Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Qupperneq 63

Frjáls verslun - 01.07.2012, Qupperneq 63
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 63 Vaktarinn – öflugt markaðstæki K e l d a n Á hverjum degi birtast yfir sex þúsund frétt ir, greinar og at ­huga semdir á net inu um fyrirtæki, vöru ­ merki og einstaklinga á Íslandi. Vakt arinn aðstoðar notend ur í að fylgjast sjálfvirkt með því sem máli skiptir, jafnt á stórum frétta síðum og prentmiðlum sem og samfélagssíðum, bloggi og spjall vefjum landsins. Vaktarinn er ódýrt markaðstæki sem gerir notendum sínum kleift að mæla árangur markaðsherferða og al ­ mannatengsla fljótt og vel. Ingi björg Ásta Halldórsdótt ir er markaðs­ og sölu stjóri Keldunn ­ ar sem á Vaktar ann. Hún segir að mark aðs hneigð fyrirtæki séu sífellt að átta sig betur á því hversu stóru hlutverki samfélags ­ miðlar gegna í markaðssetningu á vöru og þjónustu: „Á samfélagsmiðlum eru ógrynn­ in öll af skrifum og skilaboðum á Facebook, Twitter, bloggsíðum og öllum öðrum mögulegum síð ­ um sem eru vinsælar. Að ógleymd­ um hefðbundnum frétta síðum eins og t.d. visir, mbl.is, vb.is og pressan.is. Síðustu mánuði hafa fyrirtæki jafnt og þétt aukið notkunina á þessum miðlum til að ná betur til núver andi og væn legra viðskiptavina. Þessi aukna notkun kallar á að fyrirtæki setji fram stefnu um not kun sam félagsmiðla. Hversu oft á að pósta skilaboðum á Face book? Hversu oft á ári ætlar fyrirtækið að kynna nýjungar, af slætti, við­ burði o.s.frv. Hvaða starfsmenn innan fyrirtækis ins eiga að koma þessum skila boð um á framfæri og með hvaða hætti? vöktun vörumerkja Oftar en ekki á sér stað umræða á samfélagsmiðlum um vörur og þjónustu fyrirtækja. Algengast er að neytendur séu að lasta eða lofa ákveðnar vörur og þjónustu. Þá er mikilvægt fyrir þá sem vakta vörumerkin að vera vel á varð­ bergi. Notendur Vaktarans geta því fylgst með umræðu um vörur sínar og þjónustu, keppinautum eða því sem efst er á baugi í samfélagsumræðunni. Notendur Vaktarans geta með þessu móti nýtt sér upplýsingarnar með því að magna upp jákvæða um ræðu eða draga úr neikvæðri um ­ fjöllun. Notendur Vaktarans g eta klæðskerasniðið vöktunina al­ gjörlega eftir sínu höfði og nálg­ ast rauntímaupplýsingar þegar þeim hentar. Í hvert sinn sem orð eða orðasambönd sem notandi leitar að birtast á þessum miðlum grípur Vaktarinn það og birtir í vefviðmóti. Vaktarinn tekur sam­ an þau orð sem fólk tengir við vörumerki og birtir niðurstöður á myndrænan hátt í öflugu viðmóti, gagnvirkum skýrslum og Excel. Þannig geta notendur Vaktarans eytt minni tíma í að lesa blogg og greinar og meiri tíma í bregðast við umræðunni. Fjölmörg íslensk fyrirtæki nýta sér í dag Vaktar­ ann með áskrift en janframt er hægt að óska eftir reglulegum skýrslum. Starfsfólk Keldunnar býður upp á sveigjanlega og góða þjónustu eftir þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Vaktarinn er ódýrt markaðstæki sem gerir notendum kleift að mæla árangur markaðsherferða og almanna­ tengsla fljótt og vel. Hægt er að meta skjótt t.d. hvernig mark ­ að urinn bregst við nýrri vöru og þjón ustu út frá umræðunni sem skapast á samfélagsmiðlunum. Markaðsfólk getur m.a. nýtt sér Vaktarann í því skyni að mæla hvort fyrirtæki skapi og hafi áhrif á umræðuna með aðgerðum sínum. Jafnframt er hægt að fá vísbendingar um árangur mark­ aðsherferða eftir umræðumagni og flokkun umfjöllunar. Einnig er mögulegt að sjá hversu margar greinar og umfjallanir sem inni­ halda leitarorð hverju sinni birtast í rauntíma og skoða betur hvern miðil fyrir sig þar sem umfjöllun á sér stað og njörva leitina niður við ákveðin tímabil. Það má því með sanni segja að Vaktarinn sé mjög öflugt upp­ lýsinga­ og mælitæki til þess að fá skjóta og góða yfirsýn yfir allt það sem skiptir notendur máli hverju sinni.“ „Notendur Vaktarans geta fylgst með um ræðu um vörur sínar og þjónustu, keppinautum eða því sem efst er á baugi í samfélagsumræð- unni.“ stofnár vaktarans: 2008. stofnendur vaktarans: Stofnandi er fyrirtækið Clara en Vaktarinn er nú í eigu Keldunnar. viðskiptahugmynd vaktarans: Auðvelda fyrirtækjum og einstakl- ingum að fylgjast með umræðu á netinu og prentmiðlum í rauntíma og afturvirkt. markmið vaktarans: Markmið okkar er að viðskiptavinir Vaktar- ans fái góða yfirsýn yfir umræðuna um þá sjálfa, vörumerki tengd þeim og samkeppnina. Með þessum upplýsingum geta þeir síðan brugðist við neikvæðri umræðu, magnað upp jákvæða umræðu, metið árangur markaðsherferða og verið meðvitaðir um stöðu sína meðal viðskiptavina. Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir er markaðs­ og sölustjóri Keldunnar. ræturnar Keldan er upplý singa- og viðskipta vefur fyrir ís lenska viðskiptalífið og er í farar ­ broddi í upplýsingamiðlun á Íslandi. miðlun fyrirtækja- og fasteigna upplýsinga er vaxandi þáttur í starfsemi keldunnar og veitir keldan nú aðgang að öllum helstu skrám sem reknar eru af opinberum aðilum á Íslandi. Þá rekur keldan vaktarann og dagatal viðskiptalífsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.