Læknablaðið - 15.03.2003, Side 28
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓM ETTAÐAR FITUSÝRUR OG
LÆKNINGAR
þess að enn hærri skammtar, 54 mg/kg af EPA og 36
mg/kg af DHA á dag, væru árangursríkari en lægri
skammtar (85). Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur
virðast því geta komið að gagni í meðferð iktsýki,
ekki síst til að minnka notkun bólgueyðandi gigtar-
lyfja. Langtímarannsókna með og án annarra lyfja er
þó þörf til að finna þeim réttan sess í heildarmeðferð
sjúkdómsins.
Sáraristilbólga
Nokkrar rannsóknir hafa verið framkvæmdar þar
sem gerður hefur verið samanburður á ómega-3 fjöl-
ómettuðum fitusýrum og lyfleysu við meðferð á
vægri eða meðalsvæsinni sárabólgu í ristli, aðallega í
fjærenda ristils. Þær sýna að gjöf ómega-3 fjölómett-
aðra fitusýra dregur að einhverju leyti úr virkni sjúk-
dómsins og getur minnkað þörf fyrir barkstera (86-
88). Ein rannsókn sýnir þó að þau áhrif eru ekki eins
mikil og af súlfasalazíni (89).
Asmi og langvinnur teppusjúkdómur í lungum
Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á virkni
ómega-3 fjölómettaðra fitusýra á asma hafa ekki sýnt
óyggjandi ávinning (90). Þó eru vísbendingar um að
þær geti komið að gagni við meðferð asma hjá börn-
um (90, 91). Enn fremur benda faraldsfræðilegar
rannsóknir til almennt betri lungnaheilsu hjá þeim er
neyta fæðu sem auðug er af ómega-3 fjölómettuðum
fitusýrum (92) og minni hættu á langvinnum teppu-
sjúkdómi í lungum hjá reykingamönnum með hátt
hlutfall DHA í blóðfitu (93). Því er líklegt að sam-
band ómega-3 fjölómettaðra fitusýra og langvinnra
lungnasjúkdóma verði athugað nánar og að rann-
sóknir á meðferð þessara sjúkdóma með ómega-3
fjölómettuðum fitusýrum muni líta dagsins ljós.
Bráðir bólgusjúkdóniar
Fjölmargar rannsóknir hafa kannað áhrif ómega-3
fjölómettaðra fitusýra á bráða bólgusjúkdóma og
sýkingar í mönnum og dýrum. Dýratilraunir benda
sterklega til minni bólgusvörunar og betri útkomu
hjá sýktum dýrum sem meðhöndluð hafa verið með
ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum (94). Meðal ann-
ars hafa nýlegar íslenskar rannsóknir sýnt fram á
lengri lifun músa sem sýktar voru með Klebsiella
pneumoniae og fengu lýsi samanborið við ólífuolíu
(95). Þær rannsóknir sýndu ekki fram á áhrif á bakt-
eríuvöxt in vivo þannig að verkunarmátinn er að lík-
indum vegna áhrifa á bólgusvörun (96). Rannsóknir í
rottum hafa hins vegar ekki gefið jafn óyggjandi nið-
urstöður (97).
Einnig hafa verið framkvæmdar nokkuð margar
rannsóknir á notkun ómega-3 fjölómettaðra fitusýra
við sýkingum og blóðsýkingarheilkenni hjá bráð-
veiku fólki á gjörgæslu. Þær hafa flestar sýnt færri
nýjar sýkingar, styttri tíma í öndunarvél og/eða
skemmri legu á gjörgæslu og sumar betri lifun (98-
101). í þessum rannsóknum hefur þó oftast einnig
verið gefið arginín, glútamín og/eða núkleótíð í ein-
hverri samsetningu með ómega-3 fjölómettuðum
fitusýrum, stundum kallað ónæmisstyrkjandi fæða,
þannig að ekki er unnt að meta eingöngu áhrif fitu-
sýranna. Fjölrannsóknagreiningar á slíkum rann-
sóknum hafa sýnt marktæka minnkun á nýjum sýk-
ingum en ekki aukna lifun meðal sjúklinga sem fengu
þessa meðferð (102,103).
Tíðaverkir
Talið er að prostaglandín gegni hlutverki í meinalífeðl-
isfræði tíðaverkja. Árið 1996 var birt bandarísk rann-
sókn á meðferð tíðaverkja hjá 42 stúlkum á ung-
lingsaldri með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum
(104). Þeim var skipt í tvo hópa og fékk annar hópur-
inn 1080 mg EPA og 720 mg DHA daglega í tvo mán-
uði og síðan lyfleysu í aðra tvo en hinn fékk fyrst lyf-
leysu og síðan ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur. Ein-
kenni voru metin með Cox tíðaeinkennaskala (Cox
Menstrual Symptom Scale) og reyndust mun minni
(P<0,0004) meðan á meðferð með ómega-3 fjölómett-
uðum fitusýrum stóð, sem bendir til að þessar fitusýrur
dragi verulega úr tíðaverkjum hjá unglingsstúlkum.
Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur
og nýrnasjúkdómar
IgA nýrnamein er ásamt iktsýki sá bólgusjúkdómur
þar sem meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitu-
sýrum hefur verið einna best rannsökuð og byggir á
þeim forsendum að þessar fitusýrur geti haft áhrif á
myndun eikósanóíða og annarra frumuboðefna,
myndun millifrumuefnis, blóðþrýsting, prótínmigu
og/eða blóðfitu (105). Fjölþætt áhrif fitusýranna hafa
einnig leitt til rannsókna á notkun þeirra við ýmsum
öðrum nýrnavandamálum, meðal annars cýklósporín-
eiturvirkni á nýru, gauklabólgu af völdum rauðra
úlfa, myndun kalsíumnýrnasteina samfara ofgnótt
kalsíum í þvagi (hypercalciuria) og segamyndun í
æðaaðgengi fyrir blóðskilun.
IgA nýrnamein
IgA nýrnamein er algengasta tegund gauklabólgu í
veröldinni. Sjúkdómsgangurinn er talsvert breytileg-
ur, er oft góðkynja en í mörgum tilvikum á sér þó stað
hægfara hnignun nýrnastarfsemi sem leiðir til loka-
stigsnýrnabilunar hjá 20-30% sjúklinga 10-20 árum
eftir greiningu (106). Háþrýstingur er algengur fylgi-
kvilli IgA nýrnameins og hefur ásamt mikilli prótín-
migu og skertri nýrnastarfsemi, slæmt forspárgildi hjá
sjúklingum með þennan sjúkdóm.
Fjórar slembiraðaðar rannsóknir hafa kannað
áhrif ómega-3 fjölómettaðra fitusýra á IgA nýrna-
mein (107-110). Tvær af þessum rannsóknum hafa
sýnt hagstæð áhrif á nýrnastarfsemi en tvær sýndu
ekki fram á marktæk áhrif. Stærstu rannsóknina (106
204 Læknablaðið 2003/89