Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 98
98 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
aldarinnar
Frumkvöðullinn Frosti Sigurjónsson, stofnandi Dohop og stjórnarformaður DataMarket,
segir Ísland standa frammi fyrir stærsta viðskiptatækifæri aldarinnar. Það verði hins
vegar ekki að veruleika nema stjórnmálamenn okkar gerist frumkvöðlar.
Fyrir nokkrum mán uð um rakst ég á hug mynd um hvernig mætti leysa vanda mál sem nær allir lands
menn glíma við. Hugmyndin
hefur reyndar verið þekkt í nær
heila öld en hefur af vissum
á stæðum ekki verið hrint í fram
kvæmd.
Sparnaður meðalfjölskyldu af
umræddri lausn gæti hæglega
numið hundruðum þúsunda á
hverju ári. Ríkissjóður myndi
sömu leiðis spara sér nokkur
hundruð milljarða í útgjöld á ör
fáum árum.
Ávinningur af verkefninu gæti
hæglega hlaupið á hundruðum
milljarða, en samt væri tilkostn
aðurinn ekki nema örfáar millj
ónir króna. Hér er því greinilega
um spennandi viðskiptatækifæri
að ræða.
En til að nýta þetta tiltekna
tækifæri nægir þó ekki að stofna
hefðbundið hlutafélag í eigu
fárra aðila, heldur þarf þjóðin
sjálf að koma lausninni í fram
kvæmd. Þetta viðskiptatækifæri
er þess eðlis að enginn einn
getur átt það, né hagnast á því
pers ónulega. Aðeins þjóðin í
heild sinni getur virkjað tæki fær ið
og notið ávinningsins. Ríkis stjórn
landsins og Alþingi þurfa að ger
ast frumkvöðlar, sýna frumkvæði
og gera nokkuð sem aðrar þjóðir
hafa ekki enn gert.
en hvaða tækifæri er
hér á ferðinni?
Tækifærið felst í því að þjóðin
endurheimti af bönkum valdið
til að búa til peningana í landinu
og það vald verði framvegis
eingöngu hjá Seðlabankanum.
Þetta mætti gera með einfaldri
lagabreytingu og jafnvel gefa
bönkum nokkur ár til að aðlagast
nýju fyrirkomulagi. Á aðlögunar
tímanum myndu ríkisskuldir
lækka um nokkur hundruð millj
arða, vaxtabyrði í þjóðfélaginu
lækka um tugi milljarða árlega,
verðbólga verða hverfandi og
hagvöxtur aukast umtalsvert.
Nú kunna einhverjir að efast
– þetta hljómi einfaldlega of vel
til að geta verið satt. Það sé ein
faldlega of ótrúlegt að hægt sé
að ná fram slíkum endurbótum
með því einu að banna bönkum
að framleiða peninga. En ný leg
niðurstaða hagfræðinga hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
staðfesta að hugmyndin geng
ur upp. Það er staðreynd, og
hefur verið í nokkur hundruð ár,
að bank ar hafa lánað út peninga
sem þeir hafa skuldbundið sig
til að hafa tilgengilega. Bankar
hafa þannig lánað sömu pening
ana mörgum aðilum samtímis, í
trausti þess að fólk geymi penin
ga sína yfirleitt í bönkum (brota
forðakerfi). Þegar banki veitir
lán verða því til nýir pening ar í
kerfinu og af þeim greiðast vext
ir til bankans. Langmestur hluti
allra peninga í landinu (95%) er
einmitt búinn til sem vaxtaber
andi skuld við banka.
Þjóðin greiðir bönkum því vexti
af nær öllu peningamagni í um
ferð. Sá óþarfi kostnaður hleypur
á tugum milljarða ár hvert og
gerir þjóðina sífellt skuldugri.
Viðskiptatækifæri aldarinnar
felst í því að afþakka peninga
framleiðslu bankanna og láta
Seðlabankann um að framleiða
þá 3400 milljarða króna sem
hér þarf að hafa í umferð. Bank
arnir verði áfram milliliður milli
sparifjáreigenda og lántakenda
en geti ekki lánað út lausar
inn stæður. Lausar innstæður
verði geymdar í Seðlabanka,
með milligöngu banka (heildar
forðakerfi). Það má lesa nánar
um heildarforðakerfið á www.
betrapeningakerfi.is og þar má
einnig finna svör við algengum
spurningum.
En ávinningur af heildarforða
kerfi skilar sér ekki bara í minni
vaxtakostnaði og lækkun ríkis
skulda. Peningamagn í landinu
verður einnig stöðugra, sem er
meginforsenda fyrir stöðugra
verðlagi. Bankaáhlaup yrðu úr
sögunni þar sem allt laust fé yrði
geymt í Seðlabanka.
Nú má velta því fyrir sér hvers
vegna ekki sé löngu búið að
koma á heildarforðakerfi í flest
um löndum. Trúlega felst hluti
skýringarinnar í því að almennt
berjast aðilar af meiri einurð fyrir
sérhagsmunum en almennum
ávinningi sem dreifist mjög víða
um þjóðfélagið. Bankar hafa
mik illa hagsmuna að gæta af
óbreyttu fyrirkomulagi og þeir
hafa mikil ítök í flestum samfé
lögum.
Íslensk stjórnvöld ígrunda nú
býsna afdrifaríkar breytingar á
peningakerfinu. Stefnan er sett á
inngöngu í myntbandalag í von
um að ná broti af þeim ávinn
ingi sem hægt er að ná með
heildarforðakerfi. Í samanburði
við inngöngu í myntbandalag er
upptaka heildarforðakerfis ein
föld, ódýr og fyllilega afturkræf
aðgerð sem vert er að skoða.
Ísland stendur frammi fyrir
stærsta viðskiptatækifæri ald
arinnar. Það verður hins vegar
aldrei að raunveruleika nema
stjórnmálamenn okkar gerist
frumkvöðlar og taki frumkvæði
og geri grundvallarúrbætur á
úreltu peningakerfi. Hvetjum þá
til dáða.
„Það er staðreynd,
og hefur verið í nokk
ur hundruð ár, að
bank ar hafa lánað
út peninga sem þeir
hafa skuldbundið
sig til að hafa til
gengilega.“
LokAorðið hefur frosti sigurjónsson
FroSti SigurJónSSon
„Þjóðin greiðir bönk
um því vexti af nær
öllu peningamagni í
umferð.“
Viðskiptahugmynd
+ Bókaðu núna á icelandair.is Vertu með okkur
Bættu smá WAsHINGtON D.C.
í líf þItt
Verð frá 33.900 kr.
þessi ferð gefur frá 2.100 til 6.300 Vildarpunkta aðra leiðina.
þú hittir sögufrægar persónur á fleiri stöðum en á Arnarhóli
Auðvitað hafði Ingólfur áhrif á gang sögunnar. En þú sérð mörgum sinnum
fleiri áhrifamiklar persónur í Washington D.C. Þar eru örlög heimsins ráðin
í miðbænum á hverjum degi. Og þar bíða þín ógleymanlegar stundir í borg
sem hefur allt að bjóða ferðamönnum. Arnarhóll hefur sinn sjarma,
við vitum það – en Capitol Hill er líka þess virði að sjá hana.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
IC
E
6
04
34
0
9/
12
Lokaorð
Stjórnmálamenn okkar
gerist frumkvöðlar: