Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 30

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 30
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VÍSINDI Á VORDÖGUM V 50 Skurðaðgerðir vegna lungnameinvarpa nýrna-frumu- krabbameins á íslandi 1984-2006 Sscniundur J. Oddsson12, Helgi Isaksson3, Eiríkur Jónsson'4, Guðmundur V. Einarsson4,Tómas Guðbjartsson24 1) Læknadeild HÍ, 2) Hjarta- og lungnaskurðdeild, 3) Rannsóknarstofa Landspítala í meinafræði, 4) J>vagfæraskurðdeild Landspítala saemiodds@hotmail. com Inngangur: Við greiningu nýrnafrumukrabbameins eru tæplega 20% sjúklinga með lungnameinvörp. Hluti þessara sjúklinga hefur stök meinvörp í lunga. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á 30-49% sjúkdómsfríar 5-ára lífshorfur hjá völdum hópi sjúklinga sem fara í brottnám á lungnameinvarpi nýrnafrumukrabbameins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna afdrif sjúklinga sem gengust undir slíka aðgerð hér á landi á tímabilinu 1984-2006. Efniviður og aðferðir: Þessi rannsókn er hluti af stærri rannsókn á nýrnafrumukrabbameini á íslandi og byggir á gagnagrunni sem inniheldur alla sjúklinga sem greinst hafa með sjúkdóminn frá 1971 til 2006.1 þessari afturskyggnu rannsókn voru athugaðir allir sjúklingar sem greinst höfðu nteð nýrnafrumukrabbamein sem meinverptust til lungna á tímabilinu 1984-2006 og gengust undir skurðaðgerð á lunga. Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám og Krabbameinsskrá auk gagnagrunns rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði. Könnuð voru afdrif sjúklinganna, fylgikvillar og ltfshorfur. Notast var við TNM stigun og reiknaðar lífshorfur þar sem útreikningar miðuðust við 1. mars 2007. Niðurstöður: Alls gengust 14 sjúklingar undir lungnaaðgerð vegna meinvarpa frá nýrnafrumukrabbameini á 23 ára tímabili. I hópnum voru 10 karlar og 4 konur og meðalaldur við greiningu meinvarpa var 59 ár (bil 45-78 ár). Allir sjúklingarnir höfðu áður gengist undir nýrnabrottnám, að meðaltali 39 mánuðum áður (bil 1-132 mánuðir). T-stig upprunalegu nýrnaæxlanna var: T1 (n=l), T2 (n=5), T3a (n=5) og T3b (n=3). Af þeim voru 9 án eitlameinvarpa (N0) en 6 með dreifð eitlameinvörp (Nl-2). Lungnameinvarp var þekkt við greiningu hjá einum sjúklingi en greint síðar (>3 mánuðum frá nýrnaaðgerð) hjá 13 sjúklingum. Flestir (n=ll) þessara sjúklinga voru með stakt meinvarp, meðalstærð 27 mm (bil 8-50). Helmingur sjúklinganna gekksl undir brottnám á lungnalappa (n=7), þrír fóru í fleygskurð og aðrir þrír í lungnabrottnám. Einn sjúklingur gekkst bæði undir fleygskurð og brottnám á lungnalappa. Hjá sex sjúklingum voru meinvörp eingöngu hægra megin en hjá þremur vinstra megin. Samtals fóru þrír sjúklingar í fleiri en eina aðgerð og einn sjúklingur fór í aðgerð á báðurn lungurn. Fylgikvillar eftir aðgerð reyndust fátíðir, sá helsti var gáttaflökt sem greindist hjá einum sjúklingi. Aðgerðirnar tóku að meðaltali 123 mín og miðgildi legutíma var 10 dagar. í dag eru fjórir af þessum sjúklingum á lífi (meðaleftirfylgni 82 mánuðir). Lífshorfur tveimur árum frá greiningu meinvarpa í lungum voru 64% og 29% eftir fimm ár. Til samanburðar var lifun þeirra sem fóru ekki í brottnám meinvarpsins (1984-2000) 34% eftir tvö ár og 11% eftir fimm ár. Alyktun: Árangur brottnáms lungnameinvarpa frá nýrna- frumukrabbameini er góður í völdum hópi sjúklinga (29% fimm ára lífshorfur), mun betri en fyrir sjúklinga sem fara ekki aðgerð. Þó verður að hafa í huga að hér um valinn efnivið að ræða. V 51 Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration) getur tengst efri hluta meltingarvegar. - Tvö einstök sjúkra- tilfelli Sæmundur Jón Oddsson14, Þráinn Rósmundsson24, Vigdís Pétursdóttir34, Friðrik E. Yngvason5, Bjarni TorfasonL4,Tómas Guðbjartsson1-4 'Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2skurðdeild Barnaspítala Hringsins, 3rann- sóknarstofu í meinafræði, Landspítala, 4læknadeild HÍ, 5Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri saemiodds@hotmail. com Inngangur: Aðskilinn lungnahluti er sjaldgæfur meðfæddur galli þar sem lungnavefur er án tengsla við bæði lungnaberkjur og lungnablóðrás. Lungnahlutinn er nærður af kerfisslagæð og getur ekki tekið þátt í loftskiptum. Einkenni geta verið fjölbreytt en eru oftast rakin til endurtekinna lungnasýkinga og/eða hjartabilunar. Orsök aðskilins lungnahluta er ekki þekkt. Ein kenning gerir ráð fyrir því að um afleiðingar endurtekinna lungnasýkinga sé að ræða. Síðari ár hafa þó flestir hallast að því að orsökin sé um meðfædd. Hér er lýst tveimur mjög sérstökum tilfellum sem styðja síðari tilgátuna. Þetta eru jafnframt fyrstu íslensku tilfellin af aðskildum lungnahluta sem lýst hefur verið. Sjúkratilfelli 1: Nýfætt stúlkubarn gekkst undir skugga- efnisrannsókn á meltingarvegi vegna þrengingar á skeifugörn (atresia). Við rannsóknina barst skuggaefni upp í neðra blað hægra lunga og voru upptökin frá mótum maga og vélinda. Við skurðaðgerð kom í ljós stór aðskilinn lungnahluti sem var tvíblaða og lá út í bæði hægra og vinstra brjósthol. Lungnahlutinn var þakinn eiginn fleiðru og nærður af stórri kviðarholsslagæð. Lungnahlutinn var fjarlægður með skurðaðgerð.Tveimur árum frá aðgerð heilsast stúlkunni vel. Sjúkratilelli 2:18 ára piltur með rúmlega árs sögu um endurtekna lungnabólgu greindist á tölvusneiðmynd með fyrirferð í miðju hægra lunga. Við skurðaðgerð sást aðskilinn lungnahluti neðst í efri lugnalappa. Lungnahlutinn var þakinn eigin fleiðru og inn í hann gekk berkja sem tengdist 4x5 cm stórri vökvafylltri blöðru. Vefjagerð blöðrunnar samrýmdist vel vélindavegg. Ekki reyndist beinn samgangur á milli hennar og vélinda. Efri lungnalappinn var fjarlægður ásamt lungnahlutanum og blöðrunni. Hálfu ári frá aðgerð er sjúklingurinn við ágæta líðan. Niðurstaða: Aðskilinn lungnahluti getur tengst meltingarvegi rneð beinum eða óbeinum hætti. Þessi tengsl geta ýtt stoðum undir þá kenningu að um meðfæddan galla sé að ræða frekar en áunninn, enda eru lungu og efri meltingarfæri bæði upprunnin frá forgirni á fósturskeiði. 30 Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.