Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 20

Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 20
20 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Í stuttu máli skúli sEttist Í forstjÓrastÓlinn nýr spÍtali fyrir Skúli var stjórnar for ­maður flug fé ­ l ags ins. Hann tók þar við af viðskipta fé­ laga sínum til margra ára, Baldri Oddi Bald ­ urs syni. Baldur var fram kvæmdastjóri Títans áður en hann settist í forstjórastól Wow air. Sam hliða for stjóra skipt ­ unum kemur Skúli með 500 milljóna nýtt hlutafé inn í Wow air og sagði hann við Viðskiptablaðið að hann væri ekki að henda góð um peningum á eftir vondum með því að setja meira fé í Wow air sem stofnað var sl. haust og hóf flug til Evrópu síðastliðið vor. Títan er stærsti eig andi MP banka og er sömu ­ leið is stór hluthafi í Ad­ vania. Katrín Ólafsdóttir, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík, sagði á morgunverðarfundi Sam ­ taka verslunar og þjónustu og Samtaka heilbrigðisfyrirtækja að kostnaður við byggingu fyrsta áfanga nýs Landspítala við Hringbraut yrði aldrei 45 millj arðar króna, eins og áætlað væri í nýju fjárlagafrumvarpi, heldur allt að 91 milljarður. Þegar annar áfangi bættist síðan við gæti endanlegur kostnaður orðið 135 milljarðar króna. Fundurinn bar yfirskriftina: „Þjóðin byggir spítala – feilspor eða fjárfesting til framtíðar?“ umtöluðustu forstjóraskipti síðustu mán­ aða eru örugglega þau að Skúli Mog ­ ens en, aðaleigandi fjárfest ingar fé lagsins títans og flugfélagsins Wow air, skuli hafa sest í forstjórastól flug félagsins. Hann er dýr stimpillinn þegar kemur að stimpilgjöldum. Fréttablaðið sagði frá því að áætlað væri að stimilgjöld á tímabilinu 2009 til 2013 næmu um 15,8 milljörðum króna. Skúli Mogensen. Katrín Ólafsdóttir, lektor við viðskipta­ fræðideild Háskólans í Reykjavík. Bygging nýs spítala. Risavaxin fjárfesting. Gott pöddusumar 15,8 milljarðar Í stimpilGjöld Þessi fyrirsögn snýst ekki um viðskiptalífið eða stjórnmál á Íslandi. Hún birtist í Morgun blaðinu með frétt um að vegna hlýn andi loftslags hefði „pöddu sumarið“ verið mjög gott. Eftirfarandi var haft eftir Guðmundi Halldórs ­ syni skordýrafræðingi: „Þetta endaði sem töluvert mikið pöddusumar og það var mikil útbreiðsla á nýl egum skaðvöldum. Það átti t.d. við um asparglyttu og birkismugu, eða birki ­ kembu, en lirfur þeirra hafa mjög verið að færa sig upp á skaftið í íslenskri nátt úru á undanförnum árum.“ Stimpilgjöld á húsnæðislán eru 0,4% af fasteigna­mati þeirrar fasteignar sem keypt er. Áætlað er að gjöldin skili ríkissjóði 4,1 milljarði króna á næsta ári. Þeir sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign eru undanþegnir stimpilgjaldinu. Af vanalegum veðskuldabréfum eru greidd 1,5 prósent af fjárhæð bréfsins. Í fréttinni kemur fram að ef skuldari ætlar að færa skuldir sínar yfir til annars fjármálafyrirtækis, sem býður mögulega betri kjör, þarf hann að greiða stimpilgjöld af nýju fjármögnuninni. Þau gera það oft að verkum að flutningurinn verður óhagkvæmur og gjöldin virka því sem samkeppnishindrun. 135 milljarða?

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.