Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 71

Frjáls verslun - 01.07.2012, Page 71
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 71 VILJA VERðA MARKAðSLEIðANDI iMonIT er sprotafyrirtæki sem leggur áherslu á að búa til hugbún aðar- lausnir og veita þjónustu sem fer nýjar leiðir varðandi gagn sæi og rekjan- leika vöruferla fyrir viðkvæmar vörur, s.s. matvæli. Ocean Sounds er byggt á hvalarannsókn um sem Edda Elísabet Magnúsdóttir og Marianne Helene Rasmusen hafa stundað og tengjast doktorsverk efni Eddu við Háskóla Íslands. „Fyrsta vara Ocean Sounds er hljóðbók um hin margslungnu og dularfullu hljóð hnúfubaksins sem er algengasta tegund hvala við strendur Íslands.“ „Nú er unnið að frekari þróunarvinnu í verkefninu SENSE sem er styrkt af Evrópusambandinu og hófst í febrúar 2012.“ iMonIT ehf. Ocean Sounds Dr. Sigurður G. Bogason. Ólafur Páll Torfason, einn stofn­ enda og eigenda fyrirtækisins. Hún hefur safnað upp tökum með hvölum við Ís­lands strendur og rannsakar hljóð þeirra,“ segir Ólafur Páll Torfa­ son, einn stofnenda og eigenda fyrir tækisins. Ól afur Páll segir að það hafi verið Háskóli Íslands og Rann ­ sóknarþjónusta Háskóla Ís lands sem hafi verið hvatinn að því að verkefnið varð að fyrir tæki. „Þetta er liður hjá há skólanum í að búa til skap andi og hagnýtar rannsóknir inn an háskólans.“ Ólafur Páll segir að í rauninni sé verið að miðla gögnunum til almennings á tiltölulega nýj an hátt, a.m.k. hér á landi. „Fyrsta vara Ocean Sounds er hljóð­ bók um hin margslungnu og dular fullu hljóð hnúfubaksins sem er algengasta tegund hvala við strendur Íslands og með þeim vinsælustu í hvala ­ skoðunarferðum. Á hljóð bókinni eru hljóðupptökur af hnúfu bökum við Ísland og er hljóðbókin sett upp sem saga um hnúfubakinn. Hlustandinn er leiddur í gegn­ um þau hljóð sem heyrast með tilheyr andi útskýringum um hvaða til gangi þau þjóna í hvala lífinu. Sigur steinn Más­ son, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi fréttamaður, ljær hljóðbókinni rödd sína. Með geisla diskin um fylgir bæklingur með fræðsluefni um hnúfubakinn þar sem sérstök áhersla er lögð á hljóðheim þessa hvals. Bækling urinn skartar jafnframt fallegum myndum af hnúfu­ bökum á Íslandi.“ Ólafur Páll segir að framund­an sé áframhaldandi þróun og markaðssetning á nýjum vörum. „Þetta er allt á fyrstu metr unum og við höldum að við getum vaxið áfram og skapað okkur sérstöðu innan þessa geira með áframhald andi vöru ­ þróun. Okkar hvati er að ná til sem flestra og dýpka skilning al­ mennings á lífi hvals_ins. Teymið hefur fund ið fyrir gífurlegum áhuga almenn ings, jafnt innan­ lands sem ut an, á hvölum og ekki síst hvalahljóðum og hvetur það okkur áfram í þróun á vöru sem þessari.“ HLUSTAð Á HVALASöNG Upphaf fyrirtækisins má rekja til stórs Evrópuverkefnis sem hófst árið 2007 og var það Rann sóknahópur í hagnýtum vöru ferlum (ASCS) við Háskóla Ís lands sem leiddi þátttöku HÍ í Chill­on­verk ­ efninu. Einnig var unnið í verkefni styrktu af Tækniþróunarsjóði og eru niðurstöður beggja þessara verkefna grunnurinn að stofnun iMonIT ehf. fyrr á þessu ári. „Nú er unnið að frekari þróunarvinnu í verk efninu SENSE sem er styrkt af Evrópu sam bandinu og hófst í febrúar 2012 þar sem umhverfisgildi og sjálfbærni í þremur mis munandi virðiskeðjum matvæla eru til skoðunar. Niðurstöður þeirrar vinnu verða einnig mikilvægar fyrir frekari þróunarvinnu félagsins,“ segir dr. Sigurður G. Bogason, framkvæmdastjóri iMonIT og forstöðumaður ASCS. Sú þekking sem við öðluðumst í tengsl­um við þessi þróunarverkefni nýtist okk ur vel í því sem við gerum í dag og að til stað ar er góð blanda í hluthafahópnum, með unga verkfræð inga með mikla þekkingu á forritun og tölvu tækni, ásamt hluthöfum með langa reynslu í mat vælarannsóknum og mark aðs málum sem saman leggur góð an grunn að hraðri þróun og árangri á markaði. Við erum ennþá í þró unarfasa á þeirri þjón ustu sem við stefn um á að markaðssetja á næstu einu til tveimur árum sem felst í nýrri nálgun til að tryggja gæði, öryggi og rekjanleika vöru og tækni til að skapa mikilvægt gagnsæi og traust í allri virðis keðj unni. Við stefnum að því að vinna á næstunni með völdum fyrirtækjum við próf anir á lausninni og markaðssetja heild­ ar þjónustuna að loknu þróunarferlinu á næstu tveimur árum og að fyrst þá þurfi að koma inn viðbótarhlutafé til að mögulegt verði að efla og stækka fyrirtækið hratt til að ná leiðandi stöðu á markaði.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.