Læknablaðið - 15.03.2008, Qupperneq 3
Félag heimilislækna 30 ára
Félag íslenskra heimilislækna fagnaði 30 ára afmæli sínu 2. febrúar í húsakynnum Læknafélags
Islands í Hlíðasmára. Fjöldi manns sótti hófið og naut glæsilegra veitinga og kynningar á
nýrri marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum. Einnig upplýsti formaðurinn Elínborg
Bárðardóttir að félagið hygðist á næstu þremur árum verja allt að 50 milljónum króna til rann-
sókna í heimilislækningum.
Á myndinni má sjá kempurnar Pál Sigurðsson fyrrverandi ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðu-
neytinu, Örn Bjarnason lækni og fyrrverandi ritstjóra Læknablaðsins og Stefán B. Matthíasson
heimilislækni á Seltjamamesi.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARI NS
í gegnum tíðina hafa viss fyrirbæri dúkkað itrekað upp
sem tákngerving i menningarsögunni þegar fólk hefur
hugleitt mannlegt eðli. Hestar koma við sögu í fjölmörgu
samhengi, dæmisögum, goðsögum og dulspeki og
sennilega eru ekki mörg
viðfangsefni eins hlaðin
ólíkum tengingum
í jafnmargar áttir.
Gunnhildur Hauksdóttir
(f. 1972) sækir i þennan
óþrjótandi brunn á
sýningu sinni í Listasafni
Reykjavíkur nú í mars sem
í aðdragandanum hefur
borið vinnutitilinn „Tamdar
skepnur”. Á tveimur
svífandi tjöldum sýnir hún
myndbönd af hestum sem
hún hefur tekið upp við ýmsar aðstæður, úti í náttúrunni,
staka og i hóp, við tamningar eða að leika listir sínar í
hringleikahúsi. Hún myndar ýmis hrossakyn eins og til
að mynda hinn Ijósa Andalúsiuhest sem bregður fyrir á
forsíðu Læknablaðsins að þessu sinni. Gunnhildur leggur
áherslu á hversu kvik skepnan er, á stöðugu iði, stökki
og leik. Þannig er dýrið rokið hálfa leið út úr rammanum
á kyrrmyndinni sem hér um ræðir og er til marks um
að hún hefur ekki full tök á því að fanga viðfangsefnið.
Eins og hún reynir að ná hestunum í mynd sýnir hún í
myndböndunum margháttaða viðleitni manna til þess að
beisla eðli þeirra. Með því að sýna bæði náttúrulega og
iærða hegðun virkjar hún allar þær hugsanlegu tengingar
við hesta sem kunna að búa meðal áhorfenda og býður
þeim að varpa á verkið og upplifun sína af því. Þá er
það ekki síst opið fyrir þeirri túlkun
að dýrin séu fulltrúar manna og
að í þeim megi merkja frumþarfir
og -eiginleika sem liggja báðum
tegundum til grundvallar. Samtímis
er áhorfendum frjálst að útiloka alla
leit að merkingu í verkinu og dást að
þessum fallegu skepnum. I grænleitri
lýsingunni á Andalúsíuhestinum
verður veran draumkennd,
villt og óráðin en í flóðljósum
hringleikahússins er sjónum beint
að nákvæmustu smáatriðum og
öguðu sambandi manns og dýrs.
Gunnhildur hefur í gegnum tíðina leitast við að skilgreina
og þaulskoða frumkenndir og tilfinningar, til að mynda
móðureðli, réttlætiskennd eða ást. Um leið leitar hún
fanga í fornri náttúrutrú og vísar til þess að samband
manns og náttúru sé grundvallarþáttur í mannlegri tilvist.
Hestarnir verða þannig myndbirting þeirrar tilhneigingar
mannsins að beisla náttúruna en í verkinu ýjar hún að því
að það sé síður en svo hlaupið að því.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm, og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamaður/Ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Gutenberg ehf.
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2007/93 179