Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Síða 44

Læknablaðið - 15.01.2004, Síða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Hagdeild lækna? Birna Jónsdóttir Höfundur er gjaldkeri stjórnar LÍ. I pistlunum Af sjúnarhóli stjúrnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Kjarasamningagerð lækna er töluvert að breytast. í dag eru slétt 10 ár frá því við hjá Læknisfræðilegri myndgreiningu gerðum fyrsta samning okkar við Tryggingastofnun. Mismikið hefur verið þangað að sækja gegnum árin. Stöðugri raunlækkun á einingaverði höfum við getað mætt með sífellt aukinni tæknivæðingu. Að gera allar rannsóknir stafrænar er mesta bylting í myndgreiningu síðan segulómrannsóknir hófust. Að tölvuvæða vinnuna nær þó ekki nema ákveðinni há- mörkun í hagræðingu og sparnaði. Hversu hraðvirkt sem eitt tölvusneiðmyndatæki verður er aldrei hægt að setja nema tiltekinn fjölda sjúklinga í gegnum tæk- ið á hverjum klukkutíma. Hversu mikill sem undir- búningur er fyrir rannsóknina krefst hver einstakling- ur 10 til 20 mínútna inni á stofunni. Gagnasöfnun er þó ekki nema hluti slarfsins á myndgreiningardeild. Eftirvinnsla og úrlestur er einnig mjög ríkur þáttur. Eftirvinnsla tölvumynda er þó í dag orðin mjög sjálf- virk. í algengustu tölvusneiðmyndarannsóknum af brjóst- og kviðarholi eru fleiri hundruð mynda fram- leiddar til úrlestrar. Vinna okkar röntgenlæknanna hefur nú færst yfir í tölvuvinnu frá filmulestri, en óbreytt er að við sitjum enn í hálfrökkri. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á því hversu langt tölvur geta komist við úr- lestur rannsókna. Tölvur geta til dæmis ekki síður en menn fundið hnúta í lungum. Hvað á að gera við hnútinn er hins vegar álitamál. Tölvur eru betri en flest okkar í að reikna út lífslíkur út frá aldri, kyni og hvaða (áhættu)þáttum sem vera kann. Pað er hins vegar okkar vinna að ákveða hvaða þætti á að meta eða taka tillit til og bera saman áður en ákvörðun er tekin um viðbrögð. Stundum er látið í veðri vaka að við læknar séum að leika Guð þegar við kveðum upp okkar dóma. í hvers verkahring á það að vera? Eru stjórnmála- mennirnir betur til þess fallnir að ákveða hvað skal gert og hvað ekki? Hver á til dæmis að gefa hagfræð- ingum, sem eru jú sérfræðingar í hagfræðiútreikning- um, nauðsynlegar forsendur við þeirra útreikninga? Eru peningalegar stærðir rétti mælikvarðinn á hvað skal gera? Heilbrigðisráðuneytið virðist leggja mikið upp úr hagfræðiútreikningum þegar taka skal ákvarðanir um hvaða læknisverk á að vinna því nokkrir hagfræð- ingar sitja í samninganefnd heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytis og Tryggingastofnunar. Þessi nefnd hefur hins vegar ekki lækni sem nefndarmann heldur einungis sér til ráðuneytis. Það er hins vegar erfiðara að kveða upp úr um hverju á ekki að sinna. Getum við læknar eitthvað af þessu lært? Eigum við til dæmis að tileinka okkur í ríkara mæli lögmál hagfræðinnar í okkar samningavinnu? Viss skilning- ur er víðar í þjóðfélaginu á mikilvægi hagfræðilegra útreikninga í „heilsugeiranum", eins og nýstofnuð heilsuhagfræðideild Háskóla íslands er dæmi um. Ef við viljum tala við samninganefnd rikisins á tungu- máli sem þeir skilja þyrftum við að vinna meiri hag- fræðilega heimavinnu! Það er mín skoðun að með sífellt fleiri samningum sem læknar gera við ríkið því meiri ástæða sé til þess að læknar hafi sína eigin hagdeild. Það er ekki bara sérfræðilæknasamninganefnd LR sem semur um sér- fræðilæknaþjónustu heldur vaxandi fjöldi sjálfstætt rekinna fyrirtækja lækna. Nú stefnir einnig í að ein- stök sérfræðifélög lækna eins og skurðlæknafélagið fari með samingsgerð við Landspítala fyrir sína fé- lagsmenn. Hugmynd að skipuriti fyrir hagdeild lækna er til dæmis: Svona sérfræðivinna kemur til með að kosta pen- inga og mér finnst að heildarsamtök lækna LÍ og stærsta aðildarfélagið, LR, eigi að borga. Hvernig sá kostnaður skiptist nákvæmlega er samningsatriði milli þessara félaga. Læknar vilja hafa opið tékkhefti á ríkissjóð eins og einn samninganefndarmanna nkisins kallar það. Þeir liggja svo undir þrýstingi frá lyfsölum um að ávísa dýrum lyfjum. í vor var haldin ráðstefna í heilsuhag- fræði að undirlagi ráðgjafaþjónustu Deloitte & Touche og lyfsala frá samtökum verslunarinnar. Þar tóku til máls ýmsir sérfræðingar innlendir og erlendir hagfræðingar, lyfjafræðingur og fleiri. íslenskur hjúkrunarfræðingur var meðal frummælenda en eng- inn íslenskur læknir flutti erindi og finnst mér slæmt að við séum ekki tillögufær á þessu sviði. Mér finnst þannig að margar ástæður séu fyrir hendi sem rök- styðja að við eigum að koma okkur upp eigin hag- deild. Hagdeild Launaútreikningar Kjaraþróun lækna Ráðgjöf við samningagerð Heilsuhagfræði Kostnaðargreining á læknisverkum Vinna að stefnumótun með samtökum lækna Sala á hagfræði- þjónustu við sjálfstætt rekin fyrirtæki í heilbrigðisgeira sem eru rekin af aðilum utan LÍ 44 Læknablaðið 2004/90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.