Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 131

Frjáls verslun - 01.10.2012, Page 131
FRJÁLS VERSLUN 11. 2012 131 •­ Af­hverju­hafa­upplýsing- ar til almennings verið misvísandi? •­ Af­hverju­situr­fólk­tryggt­ í embættum sínum þrátt fyrir alvarleg mistök? •­ Af hverju ganga allar umbætur svo hægt? Breivik­málinu er fjarri því lokið þótt dómur yfir Anders Behring Breivik hafi fallið síðsumars. Jens Stoltenberg, forsætisráð­ herra Noregs, sætir núna gagn­ rýni fyrir hægar endurbætur á stjórnsýslunni; að berja ekki í brestina af ákveðni og festu. Hann verður gagnrýndur fram að kosningum á næsta ári og þessi gagnrýni er farin að hafa áhrif. Kannski endar það svo að það verður Breivik sem fellir forsætisráðherrann. Stoltenberg hefur sagt að brest­ urinn í viðbúnaði landsmanna gegn hryðjuverkaógn hafi verið „stærri og rist dýpra en hann óraði fyrir“. Og hann hefur ítrek að lýst ábyrgð sinni á stjórn landsins þegar ógæfan dundi yfir. Með þetta leggur hann út í kosningar og ríkisstjórn hans stendur tæpt. •­ En hver er þessi brestur í stjórnkerfinu?­ •­ Hvernig á að berja í brestinn? •­ Er munur á því að bera hina almennu ábyrgð og að bera ábyrgð á því sem beinlínis­fór­úrskeiðis?­ Þetta eru spurningar sem norsk ir kjósendur verða að taka af stöðu til þegar kosið verður til þings í haust. SLÖk­STjórnUn­kOSTAðI­ MAnnSLíF Í óháðri rannsóknarskýrslu um atburðina 22. júlí 2011 kemur fram að brestirnir í stjórnkerfinu ollu því að ekki tókst að koma í veg fyrir hyðjuverkin. Eða í það minnsta hefði mátt takmarka afleiðingarnar með betri stjórn­ un. Það er þó ekki víst að með réttum viðbrögðum hefði mátt koma alveg í veg fyrir manntjón en með réttum viðbrögðum hefðu fleiri komist lífs af. Það er rakið til bresta í st­jórnkerfinu að stjórnar­ráðið stóð óvarið. Átta létu þar lífið og tugir slösuðust. Og það er rakið til bresta í stjórnun hjá lögreglu að Breivik fékk 26 mínútna for skot á lögregluna á Útey. Á þeim mínút­ um myrti hann tugi ungmenna. Þrátt fyrir þetta sýnir ný könn­ un núna rétt fyrir áramót að traust almennings á opinberum stofnunum hefur ekki rýrnað. En gagnrýni þeirra sem eiga um sárt að binda er hávær. Einhver verður að taka á sig ábyrgðina. SEX­STjórnUnArVILLUr Við hina óháðu rannsókn komu í ljós sex atriði í stjórnun sem brugðust. Þetta eru allt klassískar veilur sem stjórnun­ arfræðingar fjalla oft um – en eitt er um að tala og annað í að komast. •­ Skortur­á­eftirfylgni­ Ákvarðanir stjórnvalda ná ekki fram að ganga. Það skortir á eftirfylgni. Þetta lýtur sérstak­ lega að lokun Grubbegate, göt unnar á bak við stjórnarráð­ ið. Þar stóð allt opið og Breivik náði að leggja sprengjubílnum nánast undir húsveggnum. Allir vissu um þennan veik­ leika en lokun götunnar náði aldrei fram að ganga vegna tregðu hjá embættismönnum í ráðuneytunum og í borgarkerf­ inu og vegna þess að forsætis­ ráðherra fylgdi málinu ekki eftir. Fjölmiðlar kölluðu lokun „móðursýki“ og fegrunarnefnd borgarinnar sagði að farartálm­ ar væru ljótir. Enginn tók af skarið og spurði hvort skipti meira máli: útlitið eða öryggið. •­ kerfislæg­tregða Vitneskja um veikleika í við bún­ aði var þögguð niður í stjórn ­ kerfinu. Þarna berast böndin sérstaklega að svokölluðu kerfismálaráðuneyti, það er ráðuneyti sem sinnir þörfum stjórnkerfisins fyrir húsnæði, útbúnað og þar með öryggis­ ráðstafanir. Gangur mála í ráðuneytinu virðist hafa verið afar tregur. Ábendingar um veikleika voru flokkaðar sem ríkisleyndarmál og þeim stungið undir stól. Í sjálfu kerfismálaráðuneytinu ríkti kerfislæg tregða. •­ Virðingarröð Í frægu kvæði Steins Steinarr um byggingu Hallgrímskirkju eru húsameistara lögð þessi orði í munn: Mín hugmynd er sú, að hver trappa sé annarri lægri Þetta á líka við um öll stjórn­ kerfi. Þar er ein trappa annarri lægri. Þar ríkir virðingarröð og menn fá bágt fyrir ef vikið er frá réttri röð. Ári fyrir hryðjuverkin lét t.d. strfsmaður öryggis­ gæslu í stjórnarráðinu vita uppi á skrifstofu forsætisráðherra að tölvukerfið, sem nota átt við að koma út boðum um vá, væri ónothæft. Þetta var brot á virðingarröð. Boðin áttu að fara til næsta yfirmanns en ekki beint á topp­ inn. Starfsmaðurinn var fluttur til í starfi vegna agabrots – en boðkerfið stóð ónothæft 22. júlí. Þetta er vandinn hvað á að gera við „whistle blowers“. Þeir brjóta virðingarröð. Oftast eru þeir reknir eða hraktir úr starfi. Stjórnkerfi þola ekki „litla Landsbankamenn“. •­ ómenning­í­stjórnsýslu Jens Stoltenberg forsætisráð­ herra hefur oftar en einu sinni vikið að „ómenningu í stjórn­ kerfinu“ þegar hann ræðir hyrðjuverkin 22. júlí. Þetta styðst líka við niðurstöður óháðu rannsóknarnefndarinanr. Með ómenningu er átt við að starfs­ menn opinberra stofnana leitist ekki endilega við að ná settum markmiðum. Allir kraftar fara í valda­ og hagsmunabaráttu innanhúss en sjálf vinnan situr á hakanum. Forsætisráðherra hefur fullyrt að yfirstjórn lögreglunnar hafi „Aðeins nokkrir mánuðir eru í kosn­ ingar. Forsætisráð­ herra verður að hugsa um áróðurs­ stöðu sína. Hann verður að sannfæra kjósendur um að í raun og veru sé unn ið að endur­ bótum.“ „Í hinni óháðu rann­ sókn er bent á að tilraunir til að koma á markmiðsstjórn­ un í opinberum stofn unum hafi ekki skilað árangri.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.