Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Page 30
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VÍSINDI Á VORDÖGUM
V 50 Skurðaðgerðir vegna lungnameinvarpa nýrna-frumu-
krabbameins á íslandi 1984-2006
Sscniundur J. Oddsson12, Helgi Isaksson3, Eiríkur Jónsson'4, Guðmundur V.
Einarsson4,Tómas Guðbjartsson24
1) Læknadeild HÍ, 2) Hjarta- og lungnaskurðdeild, 3) Rannsóknarstofa
Landspítala í meinafræði, 4) J>vagfæraskurðdeild Landspítala
saemiodds@hotmail. com
Inngangur: Við greiningu nýrnafrumukrabbameins eru tæplega
20% sjúklinga með lungnameinvörp. Hluti þessara sjúklinga
hefur stök meinvörp í lunga. Erlendar rannsóknir hafa sýnt
fram á 30-49% sjúkdómsfríar 5-ára lífshorfur hjá völdum
hópi sjúklinga sem fara í brottnám á lungnameinvarpi
nýrnafrumukrabbameins. Tilgangur þessarar rannsóknar var
að kanna afdrif sjúklinga sem gengust undir slíka aðgerð hér á
landi á tímabilinu 1984-2006.
Efniviður og aðferðir: Þessi rannsókn er hluti af stærri rannsókn
á nýrnafrumukrabbameini á íslandi og byggir á gagnagrunni
sem inniheldur alla sjúklinga sem greinst hafa með sjúkdóminn
frá 1971 til 2006.1 þessari afturskyggnu rannsókn voru athugaðir
allir sjúklingar sem greinst höfðu nteð nýrnafrumukrabbamein
sem meinverptust til lungna á tímabilinu 1984-2006 og
gengust undir skurðaðgerð á lunga. Upplýsingar voru
fengnar úr sjúkraskrám og Krabbameinsskrá auk gagnagrunns
rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði. Könnuð voru afdrif
sjúklinganna, fylgikvillar og ltfshorfur. Notast var við TNM
stigun og reiknaðar lífshorfur þar sem útreikningar miðuðust
við 1. mars 2007.
Niðurstöður: Alls gengust 14 sjúklingar undir lungnaaðgerð
vegna meinvarpa frá nýrnafrumukrabbameini á 23 ára tímabili.
I hópnum voru 10 karlar og 4 konur og meðalaldur við greiningu
meinvarpa var 59 ár (bil 45-78 ár). Allir sjúklingarnir höfðu áður
gengist undir nýrnabrottnám, að meðaltali 39 mánuðum áður
(bil 1-132 mánuðir). T-stig upprunalegu nýrnaæxlanna var: T1
(n=l), T2 (n=5), T3a (n=5) og T3b (n=3). Af þeim voru 9 án
eitlameinvarpa (N0) en 6 með dreifð eitlameinvörp (Nl-2).
Lungnameinvarp var þekkt við greiningu hjá einum sjúklingi en
greint síðar (>3 mánuðum frá nýrnaaðgerð) hjá 13 sjúklingum.
Flestir (n=ll) þessara sjúklinga voru með stakt meinvarp,
meðalstærð 27 mm (bil 8-50). Helmingur sjúklinganna gekksl
undir brottnám á lungnalappa (n=7), þrír fóru í fleygskurð og
aðrir þrír í lungnabrottnám. Einn sjúklingur gekkst bæði undir
fleygskurð og brottnám á lungnalappa. Hjá sex sjúklingum
voru meinvörp eingöngu hægra megin en hjá þremur vinstra
megin. Samtals fóru þrír sjúklingar í fleiri en eina aðgerð og
einn sjúklingur fór í aðgerð á báðurn lungurn. Fylgikvillar eftir
aðgerð reyndust fátíðir, sá helsti var gáttaflökt sem greindist
hjá einum sjúklingi. Aðgerðirnar tóku að meðaltali 123 mín
og miðgildi legutíma var 10 dagar. í dag eru fjórir af þessum
sjúklingum á lífi (meðaleftirfylgni 82 mánuðir). Lífshorfur
tveimur árum frá greiningu meinvarpa í lungum voru 64% og
29% eftir fimm ár. Til samanburðar var lifun þeirra sem fóru
ekki í brottnám meinvarpsins (1984-2000) 34% eftir tvö ár og
11% eftir fimm ár.
