Þjóðlíf - 01.04.1988, Blaðsíða 60
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Þeir líta á sig sem riddara hraðbrautarinnar — eða japanska samuraia. Áður en nýr
meðlimur er vígður í hópinn þarf hann að ganga í gegnum langan undirbúningstíma.
Þannig er tryggt að Englar um allan heim eru steyptir í sama mótið.
að Vítisenglarnir verðu frístundum sínum til
að hjálpa gömlum konum yfir götu.
Bræðralag úr stríðinu
Vítisenglarnir eiga rætur sínar að rekja til
ársins 1948, en þá var bræðralagið Hell’s
Angels stofnað af fyrrverandi hermönnum
sem verið höfðu í sprengjudeild með sama
nafni. Þegar stríðinu lauk fannst þeim
borgaralegir lifnaðarhættir frekar leiðigjarn-
ir og þcir söknuðu bræðralags sem þeir
höfðu upplifað í stríðinu. Þeir óku í hópum
um hraðbrautir Kaliforníu á stórum Harley
Davidson vélhjólum, en það var það næsta
sem komst minningunni um sprengjuflugvél-
ar.
Sameiginleg var þeim hugmyndin um
frjálst og áhættusamt líf en öryggi þjóðfélags-
ins var þeim eitur í beinum. Til að tryggja að
allir Englar yrðu ávallt Englar sem treyst-
andi væri á undir öllum hugsanlegum kring-
umstæðum kröfðust þeir langs reynslutíma-
bils áður en aðild fékkst að félagsskapnum.
Bræðralagið breiddist út um allan Vestur-
heim, frá Alaska til Argentínu og frá Banda-
ríkjunum til Ástralíu. Goðsögnin um Vítis-
englana óx jafnharðan og gátu þeir að mörgu
leyti kennt sjálfum sér um. Goðsögnin fól
m.a. í sér hóp eiturlyfjasala á vélhjólum,
skítuga og hálfbilaða ofbeldisseggi sem ekk-
ert þekktu til ástarinnar nema í formi nauðg-
unar.
Riddarar
hraðbrautarinnar
Menn verða ekki Vítisenglar á einni nóttu.
Eins og áður var getið er fyrst langur aðlög-
unartími í útjaðri bræðralagsins. Menn
gegna frekar lítilvægu hlutverki og eru kall-
aðir „hangarounds". Þá eru þeir hæfustu
valdir úr og kallaðir „prospects". Þeim leyf-
ist að bera einkennisklæði Hell’s Angels, en
þó án annars bakmerkis en „MC South DK“,
þó með sama letri og bakmerki alvöru
bræðra. Þeir sem eru í biðstöðu stofna oft
eigin klúbba. Nafngiftir þeirra gefa hug-
mynd um hugarfarið sem að baki liggur:
„Morticians" (Útfararstjórarnir), „Biack
Sheep" (Svörtu sauðirnir) eða jafnvel „Filt-
hy Few" (Sóðarnir fáu). Nafngiftir og slag-
orð þeirra eru yfirleitt á ensku.
Þegar allir gömlu félagarnir hafa veitt
samþykki sitt er„ prospect" tekinn inn í
klúbbinn. Þannig er tryggt að Englar um
allan heim séu steyptir í sama mótið. að þeim
sé hægt að treysta fullkomlega og að þeir
verði félagar um aldur og ævi. Fyrir utan-
aðkomandi er erfitt að geta sér til um hvað
aðild felur í sér. Þó virðist vera að Englarnir
upplifi sjálfa sig sem eins konar riddara hrað-
brautarinnar eða eins og japanska samuraia.
Deildir Hell’s Angels hafa ýmsum skyld-
um að gegna hver í sínu landi. Fyrst og
fremst eiga þær að bera höfuð og herðar yfir
önnur félög af svipuðu tagi. Yfir þeim á að
vera ákveðinn stíll. Þeir mega ekki haga sér
eins og óagaðir rónar með ofbeldishneigðir,
heldur eins og hópur ærukærra karlmanna —
eins og riddarar.
„Árið 1977 mynduðu fjórir vélhjólaklúbb-
ar bandalag. Þrátt fyrir ólíkan uppruna áttu
þeir eina brennandi ósk. Að gerast aðili í
hinu alþjóðlega bræðralagi „Hell's Angels
MC“. Ferðin var löng og mannfallið mikið.
en þeir öðluðust að lokum réttinn til að bera
hið eftirsótta merki á bakinu með stolti".
