Frjáls verslun - 01.05.2011, Page 46
46 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
Ákveðin,
sanngjörn
og heiðarleg
Lára V. Júlíusdóttir,
formaður bankaráðs
Seðlabanka Íslands
„Það var strax ljóst að hún var mjög
ákveðin sem smábarn,“ segir Halldór
Kr. Júlíusson, sál fræðingur og bróðir
Láru, sem er þremur árum eldri.
„Hún vissi hvað hún vildi. Hún er
ósérhlífin og vann markvisst að því
sem hún vildi ná og var með mikinn
sjálfsaga.“
Halldór segir að Lára sé frábær
systir. „Hún er mjög umhyggjusöm
gagnvart fjölskyldu sinni og það er
alltaf gott að leita til hennar.“
Halldór segist geta ímyndað sér
að hún sé ákveðin þegar kemur að
stjórnandahlutverkinu en sanngjörn á
sama tíma.
„Ég myndi segja að hún væri ákveð
in, sanngjörn og heiðarleg. Hún setur
sér langtímamarkmið og lætur ekki slá
sig út af laginu með það. Hún hefur
skýra framtíðarsýn, hugsjón og gildi
sem hafa væntanlega leiðbeint henni í
sínum þroska.“
(Lára á sæti í stjórn Vinnuréttindafélagsins
og er dómari í Félagsdómi.)
Halldór Kr. Júlíusson
sál fræðingur.
Lífæð samskipta
Míla býður afþreyingarfyrirtækjum
öruggar dreifileiðir um allt land.
Hvort sem þú fylgist með fótbolta–
liðinu þínu, kúrir þig yfir teiknimynd
með krökkunum á laugardagsmorgni
eða teygir þig eftir vasaklútnum þegar
elskendurnir ná loksins saman, kemur
Míla öllu saman til þín í kyrrþey.
Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Míla sér fjarskipta-, síma- og afþreyingar fyrirtækjum fyrir aðstöðu og dreifileiðum um net
ljósleiðara og kopar strengja sem tengja byggðir landsins við umheiminn. Míla er mikilvægur hlekkur í öryggisfjarskiptum landsins á sjó, landi og lofti.
Alltaf í sjónvarpinu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
0
2
6
www.mila.is