Læknablaðið - 15.03.2008, Qupperneq 65
UMRÆÐUR O G FRETTIR
ÆVISÖGUR LÆKNA
Minningarorð um
Brian S. Worthington
Mynd birt með leyfi RSNA í
Bandaríkjunum.
Þann 9. desember sl. lést á heimili sínu nálægt
Nottingham í Bretlandi íslandsvinur og heið-
ursfélagi í Félagi íslenskra röntgenlækna (FIR),
Brian Worthington, fyrrum yfirlæknir og prófess-
or við röntgendeild Queens Medical Center og
University of Nottingham í Bretlandi, á sjötugasta
aldursári. Brian var hress og skemmtilegur maður,
vel gefinn, athugull og með leiftrandi augnaráð.
Hann var íslandsvinur og hafði mikinn áhuga
á landi og þjóð, sögu þess og menningu. Hans
fyrsta ferð til íslands var í apríl 1980 og var hann
þá búinn að bjóða okkur í FIR að flytja erindi um
fyrstu rannsóknir þeirra í Nottingham með seg-
ulómun. Eftir það kom hann hingað til lands á
hverju ári og oft tvisvar. Hann var með ísland á
heilanum eins og hann sagði gjarnan sjálfur. Hann
var oftast með erindi í farangrinum og flutti mörg
þeirra hjá FIR en einnig fyrir lækna á spítölunum
næstu árin. Hann var gerður að heiðursfélaga í
Félag íslenskra heimilislækna
Vísindasjóður Félags
íslenskra heimilislækna
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna úthlutar styrkjum til vís-
indarannsókna tvisvar á ári. Umsóknir fyrir vorúthlutun 2008 þurfa að
berast sjóðnum fyrir 20. apríl næstkomandi og ber að skila rafrænt
til magga@lis.is á þartilgerðum eyðublöðum ásamt rannsóknar- og
fjárhagsáætlunum, eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama
verkefnis er að ræða.
Lög vísindasjóðs og eyðublöð er að finna á heimasíðu FÍH. Nánari
upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson, johsig@hi.is
Stjórn Vísindasjóðs FÍH
Félagi íslenskra röntgenlækna 1986. Hann var
heiðursgestur og fyrirlesari á hátíð félagsins
1995 þegar haldið var upp á 100 ára afmæli rönt-
gengeislans.
I ferðum sínum á sumrin ferðaðist hann allt í
kringum landið og kynntist landi og þjóð mjög
vel. Hann hélt alltaf góðu sambandi við þá röntg-
enlækna sem hann kynntist í upphafi og kom
gjaman í heimsókn. Stundum var hann einn í ferð-
um sínum til Islands en eiginkona hans Margaret
var líka oft með. Hann lærði íslensku, sótti um
skeið tíma hjá Guðmundi Kristmundssyni í
Nottingham og stundaði sjálfsnám. Hann las
íslensku, skildi töluvert talað mál og var ófeim-
inn að taka menn tali hér á landi. Hann var fjöl-
menntaður maður með nám að baki í ekki einasta
læknisfræði heldur einnig eðlisfræði, stærðfræði
og fornleifafræði. Tal hans einkenndist af víðsýni,
mikilli þekkingu og reynslu, áhuga á því sem aðrir
vom að gera og einlægni. Hann setti sér háa staðla
í starfi og tók því ekki þegjandi ef út af var brugðið
hjá öðrum.
Virtasta framlag hans til læknavísindanna var í
tengslum við uppfinningu segulómunar. Brian var
virkur þátttakandi í þróun segulómunar sem hófst
ekki síst við Nottingham-háskóla þar sem mikið af
grunnrannsóknunum fór fram í læknisfræðilegri
eðlisfræði á milli 1974 og 1979. Brian kom til skjal-
anna þegar klínískar rannsóknir hófust fyrir alvöm
í apríl 1980. Hann var einn af höfundum fyrstu
klínísku greinar sem birt var um segulómun sem
sýndi meinsemd í höfði. Þar var megin kostum
segulómunar sem myndgreiningartækni í fyrsta
skipti lýst. Á næstu tveimur árum birtust samtals
átta greinar í American Journal of Neuroradiology
sem lögðu grundvöll að því hvernig hægt var að
nota þá segulómun og greiningu og koma með
því í veg fyrir inngrip sem til þessa höfðu verið
nauðsynleg, svo sem vegna æxla í heiladingli,
vegna lítilla taugaæxla £ miðeyra, vegna æðagúla
og æðavanskapnaða innan höfuðsins ásamt því að
sýnt var fram á notagildi aðferðarinnar í sambandi
við meinsemdir í augntóttum. Þessu fylgdu rann-
sóknir á segulómun í hjarta- og beinasjúkdómum,
þar sem rannsóknahópurinn í Nottingham hafði
forystu. Þá sýndi Nottingham-hópurinn fyrst fram
á notagildi segulómunar í sambandi við sjúkdóma
LÆKNAblaðið 2008/94 241