Frjáls verslun - 01.10.2012, Síða 39
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 39
þróun sparneytnari og umhverf
isvænni bíla, sem er án vafa
ein lykilskýringin á vinsældum
okkar bíla,“ segir Friðbert.
Hekla selur þrjú merki bifreiða
sem framleiddar eru hjá verk
smiðjum í eigu Volkswagen
– VW, Skoda og Audi – en til
viðbótar selur Hekla Mitsubishi
bifreiðir. Friðbert segir að
áhersla VW á að framleiða fjöl
breytt úrval bíla, allt frá smæstu
smábílum upp í lúxusjeppa,
skipti miklu máli við að tryggja
styrk fyrirtækisins á heimsvísu,
því árferði geti verið mjög mis
munandi eftir markaðssvæðum.
Sem dæmi nefnir hann að hér á
landi hafi flokkur smábíla vaxið
hraðast á þessu ári og þar sló
hinn nýi VW Up í gegn, en á
sama tíma hafi Audilúxusbílar
verið meðal þeirra mest seldu í
SádiArabíu. „Þótt smábílaflokk
urinn hafi vaxið hratt eru þeir þó
enn tiltölulega lítill hluti heildar
sölunnar. Vinsælustu bílarnir
okkar eru í næstu stærðarflokk
um fyrir ofan VW Up, þ.e. VW
Golf og svo Skoda Octavia,
sem hefur sannað sig síðustu
ár sem einstaklega góður og
sparneytinn fjölskyldubíll.“
nýrVWGolfkominntil
landsins
Þróunin hefur verið hröð á bíla
markaðnum síðustu ár og það
er vel við hæfi að á þessu 60
ára afmæli Volkswagen á Íslandi
sé kynntur til leiks nýr VW Golf
sem mun án efa setja sitt mark
á bílaflota landsmanna á næstu
árum. Friðbert segir að nýi Golf
inn sé mikilvægur fyrir VW enda
hefur Golf verið einn vinsælasti
bíll í Evrópu um nokkurt skeið.
„Hann er örlítið stærri en síð
asta módel og í boði eru mjög
eyðslugrannar og umhverfis
vænar vélar í Golfinn sem
hafa mælst mjög vel fyrir. Eins
er mikið lagt upp úr öryggis
mál um þar sem margvísleg
tækni grípur inn í til að verja
far þega bílsins – bæði ýmiss
konar akstursaðstoð sem getur
komið í veg fyrir óhapp og eins
öryggisviðbrögð sem auka
vörn farþega á sekúndubroti ef
óhapp er yfirvofandi.“
Þessu til viðbótar segir Frið
bert að allar innréttingar bílsins
séu stílhreinar og mjög vand
aðar. Í fyrstu útgáfum VW Golf
var ekki lagt mikið upp úr þeim
þætti, en nú sé öldin önnur og
jafnvel hægt að fá nuddbúnað
í ökumannssæti Golfsins, sem
segir sitt um þægindin.
Bjallanvar25hestöflí
upphafi
Það er því himinn og haf milli
nýjustu afurðar VWverksmiðj
anna og bílsins sem var kynntur
fyrir landsmönnum í desember
1952. „Þýski alþýðubíllinn“ var
hann kallaður í fyrstu auglýsing
unni frá Heklu, var heil 25 hest
öfl og kostaði 30.000 krónur.
Fimmtán árum síðar voru
hest öflin orðin 50 og þótti mikið.
Á 25 ára afmæli VW á Íslandi,
árið 1977, höfðu um 12.000
VWbílar verið seldir hér á landi,
en í dag er búið að selja 33.277
VW bíla.
Friðbert segir ekki hægt ann
að en hrífast af sögu bæði VW
á Íslandi og ekki síður sögu
Heklu, sem nær enn lengra
aftur í tímann. Hekla var stofn uð
af Sigfúsi Bjarnasyni og fleir um
árið 1933 og starfaði fyrst um
sinn við innflutning á ýmsum
vörum á borð við ávexti. Svo
jókst vöruframboðið og starfaði
Hekla sem heildsala með alls
kyns vörur, allt frá smærri raftæk
jum upp í landbún aðar tæki og
vinnuvélar, en sala bifreiða fór
að verða sífellt stærri hluti starf
seminnar upp úr seinna stríði
með tilkomu Land Rover og VW.
Hekla var fjölskyldufyrirtæki
alla tuttugustu öldina, því eftir
að Sigfús féll frá tók sonur hans,
Ingimundur, við stjórn fyrirtækis
ins og síðar bræður hans
Sverrir og Sigfús Sigfússynir.
Þeir seldu svo Heklu árið 2002
og lauk þar með næstum sjötíu
ára tengslum fyrirtækisins við
fjölskyldu Sigfúsar Bjarnasonar
stofnanda. Nú er Hekla í eigu
Franz Jezorskis og Friðberts
Friðbertssonar, sem keyptu
fyrir tækið árið 2011.
Endurnýjunbílaflotans
mikilvæg
„Það eru ekki mörg fyrirtæki
á Íslandi með eins langa og
mikla sögu og Hekla og það
er spennandi en jafnframt
krefj andi verkefni að taka við
rekstri fyrirtækisins á tímum sem
þess um,“ segir Friðbert. Hann
segir að þrátt fyrir að mark að
urinn hafi vaxið talsvert á þessu
ári frá árinu á undan sé enn
langt í land með að sala nýrra
bíla komist aftur í eðlilegt horf.
„Árið 2011 voru um 5.000 bílar
seldir hér á landi en í ár verða
þeir sennilegast um 8.000,
þar af voru um 3.500 seldir til
bílaleigna. Ef horft er til meðal
sölu síðustu áratugi sést að
markaðurinn hér á landi er í
jafn vægi þegar seldir eru um
12.000 bílar á ári og því erum
við enn ekki komin í eðlilega
endurnýjun bílaflotans.“
Það er engan veginn æskilegt
að sögn Friðberts að bílafloti
landsmanna nái ekki að endur
nýjast nægilega hratt þannig að
meðalaldur bíla í umferð hækki.
Yngri bílar séu sparneytnari,
mengi minna og séu öruggari
en eldri bílar og því sé allra
hag ur að nýrri bílar séu frekar á
götunum en eldri. Nú þegar sé
bílaflotinn á Íslandi einn sá elsti
í Evrópu og mikilvægt að snúa
þessari þróun við.
„Þar ætlum við hjá Heklu að
vera í fararbroddi, enda með
einstaklega sterk vörumerki frá
VW og Mitsubishi sem mæta vel
þörfum markaðarins á Íslandi
í dag. Fólk kallar eftir smærri
og sparneytnari bílum og í
þeim flokkum höfum við mikið
úrval bíla, með hinn nýja VW
Golf í fararbroddi, sem henta
vel íslenskum aðstæðum. Við
svörum þannig kallinu – rétt eins
og Hekla gerði með innreið VW
á markaðinn fyrir sextíu árum,“
segir Friðbert.
Fyrsta Volkswagen-auglýsingin frá Heklu var birt í desember 1952.
„Þýski alþýðubíllinn“ var hann kallaður í auglýsingunni. Hann var heil
25 hestöfl og kostaði 30.000 krónur.
Nýi Golfinn frá Heklu.