Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Auðvelt aðgengi
og frumkvöðlar
S
íðasta vetur stóð Klak – Nýsköp
unar miðstöð atvinnu lífsins fyrir
Nýsköpunarhádegi Klaks með
stuðningi Samtaka iðnaðarins og
Stjórnvísi. Nýsköpunarhádegin
voru haldin á þriðjudögum í hádeginu
allan veturinn, alls tuttugu og sex talsins.
Að jafnaði voru tveir til þrír frum mæl
endur í hverju hádegi, um sextíu alls, og
opnar umræður í kjölfarið. Átta af frum
mælendum voru sérfræðingar að utan. Um
þrjátíu manns tóku þátt í umræðunum að
meðaltali sem þýðir að um átta hundruð
manns hafi tekið þátt í opnum umræðum
um fyrirtækjasköpun, nýsköpun, atvinnu
sköpun og verð mæta sköpun. Þetta voru
lykilaðilar í nýsköp unar umhverfinu og að
langmestum hluta frumkvöðlar. Það sem er
áhugavert við þessa fundarröð er að þetta
voru um fræður um framtíð Íslands.
Nýsköpunarhádegi Klaks snerust í
stór um dráttum um þrjú þemu: A) Ný
sköp unarlandið Ísland. B) Nýsköpun í
at vinnu greinum. C) Árangursrík sprota
fyrirtæki. Það er of langt mál, efni í heila
bók, að segja frá öllu því sem rætt var um
en t.d. ræddi Jeffrey Wieland hjá Face book
um kosti Kísildalsins fyrir sprota fyrirtæki
og benti á að það væri fyrst og fremst
samvinnan og metnaðurinn sem gerði
dalinn að útungunarstöð sprotafyrirtækja;
Magnús Geir Þórðarson, leikhús stjóri
Borgarleikhússins, fjallaði um verð
mæta sköpun og þá sífelldu nýsköpun
sem verður að vera í gangi í leikhúsinu;
Margrét Pála í Hjallastefnuninni ræddi
um samfélagslega nýsköpun og hvernig
hægt er að breyta hugsun og hegðum með
sam eiginlegu átaki; Benedikt Jóhannesson,
ritstjóri Vísbendingar, benti á að árangurs
rík fyrirtæki þurfa að spinna frá sér ný
fyrir tæki til þess að til verði öflugar
atvinnu greinar; Vilborg Einarsdóttir,
fram kvæmdastjóri Mentors, fjallaði um
ný sköpun í menntun og hvernig nýjar
aðferðir í kennslu og við að læra auka
árangur; Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálf stæðis flokksins, sagði að Ísland hefði
enga nýsköpunarstefnu og þyrfti í raun að
fá atvinnustefnu líka til þess að efla mætti
atvinnulífið; Guðjón Már í Oz fjallaði um
hvernig mætti auka framtaksfjármagn á
Íslandi margfalt með því að nýta aflands
krónur í nýsköpunarhagkerfið; Orri
Hauks son, framkvæmdastjóri Samtaka
iðn aðarins, sagði að margt gott hefði verið
gert í nýsköpunarumhverfinu en að hvert ár
ætti að vera ár nýsköpunar, og áfram mætti
telja. Niðurstaðan var fjölbreytt, fræðandi og
skemmtileg umræða um ný sköp un á Íslandi.
Umræðan snerist um framtíð Íslands,
um hvernig nýsköpunarhagkerfið á Ís
landi væri að þróast. Þetta er mikilvæg
umræða vegna þess að hún snýst um
breyt ingar í hagkerfinu, verðmætasköpun,
atvinnusköpun, menntun, skipulag og
áherslur. Hvort sem fólki líkar það betur
eða verr þarf að skapa verðmæti á Íslandi
og það verður ekki eingöngu gert með
því að ganga á náttúruauðlindir. Í raun
hefur Ísland fyrir margt löngu þróast
úr framleiðsluhagkerfi, í þjónustu hag
kerfi og er smám saman að færast í
sérfræð ingahagkerfi. Það þýðir að verð
mætasköpun framtíðarinnar verður að
miklum hluta að snúast um þekkingu og
hvernig á að nýta þekkingu á nýstárlegan
hátt. Það er borin von að hægt sé að búa
til einhvers konar framleiðsluhagkerfi,
nema þá í hátækni, sem á að keppa
við lönd þar sem hráefniskostnaður og
vinnuaflskostnaður er mun lægri og
aðgengi að mörkuðum mun betra. Þrátt
fyrir að þetta ætti að vera augljóst er
ótrúlega lítið talað um, hvort sem er í
stjórn mála umræðunni eða í atvinnu líf
inu, hvernig Íslendingar ætla að byggja
upp sína framtíð og nýta ný sköpun til
verð mætasköpunar. Það var kannski
þess vegna sem mönnum varð á orði að
umræðan sem fór fram í Nýsköp unar
hádegi Klaks væri um ræðan sem ætti að
vera á Alþingi og í stjórna r ráðinu. Þetta var
umræðan um framtíð Íslands.
