Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 55
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 55
Þorsteinn Friðriksson er að hasla sér völl í gerð leikja fyrir snjallsíma og lesbretti.
„Það gætir vissulega hræðslu á Íslandi við að leggja fé í hátækni.“
Plain Vanilla bjó til verðlauna-appið The Moogies fyrir iPhone og iPad. Það gekk vel á meðan appið
var á forsíðu netverslunar Apple. En samkeppnin er hörð í appheiminum og þegar The Moogies fóru
af forsíðu Apple dróst salan saman. Hvernig á lítið fyrirtæki frumkvöðuls að standast samkeppnina?
Svarið er að finna í sprotanum Plain Vanilla Games.
fjöLdaframLeiðir
Handan við öPPin
Ólafur Haraldsson, gagnvirkur hönnuður hjá Designing Reality.
Tölvuleikurinn The Moogies er fyrir lítil börn og hann hlaut meðal ann ars verðlaun sem besti leikur á Norðurlöndum í sínum flokki. En verðlaun og fallegt umtal duga
ekki til að halda sætinu á toppnum. Tískan
breytist, nýir leikir koma og fara og það er
erfitt fyrir sprotafyrirtæki að halda athygli
markaðarins til lengdar. Það þarf að stíga
skrefi framar.
Reynsla Þorsteins Friðrikssonar af heimi
appanna var því sú að einbeita sér að tækni
(á ensku Platform) til að gera leiki fremur en
að leggja allt í einn leik við ef til vill skamm
vinnar vinsældir. Sprotinn Plain Vanilla
Games gengur út á að framleiða slíka lausn
þar sem hægt að gera nýja og nýja leiki án
mikils tilkostnaðar. Þorsteinn segir að hlut
irnir hafi gerst hratt frá því að The Moogies
tók að birtast á skjám snjallsína haustið 2011
og til þess að fyrirtækið er komið með nýja
leiki á mark að undir vörumerkinu QuizUp.
Þetta eru spurningaleikir í rauntíma þar
sem fólk kepp ir um kunnáttu á afmörkuðum
sviðum í gegn um iOS eða Androidsíma.
Eins konar Gettubeturöpp.
Alþjóðlegt umhverfi
Núna eru sjö starfsmenn hjá Plain Vanilla
Games og fyrirtækið hefur starfsemi bæði á
Íslandi og í Bandaíkjunum. Þorsteinn segir
að vegna þess að erfitt er að fá fjárfesta
á Íslandi hafi hann í vor farið vestur til San
Francisco að kynna hugmyndina og nálgast
áhugasama fjárfesta. Áhuginn reyndist vera
fyrir hendi.
„Það gætir vissulega hræðslu á Íslandi
við að leggja fé í hátækni. Þessu er öfugt
farið vestra og þar er, sérstaklega við San
Francsicoflóann, mikið að gerast á þessu
sviði,“ segir Þorsteinn.
Þetta á ekki bara við um áhuga fjarfesta
heldur um öll markaðsmál. Þar við Flóann
eru bæði Google og Apple og án þess að
komast í sambönd við slík fyrirtæki er erfitt
að koma nýjungum á markað.
„Tæknivinnuna er hægt að vinna heima
og þar eru höfuðstöðvarnar en það er
mjög mikilvægt að hitta mennina sem hafa
mest áhrif á þessu sviði. Það gerist ekki
nema vera þar á staðnum,“ segir Þorsteinn
Frið riks son.
Ólafur Haraldsson býður upp á betri raunveruleika
en þennan gráa og venjulega sem við búum við.
Hann hannar nýjan raunveruleika.
BlEkkinGAr
Ólafur Haraldsson, gagnvirkur hönnuður
hjá Designing Reality:
Þorsteinn Friðriksson hjá
Plain Vanilla Games:
Þorsteinn Friðriksson, Plain Vanilla Games.