Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 32

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 32
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR Table II. Potential indications for omega-3 polyunsaturated fatty acids and sugges- ted doses. Daily dose of omega-3 fatty acids (mg) Condition Hypertriglyceridemia 4000 mg Post-myocardial infarction (GlSSI-study) 850 mg Following coronary artery bypass grafting 3500 mg Hypertension 3000 mg Rheumatoid arthritis 2600 mg Ulcerative colitis 4500 mg Menstrual pain (adolescent girls) 1800 mg IgA nephropathy 3300 mg Cyclosporine-induced vascular disease 4000 mg Calcium nephrolithiasis 2600 mg Prophylaxis against hemodialysis access thrombosis 4000 mg Psychiatric disorders bipolar illness 9600 mg schizophrenia 2000 mg* Formula fed full term infants 20 mg/kg# Formula fed premture infants 40 mg/kg# * Eicosapentaenoic acid only # Docosahexaenoic acid only Table III. Products rich in omega-3 polyunsaturated fattv acids. Cod Omega 3 Omega forte liver oil# Omacor™ * capsulesff capsules* Heilsutvenna* Capsule size (mg) 5 ml 1000 500 1000 1000 Nutritional content EPA (mg) 400 450 75 275 170 DHA (mg) 500 390 75 180 114 Vitamin-A (pg) 230 0 0 0 525 Vitamin-D (pg) Vitamin-E 5.6 0 0 0 5 Alpha-tocopherol (mg) 5.6 4 10 0 7 Mixed tocopherols (mg) 0 0 3.6 0 # Lysi Ltd., Reykjavik, lceland * Solvay Pharmaceuticals, Brussels, Belgium Abbreviations: EPA, eicosapentaenoic acid; DHA, docosahexaenoic acid. Aukaverkanir I flestum samanburðarrannsóknum sem framkvæmd- ar hafa verið hefur ekki komið fram mikill munur á ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum og lyfleysu með tilliti til aukaverkana. Þó hafa væg meltingarfæra- óþægindi, svo sem ropi og lýsisbragð í munni, ógleði, þemba og hægðabreytingar, verið algengari hjá þeim sem taka þessar fitusýrur og gæti það fylgt hærri skömmtum (110,112). Einnig verður að hafa í huga að hætta á blæðingum getur aukist vegna áhrifa á blóðflögur (163). Það hefur þó ekki verið staðfest í þeim rannsóknum sem hér hafa verið tíundaðar og meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum verð- ur því að teljast örugg meðferð. Lyfjaform Þeir skammtar af ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum sem notaðir hafa verið við meðferð hinna ýmsu sjúk- dóma eru nokkuð háir (tafla II). Þar sem hlutfall þessara fitusýra í lýsi er tiltölulega lágt er óráðlegt að nota það við meðferð sjúkdóma vegna hárrar þéttni A- og D-vítamíns (tafla III). Því er nauðsynlegt að hafa völ á lyfjaformi sem inniheldur hærra hlutfall EPA og DHA. í nokkrum nágrannalöndum okkar hefur fengist markaðsleyfi fyrir sérlyfið Omacor™, sem inniheldur sterka blöndu af EPA og DHA (tafla III). Meginábendingar eru sem fyrr segir hækkuð blóðþéttni þríglýseríða og meðferð eftir brátt hjarta- drep. Þetta lyf hefur ekki verið skráð hér á landi en eitt lyfjaform hefur verið verið samþykkt sem náttúrulyf (Eskimo-3, Cardinova AB, Uppsalir, Svíþjóð). Það hefur þó ekki verið markaðssett sem slíkt en í heilsu- og matvörubúðum er hægt að kaupa afurðir frá ýms- um framleiðendum sem innihalda mismunandi mikið af ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum og flokkast sem náttúruvörur (tafla III). Unnt er að reikna út það magn sem ráðlegt er að taka, byggt á skömmtum sem beitt hefur verið við meðferð þess sjúkdóms sem um ræðir (tafla II). Eftir brátt hjartadrep til dæmis er ráðlegt að taka tvö hylki af Omega-forte (Lýsi hf, Reykjavík, ísland) daglega. Með vaxandi notkun ómega-3 fjölómettaðra fitu- sýra við meðferð sjúkdóma verður mikilvægi þess að hafa aðgang að öruggu lyfjaformi enn meira því upp hafa komið vissar áhyggjur varðandi öryggi sumra þeirra afurða sem á markaði eru. Þær áhyggjur hafa einkum beinst að mengunarefnum, svo sem snefil- málmum (164) og eiturefnum á borð við fjölklórtví- fenýlsambönd. Hreinsun er því mikilvæg og notkun andoxunarefna, aðallega tókóferóls, til að fyrirbyggja oxun fitusýranna er mjög þýðingarmikil (165). í þeim tilvikum þar sem sýnt hefur verið fram á ávinning af meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum, til dæmis við háa blóðþéttni þríglýseríða, eftir hjarta- drep, við iktstýki og IgA nýrnameini, er nauðsynlegt að læknar geti ávísað þessum fitusýrum sem öðrum lyfjum í réttri blöndu og styrkleika. Enn fremur þurfa sjúklingar að eiga kost á slíku lyfi á viðráðanlegu verði og gæti það kallað á þátttöku sjúkratrygginga. Niðurlag Ljóst má vera af því sem rakið hefur verið hér að framan að ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur geta nýst við meðferð margra sjúkdóma. Ganga sumir svo langt að mæla með meðferð með ómega-3 fjölómett- uðum fitusýrum eða aukinni neyslu sjávarfangs sem næsta skrefi í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma (166, 167). Þótt öðrum þyki þetta nokkuð djúpt í árinni tekið (168) má reikna með að hlutverk ómega- 3 fjölómettaðra fitusýra eigi eftir að skýrast betur á næstu árum. Óhætt er að segja að þessar fitusýrur séu 208 Læknablaðið 2003/89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.