Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 45

Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 45
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 45 Gáttin til útlanda með þumal fingursreglur um að einungis eitt af hverj um tíu sprotafyrirtækjum lifi af. Svona talar hins vegar ekki fólk sem skilur fram taks fjárfestingar. Þá ætti að vera um hugsunarvert að af þeim 75 fyrirtækjum sem hafa kynnt á Seed Forum Iceland hafa 29 þeirra fengið framtaksfjármagn frá ís­ lenskum og erlendum aðilum. Það eru 39% þeirra fyrirtækja sem hafa kynnt. Það er reyndar ótrúlegt á alla mælikvarða því að þau eru fá, ef einhver, fjárfestaþingin sem geta státað af slíku hlutfalli. Áttunda Seed Forum Iceland­fjárfesta þingið var haldið 3. október 2008 og þar voru þrír ráðherrar að undirrita samning um hátækni­ og sprotavettvang Íslands. Eins og gefur að skilja var uppi fótur og fit og ráðherrarnir hvítir í andliti af áhyggjum. Söguna um fjármálakreppu Íslands kunna svo flestir. Við þær aðstæður vildu opinberir aðilar og reyndar flestir stuðningsaðilar Seed Forum Iceland leggja framtakið niður. Auðvitað var nærri ómögulegt að fjármagna Sprotaþing Íslands þegar helstu styrktaraðilar, fjár mála­ stofnanir, voru orðnar gjaldþrota. Þrátt fyrir allan barlóm tók Klak – Ný sköpunarmiðstöð atvinnulífsins á sig mestan kostnað við þingið og hélt verk efninu áfram með dyggri aðstoð Sam taka iðnaðarins, Eyrir In vestments og Ný sköpunarsjóðs atvinnu­ lífsins. Árið 2011 gerðist Arion banki svo aðalstyrktaraðili Seed Forum Iceland. Frá og með fjár festa þinginu 3. október 2008 er búið að halda átta Seed Forum Iceland­þing og hefur 41 íslenskt fyrirtæki kynnt sig fyrir fjár festum. Þegar er búið að fjárfesta í 12 af þessum sprotafyrirtækjum, sem eru 29% þeirra fyrirtækja sem hafa kynnt. Við bestu aðstæður er þetta ótrúlegt hlutfall en við aðstæður fjármálakreppu og þegar doði og þunglyndi hefur einkennt fjárfesta er þetta með ólíkindum. FrAmtAksFJármAGN Tveir framtakssjóðir hafa verið leiðandi í sprotaumhverfinu á Íslandi undanfarin ár. Annars vegar Nýsköpunarsjóður atvinnu ­ lífsins sem var stofnaður árið 1997 og er hluthafi í 38 fyrirtækjum og hins vegar Frum tak sem var stofnaður árið 2008 og hefur fjárfest í 13 fyrirtækjum síðan. Aðrir sjóðir eru reknir af Thule In vest ments, Auður Capital og Eyrir In vest ments. Einnig hafa nokkur fjár fest inga félög sýnt sprota ­ fyrirtækjum auk inn áhuga eins og Investia sem var komið á fót af nokkrum Íslend ing ­ um sem hafa unnið mikið erlendis undan ­ farin ár. Jafn framt hafa bankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki, haft fjárfest ingasjóði sem sumir hverjir hafa fjárfest í nýjum fyrirtækjum en þó mjög takmarkað, þangað til Arion banki fjár festi í tíu sprotafyrirtækjum sem tóku þátt í Startup Reykjavík. Þá hafa nokkrir einstaklingar, sem oft eru kallaðir við ­ skiptaenglar, tekið þátt í að fjármagna nokkur sprotafyrirtæki. Einnig eru til styrkir fyrir nýsköpunarfyrirtæki, þeir stærstu hjá Tækniþróunarsjóði sem hefur um sjö hundruð milljónir til ráðstöfunar. Ef áhugi er á að efla nýsköpunarhagkerfi Íslands er þörf fyrir meira framtaks fjár ­ magn. Og það snýst að mestu um for ­ gangs röðun. Í skörulegri ræðu á þingi demó krata sagði Bill Clinton að Bandaríkin yrðu að fjárfesta í nýjum tækifærum og nýjum fyrirtækjum. Hagkerfi gamla tímans kæmi ekki aftur og það væri mikilvægt að byggja upp nýtt og öflugra hagkerfi. Clinton var að tala um Bandaríkin sem nýsköpunarhagkerfi. Íslendingar þurfa einnig að átta sig á þessu. Draumórarnir eru ekki fólgnir í því að hugsa um tækifæri heldur eru draumórarnir að halda því fram að hægt sé að endurskapa gamla tíma á Íslandi. Til að skapa tækifæri þarf hins vegar að fjárfesta og fjárfesta mikið. Nú er hins vegar staðan að framtaksfjármagn fer þverrandi, Nýsköpunarsjóður hefur einungis takmarkað fjármagn til þess að fjárfesta þangað til hann selur hlut sinn í þeim fyrirtækjum sem hann hefur fjárfest og Frumtak, sem er tímabundinn sjóður, hefur að mestu fjárfest og er að fara yfir í tímabil stjórnunar verkefna og að finna útgönguleiðir. Ef enginn nýr aðili eða nýtt framtaksfjármagn kemur inn á markaðinn mun skapast tómarúm sem getur haft hrikalegar afleiðingar fyrir nýsköpun í landinu og uppbyggingu nýrra fyrirtækja. Það mun grafa undan hagvaxtarmöguleikum þjóðarinnar til lengri tíma litið. „Árið 2011 gerðist Arion banki svo aðalstyrktaraðili Seed Forum Iceland. Frá og með fjár festa þinginu 3. október 2008 er búið að halda átta Seed Forum Iceland-þing.“ Hinn 26. október næstkomandi er sextánda Seed Forum Iceland­þingið. Þrír áhugaverðir fyrirlesarar munu fjalla um framtaksfjárfestingar: Brian Singerman, meðeigandi hjá Founders Fund sem var fram taksfjárfestir í fyrirtækjum eins og Facebook, Spotify og SpaceX, Geir Ove Kjesbu, fram kvæmdastjóri Investinor sem er 80 milljarða króna sprotasjóður í Noregi, og Robin Rowland Hill sem er hjá Beer and Partners á Bretlandi sem er leiðandi í fjármögnun sprota­ og smáfyrirtækja á Bretlandi. Seed Forum Iceland hefur dreg ið til sín fjölda erlendra fjár festa og aðila sem þekkja fram taksfjármagn vel. Það er mikil vægt að kynna íslensk sprota fyrirtæki fyrir erlendum fjárfestum og erlenda fjár­ festa fyrir tækifærum á Íslandi. Ísland er lítið og opið hagkerfi sem þarf erlenda fjárfestingu og þar er ekki síst mikilvægt að draga erlenda fjárfesta að íslenskum sprotafyrirtækjum til þess að opna fyrir þau erlenda markaði. En það er mikilvægt að íslenskir framtaksfjárfestar fjárfesti í sprotafyrirtækjum fyrst til þess að skapa trúverðugleika gagnvart erlendum fjárfestum. Íslenskir fjármagnseigendur ættu að gera það, vegna þess að það er góð fjárfesting og það er fjárfesting í framtíð Íslands. Hinn 26. október næstkomandi er sextánda Seed Forum Iceland-þingið. Þrír áhugaverðir fyrirlesarar munu fjalla um framtaksfjárfestingar: Brian Singerman, Geir Ove Kjesbu og Robin Rowland Hill. Sextánda Seed Forum Iceland-þingið 26. október næstkomandi

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.