Læknablaðið - 15.11.2003, Qupperneq 79
LAUSAR STÖÐUR
LANDSPÍTALI
HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Deildarlæknir í starfsnámi
óskast við augndeild frá 1. des. n.k.
Þrír deildarlæknar starfa við deildina, tveir í
klínískri vinnu og einn í rannsóknarstöðu.
Vaktir eru þrískiptar bakvaktir. Staðan hentar
annars vegar til kynningar á greininni og/eða
sem upphaf sérnáms í augnlækningum. Hins
vegar fæst góð reynsla fyrir aðrar greinar.
Starfið veitir t.d. góðan grunn fyrir augn-
vandamál í heimilislækningum og hentar því
jafnt unglæknum sem starfandi heimilis-
læknum. Rannsóknartækifæri eru íjölmörg.
Ráðningartími er samkvæmt samkomulagi.
Umsóknum skal skila, fyrir 18. nóv. n.k, til
yfirlæknis augndeildar, Eiríksgötu 37, 101
Reykjavík.
Upplýsingar veita yfirlæknar deildarinnar,
Einar Stefánsson prófessor,
einarste@landspitali.is og Friðbert Jónasson
prófessor, fridbert@landspitali.is.
Sími skrifstofustjóra er 543 7217.
Sérfræðilæknir
óskast við lýtalækningadeild á skurðlækninga-
sviði. Starfið er 50% og veitist ífá 1. jan. 2004.
Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviður-
kenningu í lýtalækningum og með reynslu í
meðferð brunasjúklinga. Sérfræðilæknirinn
tekur þátt í kennslu og vísindavinnu á deildinni
og er því æskilegt að hann hafi reynslu á því
sviði. Umsóknum, sem skila ber á þar til
gerðum eyðublöðum og nálgast má á heima-
siðu Landspítala - háskólasjúkrahúss, íylgi
vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf,
reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjómunar-
störfum ásamt sérprentun eða ljósriti af
greinum sem umsækjandi kann að hafa birt
eða skrifað.
Umsóknargögn berist í tvíriti, íyrir 1. des. n.k,
til yfirlæknis lýtalækningadeildar, Jens
Kjartanssonar, sími 824 5638, netfang
jenskj@landspitali.is og veitir hann
upplýsingar um starfið. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Læknafélags Islands og
ijármálaráðherra f. h. ríkissjóðs og með
hliðsjón af yfirlýsingu LSH vegna kjara-
samnings við sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002.
Mat stöðunefnda byggist á innsendum
umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við
umsækjendur og byggist ákvörðun um
ráðningu í starfið einnig á þeim.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást I upplýsingum Fossvogi og
Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu
www.landspitali.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
_______________________________________________________________)
Unglæknir óskast
til starfa
í boði er námsstaða í myndgreiningu hjá Röntgen
Domus. Staðan er ætluð lækni sem hefur hug á sér-
fræðinámi í myndgreiningu.
Nú vinna sjö sérfræðingar í myndgreiningu hjá fyrir-
tækinu og starfið er fjölbreytt og krefjandi. Aðstaðan
er mjög fullkomin til röntgenskoðana, ísótóparann-
sókna, ómskoðana, segulómrannsókna og tölvu-
sneiðmynda.
Miðað er við starf til eins árs, en lengri tími getur
komió til greina. Góð kjör í boði.
Nánari upplýsingar í Röntgen Domus
í síma 551 9330.
▲
VIÐHALD
FASTEIGNA ehf.
Getum bætt við okkur verkefnum
í vetur í múrverki, trésmíði
og málningarvinnu.
Fagmennska í fyrirrúmi.
Símar 898 2786, 862 9192.
Farmasía ehf.
hefurflutt í Skógarhlíð 12 (í PriceWaterhouseCoopers
húsið) eftir samruna við Merck Sharp & Dohme
Lyfjadeild á íslandi.
Fyrirtækið mun nú starfa undir nafninu Merck Sharp
& Dohme ísland ehf. og er með símanúmer 520
8600 og fax 561 0992.
Heimasíða
Læknablaösins:
www.laeknabladid.is
v.
Læknablaðið 2003/89 903