Þjóðlíf - 01.04.1988, Blaðsíða 20

Þjóðlíf - 01.04.1988, Blaðsíða 20
 Læknarnir álitu mig móðursjúka Vegna greinar í janúartölublaði Þjóðlífs um líðan reykvískra kvenna fyrir tíðír, kom á daginn að fjölmörg- um konum virðist reynast mjög vel að taka reglulega inn blómafrjókorn. Þær sem hafa látið til sín heyra í þessu sambandi segja að fyrirtiðaspenns, verkir og truflun á hormóna- starfsemi hafi nánast horfið eftir reglulega inntöku blómafrjókorna í nokkrar vikur. Á ráðstefnu sem hérlendir dreifiaðilar HIGH DESERT blómafrjókornanna héldu á dögunum, kom stór hópur fólks og tjáði síg um hver áhrif neyslan hefði á líkamlegt heilsufar, andlegt þrek og úthald. Við gefum fertugri konu, Guðbjörgu Jóhannesdóttur orðið. Hún segir frá píslar- göngu sinni um heilbrigðiskerfið og hvernig hún vann bug á veikindum sínum. Ég var alltaf með verki fyrir blæðingar og hafði haft frá unglingsárum. Fyrir níu árum var mér sagt að þessir verkir myndu hverfa með tíð og tíma og barnsfæðingum, verkirn- ir hurfu ekki heldur jukust. Ég fór að hafa heiftarlega verki tveimur dögum áður en blæðingum lauk sem jukust og vörðu í allt að tíu daga. Ég reyndi að leita mér lækninga og fór til kvensjúdómalæknis, ég var lögð inn á sjúkrahús í kviðspeglun. Þar var mér sagt að ég væri með blöðrur á leginu sem orsökuðu þessa verki, og lítið væri hægt að gera. Tíminn leið og eftir margar skoðanir og heimsóknir til lækna og á sjúkrahús var mér sagt að ég yrði að sætta mig við þetta þangað til ég kæmist á breytingarskeiðið. Ég fékk verkjastillandi lyf, Lobac sem virkar líka afskaplega deyf- andi. Ég var gjörsamlega óvinnufær hvort sem var og betra var að vera deyfð en kvalin. Ég var mjög ósátt við þessi málalok og missti alveg trú á lækna. Mér fannst eins og þeir álitu mig móðursjúka ef ég leitaði til þeirra í vandræðum mínum. Næst fór ég til svæðanuddara og byrjaði að taka inn náttúruvítamín og þannig fékk ég fljótlega bata, en aðeins tímabundið. Ég varð að vera stöðugt í svæðanuddi tvisvar í viku, ef vel átti að vera. Á þessu ímabili eignaðist ég barn, en verkirnir löguðust ekki þrátt fyrir fullyrðingar lækna. Þá ákvað ég að reyna hormónalyf, en ekki tók betra við þar því ég steyptist út í kýlum og endaði með þau hjá fegrunar- lækni og vildi láta skera þau burt. En hann sendi mig aftur til kvensjúkdómalæknis sem benti mér á að hormónalyfin orsökuðu kýlin svo ég hætti að taka þau. Svona gekk þetta fyrir sig þangað til svæöanuddarinn benti mér á HIGH DESERT sem ég hef nú tekið í þrjú ár og hef verið verkja- laus þann tíma nema ef ég hef verið mjög þreytt. Ég þarf ekki lengur verkjalyf og hef ekki farið til kvensjúkdóma- læknis í tvö ár enda ekki haft ástæðu til. Fleir konur tóku í sama streng og voru þess fullvissar að HIGH DESERT blómafrjókorn hefðu hjálpað þeim í vanlíð- an vegna blæðinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.