Frjáls verslun - 01.05.2011, Page 54
54 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
Auður Ósk Þórisdóttir,
sviðsstjóri endurskoðunar
sviðs KPMG.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands.
Aðalheiður Birgisdóttir,
eigandi Nikita.
Anna Þórðardóttir,
endurskoðandi KPMG.
Björk Þórarinsdóttir, frkvstj.
fyrirtækjasviðs Arion banka.
„Guðrún er kraftmikil og vinnusöm,“ segir Ari Kristinn
Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík. „Ég hef unnið
með henni í nokkur ár, fyrst sem kollegi í framkvæmda
stjórn og svo sem rektor. Hún skilar því mjög vel sem hún
tekur sér fyrir hendur. Þó að einhverjar hindranir verði á
veginum er hún öflug í því að finna lausnir og leiðir til að
komast að settu marki.
Þetta hefur verið sérstaklega mikilvægt á síðustu árum
þegar hefur verið þrengra um og umhverfi í stjórnenda
menntun og fagmenntun ekki eins og það var áður.
Hún og hennar starfsfólk hafa komist vel í gegnum þetta
tímabil og byggt upp faglegt og gott starf við Opna
háskólann.“
Ari segir að sér finnist ánægjulegt að vinna með
Guðrúnu og hún sé skemmtileg.
„Ég hef ekki annað en góða reynslu af henni.
Guð rún er ákveðin og stendur fast á sínu. Stundum
greinir okkur á eins og eðlilegt er en þó ekki þannig að
leiðindi skapist.“
(Guðrún situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík og
stjórnum Vistor, Klaksins og LeiðtogaAuðar.)
Kraftmikil og vinnusöm
Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri
hjá Háskólanum í Reykjavík
Ari Kristinn Jónsson,
rektor Háskólans í Reykjavík.
„Ég hef ekki annað en góða reynslu af henni. Guð rún er
ákveðin og stendur fast á sínu.“
TURNINUM SMÁRATORGI 3 201 KÓPAVOGI SÍMI 575 7500 FAX: 575 7517 VEISLUTURNINN.IS PANTANIR@VEISLUTURNINN.IS
Við skipuleggjum ráðstefnur, fundi og hvers kyns móttökur og atburði og bjóðum upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir um
500 manns. Hjá okkur er allur tæknibúnaður fyrsta flokks sem nýtist vel til ráðstefnu- og fundarhalda.
Á 20. hæðinni er 330 m² salur sem að rúmar allt að 410 manns í móttöku sem einnig er hægt að skipta saln um í
smærri einingar. Þá höfum við einnig mjög fullkomið fundarherbergi er á 19. hæð ásamt hádegisverðar staðn um
Nítjánda sem einnig er hægt að breyta í fundaraðstöðu.
Ráðstefnur & Fundir