Þannig segir Carlo frá, en hann er forseti
Hell’s Angels í Danmörku. Danirnir fengu
aðild á nýársnótt 1980 í Sviss.
í Danmörku eru til fleiri vélhjólahópar en
Hell’s Angels. Einn þeirra hefur verið að
sperra sig gagnvart Englunum. Heitir hann
Bullshit. Englarnir og Bullshit geta báðir
státað af sakavottorðum sem hljóða upp á
þjófnað. hilmingu, innbrot, að hafa eiturlyf
undir höndum, ofbeldi, manndráp. morðtil-
raunir svo notuð séu nokkur þeirra nafna
sem dómskerfið notar um misþyrmingar og
limlestingar á náunganum. Þó er sá munur á
að enn sem komið er hefur enginn Engill
verið dæmdur fyrir eiturlyfjasölu né ofbeldi á
saklausum eftir að hann gerðist Engill. Nú er
svo komið að einn Engill hefur verið ákærð-
ur fyrir sölu á 4 kg af amfetamíni. Við hús-
rannsókn í desember 1987 fann lögreglan 400
g af amfetamíni og hervélbyssur í húsi
nokkru þar sem 16 manns voru viðstaddir,
þar af 3 englar. Tveimur þeirra var sleppt
lausum en sá þriðji bíður nú dóms.
Bullshit eru aftur á móti þekktir fyrir hass-
verslun og tilviljanakennd ofbeldisverk. Þótt
aðrir vélhjólatöffarar séu kallaðir rokkarar
borgar sig ekki að ávarpa Englana á þann
hátt.
Stríð
Haustið 1983 féllu fyrstu fórnarlömb
stríðsins milli Vítisenglanna og Bullshit. í
fullum skrúða óðu fjórir Bullshitfélagar uppi
á krám sem Englarnir vöndu komur sínar á.
Þetta var brot á samkomulagi sem þeir höfðu
gert sín á milli. Englarnir gerðu fjóra menn
út af örkinni til að sporna við þessum átroðn-
ingi. Þetta endaði í slagsmálum á veitinga-
staðnum „Söpromenaden". Tveir menn
Bullshit létu lífið og einn stórslasaðist. Þrír
Englar voru handteknir og var einn þeirra
dæmdur til 16 ára fangelsisvistar. Bræður
hvaðanæva að vöktu yfir réttarhöldunum og
settu svip á borgina á meðan á þeim stóð.
Eftir þetta hafa nokkrir ungir menn úr stuðn-
ingshópum Englanna mátt kveðja þennan
heim. Tveir forsetar Bullshit og þrír óbreytt-
ir félagar ásamt saklausum vegfarenda, sem
átti leið framhjá af tilviljun hafa verið skotnir
til bana, þar af tveir með vélbyssum.
Kvikmynd ekki dagblað
Ib Makwarth er danskur kvikmyndagerð-
armaður sem þekktur er fyrir heimilda-
myndir sem fela í sér þjóðfélagsgagnrýni.
Hann hefur m.a. tekið að sér verkefni fyrir
verkalýðsfélög. Fer orð af honum sem óháð-
um sósíalista. Mynd hans „Hell’s Angels —
gægst inn í heim Englanna" (Telefilm,
K.höfn 1986) talar sínu máli.
„Orðið er einungis gefið félögunum sjálf-
unr auk eins sem óskar eftir því að gerast
félagi. Hvers vegna er þetta form notað í
myndinni?“
„Allir furða sig á þessu. En ég geri kvik-
myndir ekki blöð. Þó að myndir mínar séu
alltaf pólitískar er kvikmyndagerð ekki sama
og blaðamennska. Ég vildi beina hljóðnem-
anum að Englunum til að gefa þeim orðið á
sama hátt og valdhöfum er gefið það. Meiri
hluti fréttamanna beinir hljóðnemanum að
valdhöfum", segir Makwarth. „Ég vildi létta
af þeim goðsögninni og sýna þá eins og þeir
vilja sjálfir vera, eða halda að þeir séu. Samt
er eins og fólk einblíni á viðfangsefnið og
missi sjónar á innihaldinu".
60