Frjáls verslun - 01.05.2011, Síða 41
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 41
„Janne er afar vel skipulögð og heldur gríðarlega vel utan um allt sitt.
Hún er mjög dugleg, með allt sitt á hreinu og ýtir vel á eftir því sem
aðrir eiga að gera,“ segir Guðmundur Bjarnason, verkefnastjóri og
samstarfsmaður Janne í framkvæmdastjórn Alcoa Fjarðaáls. „Mönn
um finnst hún stundum vera heldur bráðlát en hún gefur aldrei neitt
eftir og fær menn til að vinna. Hún á mjög gott með að fá fólk með
sér í átaksverkefni og hún er gríðarlega dugleg að ræða við starfs
menn í verksmiðjunni, enda er henni mjög umhugað um starfsmenn
álversins. Helsti gallinn á henni er að hún fer stundum fram úr sér í
dugnaðinum og inn á verksvið annarra.“
Guðmundur segir að mikill og röggsamur stjórnandi eins og Janne
sé ekki allra „og ekki allir hennar en slíkt einkennir marga röggsama
stjórnendur“.
Hann segir að Janne sé létt, skemmtileg og brosmild. „Hún er hrók
ur alls fagnaðar þegar farið er út að skemmta sér enda dönsk í báðar
ættir!“
(Janne situr í stjórn Aluminiumindustriens Miljøsekretariat (AMS).)
röggsamur stjórnandi
Janne Sigurðsson, framkvæmdastjóri
framleiðslu hjá AlcoaFjarðaáli
Guðmundur Bjarnason, verkefnastjóri
Alcoa Fjarðaáls.
„Það fyrsta sem mér dettur í hug er
þetta áræði í því sem hún er að gera;
sumir myndu kalla þetta þvermóðsku,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, foresti ASÍ
og æskuvinur Aðalheiðar. „Hún hefur
verið mjög fylgin sér í því að innleiða hér
ákveðna kaffimenningu en hún lærði á
sín um tíma kaffibrennslu og ýmislegt í
tengslum við undraheim kaffisins. Eftir
að hún setti fyrirtækið á stofn var gaman
að fylgjast með því hvað hún var einbeitt
í því hvernig hún vildi gera þetta.“ Aðal
heiður hefur lagt sig fram við að kaupa
kaffi beint frá bændum sem tryggir þeim
hærra verð. „Það er til marks um áherslur
Aðal heiðar í uppbyggingu fyrirtækis síns
að hún hefur jafnan styrkt mennta og
skólastarf fyrir börn verkamanna hjá
þeim bændum sem hún kaupir kaffi
baunir af.“
Gylfi segir að Aðalheiður sé skemmtileg
og alltaf glöð og hress. „Það er alltaf glatt
á hjalla þegar maður er með Aðalheiði.
Hún er góður félagi.“
(Aðalheiður er í stjórn Tækniskóla Íslands.)
Mjög fylgin sér
Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs
Gylfi Arnbjörnsson, foresti ASÍ.
„Hún hefur verið mjög
fylgin sér í því að innleiða
hér ákveðna kaffimenningu
en hún lærði á sín um tíma
kaffibrennslu og ýmislegt í
tengslum við undra heim
kaffisins.“
„Móðir mín er stefnu
föst, raunsæ og varkár í
stjórn un,“ segir Sig urður
Ágústs son, framkvæmda
stjóri hjá Agustson ehf.
í Stykkis hólmi og sonur
Rakelar Olsen, en
mæðginin hafa unnið
saman í fjölskyldu
fyrirtækinu í hartnær
tuttugu ár. „Hún er
afbragðsleiðtogi, með
mikil prinsipp sem hún
hefur að leiðarljósi í
rekstrinum og hún er
sanngjarn og hvetjandi
stjórnandi.
Það er afskaplega gott
að vera íhaldssamur og
fastur fyrir í svona rekstri.
Ég er stundum með
full margar hugmyndir
en hún nær mér niður á
jörðina þannig að saman
fúnkerum við afskap lega
vel.“
Sigurður segir að
for eldr ar sínir hafi verið
strangir þegar hann
var að alast upp en
um fram allt sann gjarn
ir og stutt vel við bakið
á sér. „Foreldrar mínir
störfuðu saman og
rekst ur fyrirtækisins
var iðulega ræddur við
morg unverðarborðið þar
sem mikilvægar ákvarð
an ir voru oft teknar og
maður fékk að fylgjast
með því sem var að
gerast inn an dyra.“
(Rakel situr í stjórn Agustson
A/S í Danmörku og í stjórn
Minjaverndar.)
Sanngjörn og hvetjandi
Rakel Olsen, stjórnarformaður Agustson ehf.
Sig urður Ágústs son, framkvæmda stjóri
hjá Agustson ehf.