Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 69
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 69
Raunverulegar lausnir
og langtímahugsun
Hjá Arion banka er boðið upp á frumkvöðlaþjónustu sem felur m.a. í sér frumkvöðlalán,
ráð gjöf og bankaþjónustu. Að auki stendur bankinn fyrir Startup Reykjavík, en 180 umsóknir
bárust í vor og voru tíu teymi af ólíkum toga valin til þátttöku – hvert teymi fékk tvær milljónir
frá bankanum gegn 6% hlutafé.
A r i o n b a n k i
Arion banki, í samvinnu við Innovit og Klak, setti af stað í vor verkefnið Startup Reykjavík sem er
viðskiptahraðall (e. accelerator).
Tíu teymi fengu tíu vikna þjálfun
og ráðgjöf frá einstaklingum
víðs vegar að úr atvinnulífinu og
starfs fólki Innovits og Klaks, tvær
milljónir í hlutafé frá Arion banka
gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu
og aðgang að tengslaneti Global
Accelerator Network. Kynntu öll
fyrirtækin sig fyrir fjárfestum á
loka degi verkefnisins í ágúst sl.
„Mesta virðið fyrir fyrirtækin
er tengslanet og ráðgjöf frá
yfir fimm tíu leiðbeinendum alls
stað ar að úr viðskiptalífinu,“
segir Einar Gunnar Guðmunds
son, sér fræð ingur bankans í
frumkvöðla málum. Þeir eru t.d. úr
háskóla samfélaginu, stjórn end
ur fyrir tækja og fjárfestar. „Þetta
fólk hitti teymin og sneri stundum
hugmyndum við, ráðlagði,
opnaði dyr og bjó til tengsl fyrir
fyrirtækin.“
Um 180 umsóknir bárust í vor
og voru tíu ólíkar viðskiptahug
myndir valdar til þátttöku. „Það
var frábært að fylgjast með og
sjá hversu miklu var áorkað. Þetta
voru strembnar vikur fyrir teymin,
en árangurinn var augljós og allir
sammála um hversu vel tókst til.“
Startup Reykjavík hefur styrkt
frum kvöðlaumhverfið og verður
hald ið aftur vorið 2013 með tíu
nýjum teymum.
Sterkara frumkvöðlaumhverfi
Einar Gunnar segir að hvati Arion
banka til að fara þessa leið sé
annars vegar að stuðla að og
auka fyrirtækja og verð mæta
sköpun á Íslandi og í öðru lagi að
bankinn bjóði þjónustu og lausnir
sem raunverulega skipta máli
fyrir frumkvöðla. Startup Reykja
vík gerir frumkvöðlum kleift að
raungera hugmyndir sínar. „Þetta
var líka tækifæri fyrir Arion banka
til að stuðla að betra umhverfi;
betrumbæta frumkvöðlaumhverf
ið á Íslandi því það vantar svo oft
brú á milli viðskiptahugmyndar
og fjármagns og með þessu er
bankinn að koma til móts við þær
þarfir. Kostir Startup Reykjavík
fyrir fjárfesta eru að úrval fjárfest
ingarkosta hefur aukist og einnig
gæðin, því viðskiptahugmynd
irnar hafa farið í gegnum afar
skilvirka gæðasíu.
Þá erum við einnig að bæta
og þróa þjónustu bankans við
frumkvöðla, m.a. með frum
kvöðla lánum, bankaþjónustu
snið inni að þörfum frumkvöðla.
Einn ig höfum við safnað saman
prakt ískum upplýsingum á vef
bankans fyrir þá sem eru að hefja
rekstur. Arion banki hefur ein
lægan vilja til þess að stuðla að
bættu umhverfi fyrir frum kvöðla
með raunverulegum lausnum og
langtímahugsun.“
stofnár: 2012
markmið fyrirtækis: Að auka og stuðla að aukinni fyrirtækja- og
verðmætasköpun á Íslandi og bjóða upp á raunverulegar lausnir
fyrir frumkvöðla og fjárfesta.
viðskiptahugmyndin: Að standa fyrir verkefninu Startup Reykja -
vík þar sem viðskiptahugmyndir eru þróaðar á tíu vikum og fá þátt-
tökufyrirtæki sprotafjármagn í formi hlutafjár. Að bjóða jafnframt
frumkvöðlaþjónustu í útibúum sem felur m.a. í sér frumkvöðlalán,
ráðgjöf og bankaþjónustu.
Einar Gunnar Guðmundsson, sér fræð ingur bankans í frumkvöðla málum.
„Mesta virðið fyrir
fyrirtækin er tengsla-
net og ráðgjöf frá yfir
fimm tíu leiðbeinend-
um alls stað ar að úr
viðskiptalífinu.“
ræturnar