Þessi umræða um framtíð Íslands mun halda áfram í vetur. Í há deg inu alla þriðju daga í vetur munu
sérfræðingar og áhugamenn um fyrir
tækjasköpun, ný sköpun, atvinnu sköpun
og verðmæta sköpun hittast í Ofanleiti
2, höfuðstöðvum Klaks, og ræða um
nýsköpunarlandið Ísland, nýsköpun í
atvinnugreinum, fram taksfjárfestingar,
nýsköpunarfyrirtæki og árangursrík
sprotafyrirtæki. Tilgangurinn er að skapa
vettvang þar sem hægt er að miðla þekk
ingu og eiga umræður um málefni tengd
nýsköpun. Markmiðið er að upplýsa,
hvetja og ýta á ákvarðanir og aðgerðir. Það
er framtíð í því.
um framtíð Íslands
TexTi: eyþór ívar Jónsson
nýSköpunarhádegi klakS
a. nýSköpunarlandið ÍSland. B. nýSköpun Í atvinnugreinum. C. árangurSrÍk SprotaFYrirtæki
nýsköpunarhádegi klaks snerust í stórum dráttum um þrennt
2011 – haust
C) 6. september: Kísildalurinn – tækifæri fyrir íslensk sprotafyrirtæki?
B) 13. september: Klasar – geta klasar skapað verðmæti á Íslandi?
C) 20. september: Útrás sprotafyrirtækja – hvaða leiðir eru færar?
A) 27. september: Nýsköpunarstefna Íslands – er hún til?
C) 4. október: Samfélagsleg sprotafyrirtæki – er það góður bissness?
C) 11. október: Árangursríkir frumkvöðlar – hvað geta þeir sagt okkur?
B) 18. október: Opin nýsköpun – er eitthvert vit í því?
B) 25. október: Nýsköpun í menntun – er það máttur?
A) 1. nóvember: Nýsköpun í samfélaginu – er þörf fyrir nýsköpun?
B) 8. nóvember: Verðmætasköpun leiklistar – getur leiklist verið nýsköpun?
B) 15. nóvember: Skapandi greinar – hvað er svona skapandi við þær?
C) 22. nóvember: Viðsnúningur fyrirtækja – er viðsnúningur verðmætasköpun?
C) 29. nóvember: Markaðssetning nýjunga – hvað þarf til að skapa buzz?
A) 6. desember : Nýsköpunarlandið Ísland – hvar er það?
2012 – vor
A) 10. janúar: Horfur 2012 – Verður þetta gott ár til verðmætasköpunar?
A) 17. janúar: Kennsla í nýsköpun – Hvernig virkjum við börnin?
C) 24. janúar: Menntun og þjálfun frumkvöðla – skilar hún árangri?
C) 31. janúar: Markaðssetning áhugaverðra fyrirtækja – Hvað virkar?
B) 7. febrúar: Nýsköpun í heilbrigðisgeiranum – Hvernig má skapa aukin
verðmæti úr bættri heilsu?
A) 14. febrúar: Erlendar fjárfestingar í nýsköpun – Eru þær líklegar?
C ) 21. febrúar: Árangursrík fyrirtæki og þátttaka þeirra í atvinnu -
uppbyggingu – Hvað geta þau gert?
C) 28. febrúar: Innganga á erlenda markaði – Hvaða leiðir eru færar?
A) 6. mars: Hugmyndaverkvangur – Hvað þarf til að háskólar, atvinnulíf
og stofnanir skapi saman?
C) 13. mars: Mannauður og nýsköpun– Hvernig hvetjum við fólk til að skapa?
A) 20. mars: Fjármögnun sprotafyrirtækja – Hvernig aukum við framtaks fjármagn?
A) 27. mars: Endurskipað stoðkerfi sprotafyrirtækja – Hvernig verður
sprotastarfsemi efld á Íslandi?
Umræður