Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2003, Side 59

Læknablaðið - 15.03.2003, Side 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU / NÁMSKEIÐ Efnt hefur verið til átaks til að vekja athygli ráða- manna, heilbrigðisstarfsmanna og almennings um all- an heim á langvinnri lungnateppu sem vaxandi heil- brigðisvandamáli. Átakið nefnist „Global initiative for chronic Obstructive Lung Disease“, skammstafað GOLD. Til þess að bæta greiningu og meðferð sjúk- dómsins hafa verið teknar saman alþjóðlegar leið- beiningar sem voru gefnar út 4. aprfl 2001. Að leið- beiningunum standa meðal annars WHO og NHLBI (National Heart Lung and Blood Institute í Banda- ríkjunum). Stýrihópur um klínískar leiðbeiningar hef- ur ákveðið að kynna þær og vísa til þeirra á vef Land- læknisembættisins. Af þessu tilefni hefur sérstakur vinnuhópur verið stofnaður og í honum eru Gunnar Guðmundsson lungnalæknir, Halldór Jónsson heimil- islæknir, Jón Bjarnarson heimilislæknir og Þórarinn Gíslason lungnalæknir. Leiðbeiningarnar hafa verið sendar hópi lækna til umfjöllunar. Þær hafa þegar ver- ið samþykktar af Félagi íslenskra heimilislækna. Æskilegt er að leiðbeiningar þessar verði teknar til faglegrar umfjöllunar af sem flestum einstaklingum og sérgreinafélögum. Ábendingum um breytingar studdum heimildum má koma til formanns vinnu- hópsins, Þórarins Gíslasonar, thoraríg@ landspitali.is Leiðbeiningarnar má einnig nálgast á heimasíðu GOLD www.goldcopd.com Workshop Report eru lengstar og ítarlegastar. Excutive Summary er nokkuð styttri og þar er hægt er skoða öll atriði leiðbeininganna í einu pdf-skjali. Pocket Guide er stuttur útdráttur úr aðalatriðunum. Ætlunin er að birta hann á íslensku síðar. Merki GOLD-átaksins. útgáfunnar sem œtlunin er að birta á íslensku. Endurmenntunarstofnun HÍ Þrjú námskeið fyrir heilbrigðisstarfsmenn Upplýsingatækni - gagnaleit Að nota netið íþágit sjúklinga Einkum ætlað fagfólki og stjórnendum í heilbrigðis- og félags- þjónustu. Fjallað er um hvernig afla megi hagnýtra og traustra upplýsinga sem gagnast geta sjúklingum og hægt er að vísa þeim á til að þeir drukkni ekki í gögnum um aragrúa grunnrannsókna. Hvernig á að lifa af í því upplýsingaflóði sem á okkur skellur daglega og hvar eru haldbestu og öruggustu heimildirnar? Kynning á bestu læknis- fræðilegu vefsvæðunum með áherslu á „evidence based“ vefsíður hjá stofnunum sem gagnrýna og meta upplýsingar og setja síðan niðurstöður í samhengi við aðrar rannsóknir um sama efni. Kennari: Sigurður Helgason sérfræðingur í heimilislækningum og ritstjóri klínískra leiðbeininga hjá Landlæknisembættinu. Tími: Mán. 3., mið. 5. og mán. 10. mars 2003 kl. 17:00-19:00. Verð: 15.800 kr. Fyrirlestrar með PowerPoint - grunnnámskeið Einkum ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en er öllum opið. Forritið PowerPoint býr yfir öflugum möguleikum í gerð glæra og kynningarefnis. Kennd eru grunnatriði í uppsetningu á fyrir- lestrum með PowerPoint-forritinu. Kennari: Þórunn Óskarsdóttir verkefnisstjóri og kennsluráðgjafi hjá kennslusviði HÍ. Tími: Þri. 11. og fim. 13. mars 2003 kl. 17:00-19:00. Verð: 13.800 kr. Fyrirlestrar með PowerPoint - framhaldsnámskeið Einkum ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en er öllum opið. Kennt er hvernig nota má möguleika PowerPoint við gerð glærukynninga, þar sem möguleikar forritsins eru nýttir til hins ýtrasta og leiðir til að nálgast og taka inn í erindi efni af Netinu. Kennari: Þórunn Óskarsdóttir verkefnisstjóri og kennsluráðgjafi hjá kennslusviði HI. Tírni: Þri. 18. og fim. 20. mars 2003 kl. 17:00-19:00. Verð: 13.800 kr. Læknablaðið 2003/89 235
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.