Læknablaðið - 15.01.2004, Side 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Hagdeild lækna?
Birna Jónsdóttir
Höfundur er gjaldkeri
stjórnar LÍ.
I pistlunum Af sjúnarhóli
stjúrnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Kjarasamningagerð lækna er töluvert að breytast.
í dag eru slétt 10 ár frá því við hjá Læknisfræðilegri
myndgreiningu gerðum fyrsta samning okkar við
Tryggingastofnun. Mismikið hefur verið þangað að
sækja gegnum árin.
Stöðugri raunlækkun á einingaverði höfum við
getað mætt með sífellt aukinni tæknivæðingu. Að
gera allar rannsóknir stafrænar er mesta bylting í
myndgreiningu síðan segulómrannsóknir hófust. Að
tölvuvæða vinnuna nær þó ekki nema ákveðinni há-
mörkun í hagræðingu og sparnaði. Hversu hraðvirkt
sem eitt tölvusneiðmyndatæki verður er aldrei hægt
að setja nema tiltekinn fjölda sjúklinga í gegnum tæk-
ið á hverjum klukkutíma. Hversu mikill sem undir-
búningur er fyrir rannsóknina krefst hver einstakling-
ur 10 til 20 mínútna inni á stofunni. Gagnasöfnun er
þó ekki nema hluti slarfsins á myndgreiningardeild.
Eftirvinnsla og úrlestur er einnig mjög ríkur þáttur.
Eftirvinnsla tölvumynda er þó í dag orðin mjög sjálf-
virk. í algengustu tölvusneiðmyndarannsóknum af
brjóst- og kviðarholi eru fleiri hundruð mynda fram-
leiddar til úrlestrar. Vinna okkar röntgenlæknanna
hefur nú færst yfir í tölvuvinnu frá filmulestri, en
óbreytt er að við sitjum
enn í hálfrökkri. Miklar
rannsóknir hafa verið
gerðar á því hversu langt
tölvur geta komist við úr-
lestur rannsókna. Tölvur
geta til dæmis ekki síður
en menn fundið hnúta í
lungum. Hvað á að gera
við hnútinn er hins vegar
álitamál. Tölvur eru betri en flest okkar í að reikna út
lífslíkur út frá aldri, kyni og hvaða (áhættu)þáttum
sem vera kann. Pað er hins vegar okkar vinna að
ákveða hvaða þætti á að meta eða taka tillit til og bera
saman áður en ákvörðun er tekin um viðbrögð.
Stundum er látið í veðri vaka að við læknar séum
að leika Guð þegar við kveðum upp okkar dóma. í
hvers verkahring á það að vera? Eru stjórnmála-
mennirnir betur til þess fallnir að ákveða hvað skal
gert og hvað ekki? Hver á til dæmis að gefa hagfræð-
ingum, sem eru jú sérfræðingar í hagfræðiútreikning-
um, nauðsynlegar forsendur við þeirra útreikninga?
Eru peningalegar stærðir rétti mælikvarðinn á hvað
skal gera?
Heilbrigðisráðuneytið virðist leggja mikið upp úr
hagfræðiútreikningum þegar taka skal ákvarðanir
um hvaða læknisverk á að vinna því nokkrir hagfræð-
ingar sitja í samninganefnd heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis og Tryggingastofnunar. Þessi nefnd
hefur hins vegar ekki lækni sem nefndarmann heldur
einungis sér til ráðuneytis. Það er hins vegar erfiðara
að kveða upp úr um hverju á ekki að sinna.
Getum við læknar eitthvað af þessu lært? Eigum
við til dæmis að tileinka okkur í ríkara mæli lögmál
hagfræðinnar í okkar samningavinnu? Viss skilning-
ur er víðar í þjóðfélaginu á mikilvægi hagfræðilegra
útreikninga í „heilsugeiranum", eins og nýstofnuð
heilsuhagfræðideild Háskóla íslands er dæmi um. Ef
við viljum tala við samninganefnd rikisins á tungu-
máli sem þeir skilja þyrftum við að vinna meiri hag-
fræðilega heimavinnu!
Það er mín skoðun að með sífellt fleiri samningum
sem læknar gera við ríkið því meiri ástæða sé til þess
að læknar hafi sína eigin hagdeild. Það er ekki bara
sérfræðilæknasamninganefnd LR sem semur um sér-
fræðilæknaþjónustu heldur vaxandi fjöldi sjálfstætt
rekinna fyrirtækja lækna. Nú stefnir einnig í að ein-
stök sérfræðifélög lækna eins og skurðlæknafélagið
fari með samingsgerð við Landspítala fyrir sína fé-
lagsmenn.
Hugmynd að skipuriti fyrir hagdeild lækna er til
dæmis:
Svona sérfræðivinna kemur til með að kosta pen-
inga og mér finnst að heildarsamtök lækna LÍ og
stærsta aðildarfélagið, LR, eigi að borga. Hvernig sá
kostnaður skiptist nákvæmlega er samningsatriði
milli þessara félaga.
Læknar vilja hafa opið tékkhefti á ríkissjóð eins og
einn samninganefndarmanna nkisins kallar það. Þeir
liggja svo undir þrýstingi frá lyfsölum um að ávísa
dýrum lyfjum. í vor var haldin ráðstefna í heilsuhag-
fræði að undirlagi ráðgjafaþjónustu Deloitte &
Touche og lyfsala frá samtökum verslunarinnar. Þar
tóku til máls ýmsir sérfræðingar innlendir og erlendir
hagfræðingar, lyfjafræðingur og fleiri. íslenskur
hjúkrunarfræðingur var meðal frummælenda en eng-
inn íslenskur læknir flutti erindi og finnst mér slæmt
að við séum ekki tillögufær á þessu sviði. Mér finnst
þannig að margar ástæður séu fyrir hendi sem rök-
styðja að við eigum að koma okkur upp eigin hag-
deild.
Hagdeild
Launaútreikningar Kjaraþróun lækna Ráðgjöf við samningagerð Heilsuhagfræði Kostnaðargreining á læknisverkum Vinna að stefnumótun með samtökum lækna Sala á hagfræði- þjónustu við sjálfstætt rekin fyrirtæki í heilbrigðisgeira sem eru rekin af aðilum utan LÍ
44 Læknablaðið 2004/90