Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 82
82 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
FJöLDI TæKIFæRA EN
TAKMARKAð FJÁR-
MAGN
Mikil gróska hefur verið innan hönnunargeirans undanfarin ár. Að hluta má rekja
þessa þróun til þess að síðastliðin tíu ár hefur fjöldi ungra hönnuða útskrifast
frá Listaháskóla Íslands. Margir þeirra fá ekki vinnu við sitt hæfi, sérstaklega
fata- og vöruhönnuðir, og stofna þess vegna eigin fyrirtæki. Halla Helgadóttir,
fram kvæmdastjóri Hönn unarmiðstöðvar, segir að of erfitt sé fyrir mörg þessara
fyrir tækja að finna fjármagn svo vöxtur þeirra geti orðið hraðari.
Hönnunarmiðstöð Íslands
Það er nokkuð stór hópur hönnuða sem streymir út í atvinnulífið að afloknu námi en atvinnutækifærin hér á Íslandi eru ekki nægileg. Það eru til dæmis ekki mörg
fyrirtæki sem ráða til sín fata og vöruhönnuði
en þeim fer þó fjölgandi með aukinni grósku
á þessu sviði. Arkitektar og grafískir hönnuðir
starfa innan stórra geira í atvinnulífinu en fata
og vöruhönnun eru nýrri greinar á Íslandi og
þess vegna ekki eins mörg tækifæri þar enn
sem komið er. Fyrirtækjum á sviði fatahönn
unar fer fjölgandi en margir stjórnendur
ís lenskra fyrirtækja eru ekki búnir að átta sig
al mennilega á því hvernig þau eiga að nýta
sér vöru og iðnhönnuði.“
Stofna eigin fyrirtæki
Halla segir að mikil gerjun sé innan hönnunar
geirans og að margir nýútskrifaðir hönnuðir
skapi sér vinnu sjálfir og stofni eigin fyrirtæki.
„Það eru mörg ný og lítil hönnunarfyrirtæki á
Íslandi í dag en það sem vantar er umhverfi
þar sem þau ná að vaxa og dafna. Til þess
þarf að laga starfsumhverfi fyrirtækja, efla
stuðning og setja alvörufjármagn inn í þennan
geira svo hann geti farið að skila meiru til
baka og hraðar.
Við eigum að mörgu leyti gott stuðnings
um hverfi en of mikið af fjármagninu fer í
stuðn ingsumhverfið sjálft og of lítið beint til
fyrir tækjanna. Það er heldur ekki nægileg
þekk ing á gildi og möguleikum hönnunar hér
á landi. Svo vantar líka fleiri dæmi um vel
gengni fyrirtækja á þessu sviði því það myndi
auðvelda aðgengi að fjármagni. Að sumu
leyti á tæknigeirinn auðveldara með að finna
fjármagn í þróunarverkefni því þar eru menn
búnir að sjá góðan árangur, til dæmis á sviði
tölvuleikja og tölvulausna.
Það er mikilvægt að við vinnum markvisst að
því að efla starfsumhverfi þessara fyrirtækja
svo fleiri nái flugi,“ segir Halla sem óttast að
ef ekkert er að gert leggi mörg þessara fyrir
tækja upp laupana. Segja má að ný fyrirtæki
á sviði hönnunar séu mismunandi en þau
eru helst á sviði fatahönnunar og hönnunar
fylgihluta, skartgripahönnunar, vöruhönnunar,
vef, viðmóts og grafískrar hönnunar, auk
arkitektúrs. Hjá sumum starfar einn aðili en
hjá öðrum jafnvel allt upp í tuttugu manns.
„Það er áhyggjuefni að rekstrarumhverfið hér
á landi er erfitt fyrir mörg þessara fyrir tækja
þannig að um leið og þau stækka flytj ast mörg
þeirra úr landi, sem er auðvitað afleitt.“
Forvitni, hugmyndaauðgi og bjartsýni
Halla segir að það sem einkenni íslensk hönn
unarfyrirtæki sé vilji til að fara nýjar leiðir, for
vitni, hugmyndaauðgi, bjartsýni, gott úthald
og dugnaður. „Ég held reyndar að þetta sé
sameiginlegt öllum frumkvöðlum á hvaða
sviði sem er – þetta eru einstaklingar sem
hafa sýn, áræði og úthald til þess að fylgja
verk efnum sínum eftir.“
Hvað með möguleika sprotafyrirtækja í
hönn unargeiranum til útrásar? „Þau fyrirtæki
sem rekin eru af fullri alvöru og fagmennsku
hafa mikla möguleika erlendis enda íslenskur
markaður í flestum tilfellum of lítill fyrir stærri
fyrirtæki. Tækifærin eru mikil en það þarf að
hlúa betur að þessu umhverfi til þess að það
nái virkilega að blómstra.“
Halla segir að flestir hönnuðir séu frumkvöðl ar. „Það að hanna er að finna upp
nýja hluti, nýjar leiðir eða lausnir. Vinna
hönn uðarins er að skapa eitthvað nýtt. Hönn
uðurinn hefur hæfileika til að einfalda, skýra,
upplýsa og gefa form, hann setur sig í spor
þess sem neytir og greiðir leið hans að upplif
uninni hvort sem hún er flík, vara, vefur eða
bygg ing. Við þurfum að leggja meiri áherslu á
þessar greinar og hlúa að þeim á þeirra eigin
forsendum.“
„Það eru mörg ný og lítil hönnunarfyrirtæki á Íslandi í dag en það sem
vantar er umhverfi þar sem þau ná að vaxa og dafna.“
Halla Helgadóttir.
WOW ferðir | Höfðatún 12 | 105 Reykjavík | 590 3000 | wowferdir@wowferdir.is
WOW FERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI
Við bjóðum ölbreyttar og spennandi pakkaferðir til allra áfangastaða WOW air. Fjölda sérferða borgarferða,
golerða, skíðaferða, leikhús- og menningarferða af ýmsum toga, með og án fararstjóra. Viltu fá upplýsingar
eða tilboð vegna árshátíðar eða er kominn tími á hvataferð fyrir þitt starfsfólk? Við erum við símann.
Tónleikaferðir
sem rokka
Fótboltaferðir
sem hitta í mark
Skíðaferðir
sem renna út
Golerðir
sem slá allt út
Alicante
sólarferðir
Borgarferðir
sem borga sig
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum og
hótel með morgunverði.
wowferdir.is
FERÐIR SEM SEGJA WOW!
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum, hótel
og miði á tónleika.
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum, hótel
með morgunmat og miði á leik.
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum og
hótel með ½ fæði.
Verð á mann
í tvíbýli, frá: 109.990 kr.
Verð á mann
í tvíbýli, frá: 84.900 kr. Verð á manní tvíbýli, frá: 79.900 kr.
Verð á mann
í tvíbýli, frá: 59.500 kr.
Verð á mann
í tvíbýli, frá: 148.900 kr.
Verð á mann
m.v 2 fullorðna
og 2 börn, frá: 59.990 kr.
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum, hótel
með ½ fæði, frítt fyrir golfsett og 1 tösku (20 kg)
og akstur til og frá flugvelli.
Innifalið er flug með sköttum og gjöldum og
hótel með ½ fæði.
í hönnun