Alyktun: Árangur brottnáms lungnameinvarpa frá nýrna-
frumukrabbameini er góður í völdum hópi sjúklinga (29% fimm
ára lífshorfur), mun betri en fyrir sjúklinga sem fara ekki aðgerð.
Þó verður að hafa í huga að hér um valinn efnivið að ræða.
V 51 Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration)
getur tengst efri hluta meltingarvegar. - Tvö einstök sjúkra-
tilfelli
Sæmundur Jón Oddsson14, Þráinn Rósmundsson24, Vigdís Pétursdóttir34,
Friðrik E. Yngvason5, Bjarni TorfasonL4,Tómas Guðbjartsson1-4
'Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2skurðdeild Barnaspítala Hringsins, 3rann-
sóknarstofu í meinafræði, Landspítala, 4læknadeild HÍ, 5Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri
saemiodds@hotmail. com
Inngangur: Aðskilinn lungnahluti er sjaldgæfur meðfæddur
galli þar sem lungnavefur er án tengsla við bæði lungnaberkjur
og lungnablóðrás. Lungnahlutinn er nærður af kerfisslagæð
og getur ekki tekið þátt í loftskiptum. Einkenni geta verið
fjölbreytt en eru oftast rakin til endurtekinna lungnasýkinga
og/eða hjartabilunar. Orsök aðskilins lungnahluta er ekki þekkt.
Ein kenning gerir ráð fyrir því að um afleiðingar endurtekinna
lungnasýkinga sé að ræða. Síðari ár hafa þó flestir hallast að því
að orsökin sé um meðfædd. Hér er lýst tveimur mjög sérstökum
tilfellum sem styðja síðari tilgátuna. Þetta eru jafnframt fyrstu
íslensku tilfellin af aðskildum lungnahluta sem lýst hefur verið.
Sjúkratilfelli 1: Nýfætt stúlkubarn gekkst undir skugga-
efnisrannsókn á meltingarvegi vegna þrengingar á skeifugörn
(atresia). Við rannsóknina barst skuggaefni upp í neðra blað
hægra lunga og voru upptökin frá mótum maga og vélinda.
Við skurðaðgerð kom í ljós stór aðskilinn lungnahluti sem var
tvíblaða og lá út í bæði hægra og vinstra brjósthol. Lungnahlutinn
var þakinn eiginn fleiðru og nærður af stórri kviðarholsslagæð.
Lungnahlutinn var fjarlægður með skurðaðgerð.Tveimur árum
frá aðgerð heilsast stúlkunni vel.
Sjúkratilelli 2:18 ára piltur með rúmlega árs sögu um endurtekna
lungnabólgu greindist á tölvusneiðmynd með fyrirferð í miðju
hægra lunga. Við skurðaðgerð sást aðskilinn lungnahluti neðst í
efri lugnalappa. Lungnahlutinn var þakinn eigin fleiðru og inn í
hann gekk berkja sem tengdist 4x5 cm stórri vökvafylltri blöðru.
Vefjagerð blöðrunnar samrýmdist vel vélindavegg. Ekki reyndist
beinn samgangur á milli hennar og vélinda. Efri lungnalappinn
var fjarlægður ásamt lungnahlutanum og blöðrunni. Hálfu ári
frá aðgerð er sjúklingurinn við ágæta líðan.
Niðurstaða: Aðskilinn lungnahluti getur tengst meltingarvegi
rneð beinum eða óbeinum hætti. Þessi tengsl geta ýtt stoðum
undir þá kenningu að um meðfæddan galla sé að ræða frekar en
áunninn, enda eru lungu og efri meltingarfæri bæði upprunnin
frá forgirni á fósturskeiði.
30
Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93
J