Þjóðlíf - 01.04.1988, Blaðsíða 70
ÍÞRÓTTIR
Gríðarleg uppbygging. Suður-Kóreumenn hafa lagt allt í sölurnar til að skipuleggja leikana sem allra best og m.a. byggt fjölmörg
gríðarstór íþróttamannvirki: „Sækjast eftir aukinni virðingu".
öryggi erlendu gestanna, verður mætt með
fyllstu hörku. Skiptir þá ekki máli hvort ógn-
in kemur að norðan eða að innan, eins og
Park Seh-Jik komst að orði. Hann sagði að
lögregla og her í Seoul hefði samvinnu við
ýmsa erlenda og alþjóðlega aðila í sambandi
við öryggi gesta á leikunum. Hann sagði að
hvorki væri ástæða til að óttast ódæðisverk
innlendra hryðjuverkasveita né erlendra, en
hann taldi að eins og alltaf gætu slys átt sér
stað.
Pað er ljóst að með þessum ólympíuleik-
um sækjast SuðurKóreubúar eftir auknum
tengslum við þjóðir heims og ekki síður eftir
aukinni virðingu. Séu efnahagslegar fram-
farir mældar í hagvexti og framleiðni þá hafa
þær verið með eindæmum í landinu síðasta
einn og hálfan áratug eða svo. Margir tala
hiklaust um eitt helsta efnahagsundur ver-
aldar. Pað hefur hins vegar reynst Suður-
Kóreubúum auðveldara að krækja sér í
gjaldeyri iðnríkja Vesturlanda en að öðlast
virðingu þeirra. Ólympíuleikarnir eru þeirra
tækifæri til þess að sýna íbúum heims hversu
þeir eru megnugir og enn sem komið er lofar
undirbúningurinn góðu.
Ásgeir Friðgeirsson/Lundúnum
una til landsins. Park Seh-Jik neitaði ekki
þessum orðrómi en sagði að Suður-Kóreu-
búar legðu á það mikla áherslu að þarna
gætu allir átt áhyggjulitlar stundir í öruggu
umhverfi.
Eins og sjá má af hinum ýmsu viðbrögðum
Park Seh-Jik, þá hafa suður-kóreönsk yfir-
völd tekið þá stefnu að binda ekki hendur
sínar að neinu leyti og þau vilja hafa sem
flestar leiðir færar við að leysa hin óteljan-
legu vandamál sem fylgja stórviðburðum af
þessu tagi.
Öryggismál eru ofarlega í hugum fólks
vegna ólympíuleikanna í Seoul og er það
tvennt sem einkum veldur því. I fyrsta lagi
óttast margir hryðjuverk norður-kóreanskra
aðila, sérstaklega eftir að uppvíst varð að
einn slíkur hópur sprengdi á flugi eina suður-
kóreanska farþegaflugvél með á fjórða
hundrað farþega innanborðs.
í öðru lagi telja margir að til átaka geti
komið innanlands vegna hins ótrygga stjórn-
málaástands þar, en á síðasta ári flykktust
námsmenn og hópar millistéttarfólks út á
götu og kröfðust lýðréttinda. Það var auð-
heyrt á máli Park Seh-Jik, sem í þrjátíu ár
gegndi herþjónustu og er nú í röðum áhrifa-
mestu manna í landinu, að allri ógnun við
70