Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 84

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 84
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILBRIGÐISMAL A KOSNINGAVETRI þeir veita sína þjónustu og telja sig jafnframt geta veitt persónulegri þjónustu. Þetta vandamál snertir í raun allt heilbrigðiskerfið og þarna hafa læknar fund- ið ákveðna leið til að mæta því.“ Úrelt hugmyndafræði heilsugæslunnar Það hefur gengið á ýmsu í heilsugæslunni hér á landi. Löngum hefur reynst erfitt að manna hana á lands- byggðinni og síðustu árin hafa staðið deilur um sjálft rekstrarformið. Hvaða áhrif hefur þetta á rekstur FSA og hvemig horfir þetta við lækningaforstjóranum? „Sarnstarfið við heilsugæsluna á Akureyri hefur alltaf gengið mjög vel og verið til fyrirmyndar. Mönn- un heilsugæslunnar hefur verið í nokkuð góðu jafn- vægi. Flestir sjúklingar sem koma til okkar sérfræði- lækna, yfir 90% að mig minnir samkvæmt könnun heilsugæslunnar, eru með tilvísun frá heilsugæslu- lækni. Samvinnan hefur aukist því nú hefur kvöld- vakt heilsugæslunnar aðstöðu á slysadeild FSA og hjúkrunarfræðingar slysadeildar svara í síma fyrir heilsugæsluna um nætur. I mörg hefur sá siður haldist að heimilislæknar koma til okkar á laugardögum og eiga fund með sjúkrahúslæknunum þar sem farið yfir innlagnabeiðnir. Þeir hafa því góðan aðgang að spít- alanum og taka til dæmis þátt í fræðslufundum okkar á föstudögum.“ - Er þetta ekki líka til fyrirmyndar fyrir aðra landshluta? „Jú, ég myndi halda það. Eg er hins vegar á því að 40 ára gömul sænsk hugmyndafræði heilsugæslunnar sé úrelt og eigi ekki við íslenskt þjóðfélag nú á dög- um. Ég held að heimilislæknar þurfi að iðka dálitla sjálfsgagnrýni og stokka upp spilin. Barátta þeirra undanfarin ár hefur ekki skilað þeim miklu og ég held að það sé vegna þess að hún hefur snúist um íjármál og réttindi en ekki sjálfa hugmyndafræðina. Það segir sig sjálft að foreldrar barns sem fær í eyr- un eða slæmt kvef bíða ekki í þrjá daga eftir því að komast að hjá heilsugæslunni. Þeir fara beint til barna- læknis eða annars sérfræðings þar sem þeir ganga að þjónustunni vísri samdægurs. Spurningin er hvort kerfið eigi að miðast við að veita þjónustu eða við þarfir læknisins. Það hefur líka svo margt breyst í samfélaginu. Heilsugæslan er miðuð við að þjóna fjölskyldunni en nú er stór hluti fólks fráskilinn og fjölskylduformið allt annað en það var. Ætti heilsu- gæslan til dæmis að vera opin á öðrum tímum, frá 12 til átta en ekki átta til fjögur? Það þarf að nálgast málið á annan hátt. Mér finnst sjálfsagt að heilsugæslan sé einkarekin ef heimilislæknar vilja það rekstrarform frekar. En ég tek undir með Norðmönnum um að heimilislæknar eigi að sinna grunnþjónustu í kerfinu og að þeir eigi að fá að stýra flæðinu í kerfinu með tilvísunum þann- ig að þeir sem eru með tilvísun fái sérfræðiþjónust- una meira niðurgreidda en aðrir.“ Gula skýrslan í framkvæmd Stefán E. Matthíasson nefndi það í viðtali við blaðið að taka þyrfti rekstur sjúkrahúsanna á landsbyggð- inni til endurskoðunar og hafa læknisfræðina að leið- arljósi. Hvað segir landsbyggðarmaðurinn Þorvaldur Ingvarsson um þetta, hafa einhver önnur sjónarmið verið ríkjandi? „Ég er alveg sammála Stefáni um það að svo virð- ist sem uppbygging sjúkrahúsanna bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni hafi verið tilviljanakennd og jafn- vel með byggðasjónarmið í huga. En skýringamar eru augljósar ef menn skoða söguna. Þá sjaldan að teknar eru ákvarðanir í heilbrigðiskerfinu þá tekur oftast óratíma að framkvæma þær. Það var kannski tekin ákvörðun um að byggja sjúkrahús í tilteknu plássi árið 1965. Svo er hafist handa árið 1975 og bygg- ingin tilbúin 1987. Þá eru liðnir áratugir og ákvörð- unin sem í upphafi var læknisfræðilega rétt orðin úr- elt því í millitíðinni hefur allt breyst, samgöngurnar, fólksfjöldinn og læknisfræðin. Þetta sér maður alltof oft í heilbrigðiskerfinu, það er svo svifaseint. Það er eins og búið sé að telja stjórn- málamönnum trú um að hér hafi lengi tíðkast offjár- festing í steinsteypu. Þess vegna er mjög erfitt að fá þá til að samþykkja byggingar og þegar þær loks rísa eru þær orðnar úreltar. Það gilda í raun alveg sömu lögniál um sjúkrahús og frystihús eða annan atvinnu- rekstur. Ef þú skiptir um vinnslutegund þarftu að skipta um flæðilínu. Við sitjum hins vegar fastir í ein- hverri steinsteypu sem við fáum hvorki fjármagn til að breyta eða byggja við til þess að mæta kröfum um ný þjónustuform. Eitt verða menn þó að hafa í huga í þessari um- ræðu. Fyrir allnokkrum árum kom út svonefnd gul skýrsla sem nefnd undir forystu Guðjóns Magnús- sonar samdi og þar var lagt til að breyta ýmsu, leggja niður skurðdeild hér, fæðingardeild þar og svo fram- vegis. Þessi skýrsla fékkst aldrei rædd en nú hefur flest það sem þar var lagt til gerst á einn eða annan hátt. Þetta hefur gerst á læknisfræðilegum forsend- um. Það má nefna sem dæmi að fæðingum var hætt á Hvammstanga og skurðdeildinni lokað á Blönduósi vegna þess að læknarnir þar töldu að ekki væru leng- ur faglegar forsendur fyrir því að veita þessa þjón- ustu. Það hafa hins vegar ekki verið teknar neinar stjórnvaldsákvarðanir um að hætta þessari þjónustu. Þær virðast vera erfiðar.“ Aukið óþol þjóðarinnar Sjúkrahúsin á landsbyggðinni hafa með sér margvís- legt samstarf og Þorvaldur lætur vel af því. Nánast er samstarf FSA við sjúkrahúsin á Sauðárkróki og Húsavík þar sem starfsmenn FSA ganga vaktir. Einn- ig fara bæklunarlæknar og geðlæknar frá FSA í ferðir til Egilsstaða og Neskaupstaðar. Hins vegar hamla samgöngur því að samstarf verði nánara. 260 Læknablaðið 2003/89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.