusýra í blóðfitu og að ekki urðu marktæk áhrif á blóðþrýsting meðal þeirra sem þegar neyttu fiskmetis að minnsta kosti þrisvar í viku (42). Því geta skammtar, meðferðar- heldni og aðrir eiginleikar þýðisins haft afgerandi áhrif. I fjölrannsóknagreiningu sem tók til 17 saman- burðarrannsókna kom fram marktæk lækkun, eða 5,5 mmHg í slagbils- og 3,5 mmHg í lagbilsþrýstingi, við meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum hjá einstaklingum með háþrýsting, en höfundamir bentu réttilega á að flestar rannsóknimar náðu yfir stutt tímabil eða minna en þijá mánuði þannig að langtíma- áhrif eru ekki ljós (45). Skammtar voru nokkuð mis- munandi en líklega koma lægri skammtar en 2,5 til 3 g á dag ekki að gagni (46). Ahrif ómega-3 fjölómettaðra fitusýra til lækkunar blóðþrýstings virðast því vera talsverð en þörf er á stórum samanburðarrannsóknum sem ná yfir langan tíma til að skera úr um hvort ávinn- ingur er af þeirri meðferð. Líkt og með áhrif til lækk- unar á þéttni þríglýseríða í blóði er ekki vitað hvort blóðþrýstingslækkandi áhrif leiða til lækkunar á dán- artíðni eða tíðni fylgikvilla vegna hjarta- og æðasjúk- dóma. Á hitt er þó að líta að lág aukaverkanatíðni og jákvæð áhrif á blóðfitur og æðasjúkdóma almennt hljóta að vega þungt við ákvörðun meðferðar. Æðakölkun Tilraunir í svínum og öpum (rhesus monkey) hafa leitt í ljós að langvarandi gjöf ómega-3 fjölómettaðra fitusýra dregur úr myndun æðakölkunar (47, 48), en ekki hefur tekist að sýna fram á þau áhrif í kanínum (49) . Ekki liggja fyrir rannsóknir í mönnum þar sem meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum hef- ur verið borin saman við lyfleysu eða aðra meðferð til að koma í veg fyrir æðakölkun í kransæðum en hins vegar hefur slík meðferð verið könnuð hjá sjúk- lingum sem greinst hafa með kransæðasjúkdóm. Stærsta rannsóknin er svonefnd GlSSI-rannsókn þar sem 11.324 einstaklingum sem höfðu greinst með hjartadrep var skipt í fjóra hópa með slembidreifingu (50) . Af þeim fengu 2836 sjúklingar 880 mg af ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum á dag, 2830 fengu 300 mg af E-vítamíni á dag, 2830 fengu hvort tveggja og 2828 fengu hvorugt. Sjúklingunum var fylgt eftir í 3,5 ár að meðaltali. Meðferð með ómega-3 fjölómett- uðum fitusýrum leiddi til 10-15% fækkunar dauðs- falla samanborið við lyfleysu en E-vítamín hafði ekki marktæk áhrif. Smærri rannsóknir á sjúklingum sem lifað hafa af brátt hjartadrep benda til sömu niður- stöðu (51,52). Einnig hefur verið sýnt fram á hægari framvindu kransæðakölkunar (53) og minni hættu á þrengslum í bláæðagræðlingum eftir hjáveituaðgerðir á kransæðum (54) meðal sjúklinga sem meðhöndlað- ir hafa verið með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum samanborið við lyfleysu. Rannsóknir á notkun ómega- 3 fjölómettaðra fitusýra til að fyrirbyggja endurmynd- un þrengsla í kransæðum eftir víkkun þeirra hafa hins vegar ekki verið samhljóða, nokkrar hafa sýnt mark- tækan ávinning (55,56) en aðrar engan (57,58). Með hliðsjón af þekkingu á áhrifum ómega-3 fjöl- ómettaðra fitusýra á áhættuþætti æðakölkunar, svo sem háþrýsting og aukna þéttni þríglýseríða í blóði, er rökrétt að ætla að þær geti hamlað myndun æða- kölkunar. Þá benda smærri rannsóknir til að ómega-3 fjölómettaðar fítusýrur lækki hómósýsteinþéttni í blóði (59) og minnki upptöku LDL-kólesteróls í bandvefs- frumum (60). Rannsóknir síðustu ára hafa einnig leitt í ljós mikilvægi bólgu í meinmyndunarferli æðakölk- unar (61). Því má leiða að því líkum að ómega-3 fjöl- ómettaðar fitusýrur dragi úr æðakölkun vegna mynd- unar bólguletjandi eikósanóíða og vegna hamlandi áhrifa á kekkjun blóðflagna og fjölgun sléttvöðva- frumna (3, 36). Þá hefur komið í ljós að innsetning ómega-3 fjölómettaðra fítusýra í frumuhimnur veld- ur breytingum á fljótanleika (fluidity) himnanna. Þetta leiðir til minnkaðrar seigju blóðs og aukins sveigjan- 202 Læknablaðið 2003/89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.