Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 60

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GEÐLYFJANOTKUN BARNA OG UNGLINGA Notkun geðlyfja hjá börnum og unglingum „Erum við að dópa niður börnin okkar?“ Bertrand Lauth Höfundur er barna- og ung- lingageölœknir, sérfræðingur á Barna- og unglingageðdeild (BUGL) Landspítala, Dalbraut 12,105 Reykjavík. Þróun á notkun geðlyfja hjá börnum og unglingum og aukin þekking á þessu sérsviði innan læknisfræð- innar eykur vonina hjá lækni sem fæst daglega við að lina þjáningar sjúklings, bæta lífsgæði hans og draga eins og mögulegt er úr afleiðingum geðrænna sjúk- dóma sem oft á tíðum eru alvarlegar ef þeir koma fram á þessum aldri (1). Þróun þessi heyrir til mikilvægra framfara í með- ferðar- og forvarnarvinnu á sviði bama- og unglinga- geðlækninga, einkum þegar geðlyfjameðferðin er notuð sem viðbót við önnur meðferðarúrræði (2, 3). Reynslan sýnir að lyfjameðferðin auðveldar og eykur virkni vinnu sérfræðinga á borð við sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga, sjúkra- og iðjuþjálfa, félagsráð- gjafa, talmeinafræðinga og svo mætti lengi telja. Þrátt fyrir miklar vísindalegar framfarir innan barnageðlæknisfræðinnar er erfitt að berjast gegn þeim miklu fordómum þegar kemur að geðlyfjagjöf hjá börnum; neikvæðar umræður í fjölmiðlum hafa því miður alltaf haft skaðandi áhrif fyrir unga sjúk- linga okkar og fjölskyldur þeirra (4, 5). En heilmikið hefur gerst á sviði geðlyfjafræðinnar fyrir börn og unglinga undanfarinn áratug. Endurskoðun alþjóð- legra greiningarkerfa, gerð og þróun mats-, skimun- ar- og greiningartækja, með bæði viðurkennda gagn- semi, áreiðanleika og staðfærslu, hafa leikið mikil- vægt hlutverk, sem og talsverð aukning á klínískum rannsóknum um virkni geðlyfja hjá börnum og ung- lingum. Marktækustu breytingarnar á heimsvísu hafa átt sér stað síðastliðin fimm ár hjá barna- og unglinga- geðlæknum (6); þar kemur til annars vegar aukið vægi geðlyfja í meðferð fyrir börn og unglinga og hins vegar tilkoma fjölmargra nýrra lylja á markaðinn sem hafa augljósa kosti og minniháttar áhættu (7). Því miður eru mörg lyf á markaðnum sem notuð eru í ríkum mæli hjá fullorðnum sem enn hafa ekki verið rannsökuð til hlítar eins og gera þyrfti ef vel ætti að vera fyrir sjúklinga undir átján ára aldri. Aukið og stýrt eftirlit með þeim og stórt úrtak væri nauðsynlegt til að sýna fram á með ótvíræðum vísindalegum hætti vikni þeirra, hættuleysi og þol hjá börnum og ung- lingum (8). Margar rannsóknir hafa þó verið gerðar, meðal annars á stóru úrtaki, varðandi notkun barna á mis- munandi geðlyfjum sem sýna augljóslega öryggi, virkni og gæði vissra lyfja (2,3,9). Viðurkenning á geðlyfjum er gefin af amerísku matvæla- og lyfjaeftirlitsnefndinni (Food and Drug Administration) sem segir á afar skýran hátt hvaða geðlyf eru heimil fyrir börn og unglinga með hliðsjón af aldri sjúklinganna og ábendingum. Þessar lyfjameðferðir eru kallaðar „standard“ þegar þær hafa hlotið náð hjá fyrrgreindu eftirliti en notkun á alls kyns lyfjum sem flokkast undir „off label“ eru í dag engu að síður að stórum hluta viðurkennd þegar nægar rannsóknir liggja fyrir; hér er um að ræða: - notkun á efnum sem lyfið inniheldur fyrir yngri notendur en þá yngstu eins og ameríska mat- væla- og lyfjaeftirlitsnefndin bendir á. - notkun í öðrum ábendingum en þeim sem þeg- ar hafa verið viðurkenndar. Þetta viðhorf var kunngert og viðurkennt árið 1993 af ameríska læknafélaginu (American Medical Association) sem benti á að „lyfseðill fyrir lyfi sem flokkast undir „off label“ sé að öllu leyti réttlætanleg- ur ef notkunin hvílir á vísindalegum rökstuddum grunni og áliti sérfræðinga og ef gerðar hafa verið rannsóknir á því (controlled studies) (9).“ En þessi afstaða auðveldar ekki nema síður sé vinnu læknis sem oft lendir í því að kljást við fordóma annarra varðandi notkun geðlyfja hjá börnum og unglingum. Læknirinn lendir því í þeirri erfiðu og óréttlátu aðstöðu að þurfa að taka á sig ábyrgð sem ætti að hvíla á öðrum. Greiningarvinna og skilgreining á markmiðum með lyfjameðferð Hafa ber í huga að nákvæm sjúkdómsgreining þarf að fara fram hjá lækni áður en lyfjameðferð er ákveðin fyrir börn og unglinga. Hér er mælt með áliti sérfræð- ings sem þyrfti að hafa yfirsýn og skilning á andlegum veikindum barnsins og fjölskylduaðstæðum þess. Slíkt vinnuviðhorf felur í sér að forðast ofnotkun geðlyfja, það er skrifa uppá lyf án þess að um greini- leg geðvandamál sé að ræða hjá sjúklingi. Því miður felst hættan á ofnotkun einnig í þrábeiðni sumra for- eldra fyrir uppáskrifum geðlyfja sem tengjast ekki endilega alvarlegum geðvandamálum hjá barni. Því er afar mikilvægt að sérfræðingur vegi og meti af nákvæmni annars vegar barnið og hins vegar fjöl- skyldu þess og félagslega þætti. Upplýsingar frá öðr- 236 Læknablaðið 2003/89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.