Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 33
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 33
vera með og þau sækjast eftir því að
fá að vera hluti af hópnum. Þar fá allir
viður kenningu, stuðning og hvatningu.
Allir fá verðlaunapening í hópíþróttum,
óháð frammistöðu. Þau sýna hópnum
tryggð, vilja vera meðtekin og virkir
þátttakendur.
Athygli og sjálfstraust – Þessi kyn
slóð hefur fengið mikla athygli hjá
foreldrum, sem hafa verið margfalt
uppteknari við að veita börnum sínum
athygli, hrósa þeim og blása þeim sjálfs
traust í brjóst en kynslóðirnar á undan.
Jöfnuður og „tækifæri fyrir alla“ hafa
að mörgu leyti verið staðreynd fyrir
stóra hópa í samfélaginu. Börn geta
stundað áhugamál og tómstundir að
vild, framhaldsskóla og háskólanám
og fengið til þess mikinn stuðning hjá
foreldrum. Í tómstundum og námi
hafa þau alist upp við að fá útrás fyrir
sköpunargleði, áherslu á framfarir,
stöðugan lærdóm og vöxt og fengið
reglu lega endurgjöf. Þau gera því kröfur
um að vinnustaðurinn standi undir
sömu væntingum.
Að stJÓrNA Y-kYNslÓðINNI
Stjórnendur sem tilheyra kynslóðunum
á undan eiga margir hverjir í erfiðleikum
með að skilja hvernig á að fá þennan hóp
til að langa til að mæta í vinnuna og skila
góðum árangri. Eldri stjórnunaraðferðir
virka tæpast og afleiðingin er sú að
starfshvatningu og starfsánægju skortir.
Frammistaða slaknar, afköst minnka,
fjar vistir aukast og starfsmannavelta
eykst. Óánægja starfsfólks hefur áhrif á
gæði vöru og þjónustu með þeim afleið
ingum að ánægja viðskiptavina dalar.
Stuðningur félagslega kerfisins er mikill
og óttinn við að missa vinnuna er ef til
vill ekki sama ógn og áður var.
En þó að áherslur hafi breyst þýðir það alls ekki að þessa kynslóð skorti
metn að eða hún hafi ekki áhuga á að ná
góðum árangri. Því fer fjarri. Það er því
heilmikið tækifæri fólgið í því að skapa
starfsumhverfi þar sem þessir ein stakl
ingar fá að njóta sín og sýna sína bestu
frammistöðu.
Eitt af því sem stjórnendur sem vilja ná
til þessarar kynslóðar þurfa að gera er
að opna dyr. Stjórnendur þurfa að vera
aðgengilegir, þau eru vön að eiga sam
skipti við hvern sem er, hvenær sem er og
vilja engar hindranir í samskiptum milli
manna. Ritarinn á ekki að halda fólki frá
for stjóranum, heldur hjálpa starfsfólkinu
að ná sambandi við hann.
Sagt er um þessa kynslóð að
hún vinni til að lifa, frekar
en að lifa til að vinna. Hún
skilgreinir sig í meira mæli
út frá því sem hún aðhefst
utan vinnu.