Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2004, Side 51

Læknablaðið - 15.01.2004, Side 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PÓLITÍK OG HEILBRIGÐI við sjúklinga eða starfsmenn spítalans. En hver er þá tilgangurinn með því að samþykkja þessi fjárlög? Var það gert til þess að geta leikið jólasvein síðar meir eins og ávallt hefur gerst þegar spítalinn bregst við þverrandi fjárframlögum? Ætlar Jón Kristjánsson (eða hver sem kann að verða heilbrigðisráðherra næsta haust) að slá sig til riddara með því að bjarga tæknifrjóvguninni fyrir horn í þriðja eða fjórða sinn? Ég held að þessi ákvörðun sé sama marki brennd og stór hluti afskipta stjórnmálamanna af heilbrigðis- málum undanfarin ár. Menn gefast upp fyrir því að setja sig inn í málin, stinga hausnum í sandinn og vona að allt reddist einhvern veginn, að einhver ann- ar taki þennan beiska kaleik frá þeim. Fyrir því er raunar alllöng hefð hér á landi. í viðtali sem ég átti við Þorvald Ingvarsson lækn- ingaforstjóra á Akureyri hér í blaðinu í vor sagði hann sögu af Gulu skýrslunni sem svo var nefnd en hún var afrakstur nefndarstarfs undir forystu Guð- jóns Magnússonar þáverandi aðstoðarlandlæknis og fjallaði um framtíðarskipan sjúkrahúsa á lands- byggðinni. Þegar skýrslan birtist einhvern tíma á ní- unda áratugnum vöktu tillögur nefndarinnar athygli því þær fólu í sér verulegar tilfærslur á heilbrigðis- þjónustu, það átli að loka skurðstofum hér, hætta að taka á móti börnum þar og svo framvegis. Stjórn- málamenn þess tíma jesúsuðu sig og fleygðu skýrsl- unni út í horn. Þetta skyldi aldrei verða. En hver er svo staðan nú, um það bil fimmtán ár- um síðar? Jú, það er búið að framkvæma flest það sem skýrslan vonda lagði til. Það hafa bara ekki verið teknar neinar pólitískar ákvarðanir um breytingarn- ar. Ákvarðanirnar hafa oftast verið í höndum lækna og stjórnenda spítalanna en hlotið formlega blessun stjórnvalda eftir á. Er ekki það sama uppi á teningnum núna? Eru stjórnmálamenn ekki einfaldlega að varpa ábyrgð- inni á niðurskurðinum yfir á annarra herðar, lækna, stjórnenda og annarra starfsmanna spítalans? Svari nú hver fyrir sig. Standa vörð um hvað? Á landsfundi Samfylkingarinnar í haust varpaði for- maður flokksins, Össur Skarphéðinsson, því fram að tími væri kominn til að flokkurinn mótaði sér nýja stefnu í heilbrigðismálum. Greinilegt var að hann vildi rífa flokkinn upp úr þeim skotgröfum sem hann hefur setið fastur í frá því Sighvatur Björgvinsson varð að hopa með hugmyndir sínar um tilvísanakerf- ið. Meðal þess sem Össur nefndi í ræðu sinni var að einkarekstur gæti átt rétt á sér í heilbrigðiskerfinu, svo fremi ríkið væri ávallt kaupandi þjónustunnar. Það þyrfti hins vegar ekki endilega að vera seljandi hennar í öllum tilvikum. Þetta kom mörgum á óvart, jafnvel í Samfylking- unni. Það var líka fróðlegt en ekki að sama skapi Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Læknablaðið ákvað að reyna að komast að því hvert umfang einkarekstr- arins í íslenska heilbrigðiskerfinu er en rak sig fljótlega á að um það liggja ekki fyrir neinar aðgengilegar upplýsingar. í staðtölum Tryggingastofnunar ríkisins fundum við töflu yfir útgjaldaflokka sjúkratrygginga og tókum úr henni þá þætti þar sem einkarekstur kemur mikið við sögu. Útgjaldaflokkar sjúkratrygginga 2002 í niilljónum króna Lyfjakaup 5.441 Sérfræðilæknar 2.435 Hjálpartæki 1.108 Tannlæknar 981 Sjúkra-, iðju- og talþjálfun 968 Almenn læknishjálp 306 Sjúkraflutningar innanlands 156 Þetta gerir um það bil 11,3 milljarða króna sem samsvara tæplega tveimur þriðju hlutum allra útgjalda sjúkratrygginga árið 2002 (17,9 milljarðar). Þetta hlutfall hefur heldur hækkað frá árinu 1991 þegar það var rúmlega 6 milljarðar af 10,6 milljarða heildarútgjöldum sjúkratrygginga. Heildarút- gjöld ríkisins til heilbrigðismála voru hins vegar 65 milljarðar króna árið 2002. Einkarekstur heilbrigðisstarfsfólks Sérfræðilæknar með stofurekstur (2002: 346 læknar, 468 þúsund komur, 18,6 milljónir eininga) Heilsugæsla (svo sem í Lágmúla og væntanleg stöð í Salahverfi) Læknavaktin (44.000 móttökur og 7000 vitjanir á ári; nettókostnaður 210 milljónir króna) Heimilislæknar utan heilsugæslustöðva (11 talsins, ný starfsleyfi ekki veitt í 15 ár) Sjúkra-, iðju- og talþjálfarar Tannlæknar og -smiðir Hjúkrun (svo sem í Liðsinni og Karítas) Einkarekstur fyrirtækja Hjúkrunarheimili og heimili aldraðra (Sóltún, Grund o.fl.) Seljendur og framleiðendur lyfja, lækninga- og hjálpartækja Ræsting (Securitas) Ýmiss konar tölvu- og tækniþjónusta Rekstur fclagasamtaka Krabbameinsfélagið (Krabbameinsskrá, leitarstöð) NLFI í Hveragerði Sjálfsbjargarhúsið Reykjalundur SÁÁ Rauði krossinn (sjúkraflutningar, sjúkrahótel ofl.) Hrafnista Sjúkraflug Þessi listi er engan veginn tæmandi því eflaust hefur okkur sést yfir ýmis- legt sem fellur undir skilgreininguna einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hins vegar sýnir þetta glögglega að sá rekstur er ekki svo lítill að vöxtum og hann hefur aukist hröðum skrefum undanfarin ár. Læknablaðið 2004/90 51

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.