Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 3

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 3
UtprOO^ Míl Læknablaðið THE iCELANDiC MEDICAL IOURNAL www. laeknabladid. is Vísindi á Landspítala- háskólasjúkrahúsi 2007 Ágrip vísindaverkefna þeirra, sem kynnt eru á vísindadögum Landspítala 2007, eru nú birt í samvinnu við Læknablaðið í fyrsta sinn. Tilgangurinn er að auka dreifingu og gefa fleirum tækifæri til að fylgjast með þeirri vísindavirkni sem fram fer á spítalanum. Að þessu sinni hefur ágripum fjölgað og losa þau nú hundraðið. Er það nánast tvöföldun frá síðustu árum. Það er sama hvert litið er, alls staðar eru merki vaxandi grósku í vísindarannsóknum í heilbrigðisvísindum. Á það ekki hvað síst við á Landspítala. Ný tækifæri blasa við, en jafnframt mikið verk að vinna. Endurskoðuð vísindastefna spítalans er nú tilbúin og er sett fram á skýran og hnitmiðaðan hátt. Það markmið að verja skuli sem nemur 3% af rekstrarútgjöldum til vísindarannsókna á háskólasjúkrahúsinu er metnaðarfullt og alls ekki óraunhæft. Helmingur þess fjár á að renna í Vísindasjóð spítalans. Samkvæmt kostnaðargreiningu, sem gerð var á síðasta ári, er þetta um það bil tvöföldun á opinberu framlagi spítalans til vísindastarfa. Auk þess er markmiðið að vísindamenn spítalans afli samsvarandi fjárhæðar til vísindastarfa frá öðrum aðilum. Áhersla er lögð á úthlutun styrkja á samkeppnisgrunni. Þá er markmiðið að fyrir 2012 verði spítalinn meðal fimm bestu háskólasjúkrahúsa á Norðurlöndum hvað rannsóknir varðar. Á sama tíma hefur Háskóli íslands sett sér markmið um að ná í hóp 100 bestu háskóla í heimi og því hefur fylgt umtalsvert fjármagn frá menntamálaráðuneytinu. Þegar litið er til þess að á undanförnum árum hefur Landspítali átt um þriðjung af öllum ISI greinum sem birtar eru frá íslandi er ljóst að þarna er ekki bara tækifæri fyrir spítalann til að sækja aukið fé til rannsókna, heldur er Landspítalinn ómissandi þátttakandi að því markmiði Háskóla íslands að komast í hóp 100 bestu. Stöðugt birtast nýjar kannanir sem sýna glæsta frammistöðu íslenskra vísindamanna á heilbrigðissviði. Nýbirt er OECD skýrsla sem Finnar létu gera fyrir sig um stöðu vísinda með áherslu á fjölda birtra ISI greina og fjölda tilvitnana og enn á ný eru íslenskir heilbrigðisstarfsmenn meðal fjögurra efstu hvað þetta varðar. Þessu hafa yfirvöld tekið eftir og ánægjulegt er að geta þess að stofnuð hefur verið nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar með fulltrúum þriggja ráðuneyta; heilbrigðis-, iðnaðar- og menntamálaráðuneytis ásamt fulltrúa frá samtökum atvinnulífsins og fulltrúa LSH. Nefndinni er ætlað að finna leiðir til að styrkja enn frekar rannsóknir í heilbrigðisvísindum er leitt gætu til nýsköpunar og útrásar. Þá hefur frammistaða vísindamanna spítalans m.a. orðið til þess að fengist hafa fleiri og betri styrkir úr samkeppnissjóðum, innlendum sem erlendum og ýmis fyrirtæki hafa litið til Landspítala um samstarf við hagnýtingu rannsóknarniðurstaðna. Hið sama á við um erlenda vísindamenn sem sækjast eftir rannsóknarsamstarfi. í lögunum eru einnig opnaðir möguleikar á miklu víðtækari samvinnu en verið hefur við utanaðkomandi aðila, m.a. í vísindarannsóknum. Það er eitt af aðalsmerkjum háskólaspítala að saman fléttist kennsla, vísindi og þjónusta þar sem allir þættir styrkja hver annan. Háskóla- spítalinn hefur enn fremur fest í sessi með nýjum heilbrigðislögum og skilgreiningu á stöðu spítalans sem háskólasjúkrahúss. Öll þessi tækifæri krefjast þess hins vegar að spítalinn búi sig undir að efla innviði sem geti hjálpað starfsmönnum að nýta þessi tækifæri, skapa þeim sem besta aðstöðu og veita þeim eins góða aðstoð og kostur er við þær bráðabirgða aðstæður sem búa verður við þar til aðstaða batnar stórlega í nýrri háskólasjúkrahúsbyggingu. Spítalinn er stoltur af þeirri vísindavirkni sem þetta blað ber vitni um. Hér eru góðir hlutir að gerast og ég óska vísindamönnum Landspítala og Háskóla íslands til hamingju með frammistöðuna. Fylgirit 54, 93. árg. Apríl 2007 Aðsetur Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi Útgefandi Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Símar Læknafélög: 564 4100 Læknablaðið: 564 4104 Bréfsími (fax): 564 4106 Ritstjórn Jóhannes Bjömsson, ábm. og ritstjóri Bryndís Benediktsdóttir Engilbert Sigurðsson Karl Andersen Tómas Guðbjartsson Þóra Steingrímsdóttir Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Dögg Árnadóttir dogg@lis.is Upplag 2.100 Áskrift 6.840,- m. vsk. Lausasala 700,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Prentun, bókband og pökkun (slandsprent ehf. Steinhellu 10 221 Hafnarfirði ISSN: 0254-1394 Kristján Erlendsson framkvœmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar á LSH og varadeildarforseti lœknadeildar Háskóla Islands Læknablaðið/ Fylgirit 54 2007/93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.