Frjáls verslun - 01.05.2011, Qupperneq 96
96 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
Future Female Project í Noregi
sem Samtök atvinnulífsins
þar í landi settu á fót en þar
var unnið eftir því að gera
samn inga við fyrirtæki um
að nýta kraft kvenna. Þar hóf
hún í rauninni þessa vinnu
sína. Þá sá hún hve mikilvægt
það er fyrir fyrirtæki að fleiri
konur séu í stjórnum og stjórn
unarstöðum og stofnaði fyrir
tækið TalentTuning í kjölfarið.
Hún skrifar greinar, hefur
verið ráðgjafi svo sem um
Ólympíunefndina og Ólym p
íunefnd fatlaðra og hún kem ur
sem ráðgjafi í fyrirtæki til þess
að benda á hvernig þau geti
nýtt konurnar sem þar starfa
til að ná betri árangri. Hún
hefur líka aðstoðað fyrir tæki
við að finna konur til starfa og í
stjórnir. Benja sagði að fyrirtæki
ættu ekki að láta þessi kvótalög
framhjá sér fara; þau væru
tækifæri fyrir fyrirtæki sem
vilja ná árangri að grípa þær
konur sem eru tilbúnar og nýta
þær. Hún sagði þetta hreint
út. Hún sagði að Íslendingar
ættu að taka kvótalögunum
fagnandi til að ná sem bestum
árangri.
Benja sagði ennfremur að
konur væru sterkasta aflið í
efna hagslegum vexti og að
þær væru tækifæri sem enginn
ætti að láta framhjá sér fara.
Hún spurði hvort við hefðum
efni á að „ignorera“ þetta.
Hún sagði að þrátt fyrir allar
rannsóknir og sannanir þess
um hve mikilvægar konur
séu vexti og arði fyrirtækja sé
enn verið að spyrja hvað sé að
þessum konum sem ekki ná
alla leið á toppinn. Hún sagði
að það ætti frekar að spyrja
hvað væri að þessum stjórnum
og fyrirtækjum ef þau eru ekki
fær um að laða að sér, halda í
og setja í framvarðasveit sína
meirihluta menntaðs fólks
sem eru konur. Benja benti á
að um 60% af útskrifuðum
háskóla nem um bæði í Evrópu
og Bandaríkj un um væru
konur og hún heldur því fram
að það mætti hækka verga
þjóðarframleiðslu um 13%
með því að nýta þetta hæfi
leikagap af því að konur eru
ekki nýttar nógu mikið. Svo
kemur að konur eru oft með
minni fyrirtæki en væru að búa
til fleiri störf heldur en önnur.
Hún sagði að nauðsyn væri á
byltingu hvað hugsunarhátt
varðar.“
Hugarfarsbreyting
nauðsynleg
Ingibjörg er sammála um að
nauðsyn sé á hugarfars breyt
ingu og að fagmennska og
gagnsæi þurfi að vera við val á
fólki í stjórnir. „Eins og þegar
hefur komið fram er meiri
hluti þeirra sem útskrifast
úr háskólum konur og það
þarf enginn að segja mér að
þeir karlar sem útskrifast séu
miklu betri en konurnar. Það
er einfaldlega ekki verið að
nýta alla hæfileikana sem eru
til staðar. Það er alvara þessa
máls. Við þurfum að komast
upp úr hjólförunum hvað þetta
varðar. Við í alþjóðanefndinni
höfum búið til orðatiltækið
„hærri hælar þýðir meiri
arður“. Rannsóknir virðast
sýna það. Af hverju er þá ekki
verið að nýta þessa hæfileika
sem til eru? Ég hef heyrt þau
viðhorf að „við erum nú með
eina konu í stjórninni“. Á það
bara að vera nóg? Konur og
karlar vinna best saman. Það
er ekkert jafnvægi ef ein kona
er í stjórn með tíu körlum.
Þá er hætta á að konan verði
utangátta, jafnvel spurning
hvort hún sé til uppfyllingar
eða út af einhverjum kvóta.
Þeir ná bestum árangri sem
eru með hæfustu einstakl
ing ana af báðum kynjum. Í
framkvæmdahópi ráðstefn
unn ar göntuðumst við með
það hvort ástæðan fyrir fá
um konum í stjórnum væri
hræð sla við að stjórnarfundir
yrðu lengri með fleiri konum
innanborðs. Að konur tali
meira; að þær spyrðu ekki bara
um tölurnar heldur um starfs
fólkið, líðan þeirra og hagi og
tækju tíma í að ræða menn og
málefni fyrirtækisins. Það er
jú alltaf svo gott að finna góða
ástæðu!“
Ingibjörg segir að á Spáni, í
Frakklandi og Belgíu sé verið
að setja lög um kynjakvóta
auk þess sem verið sé að skoða
þetta mál í Þýskalandi. „Það
er litið til Norðmanna í þessu
sambandi. Þegar við höfðum
samband við norska sendiráðið
út af ráðstefnunni þá var það
miklu meira en sjálfsagt að
að stoða okkur því Norðmenn
ætla sér að vera í forystu hvað
þessi mál varðar. Sendiherrann
hélt kvöldverðarmóttöku í
tilefni ráðstefnunnar þar sem
hann fagnaði þessum um ræð
um og tengingum við norsku
reynsluna.“
Aðspurð hverju ráðstefnan
hafi skilað segir Ingibjörg vera
það að þessi mál hafi verið
rædd á jákvæðum nótum.
„Það var ekkert væl og það var
ekki verið að kenna neinum
um. Það var bara verið að
taka stöðuna og segja að ef
við ætlum að gera okkar besta
þá þurfum við að nýta krafta
beggja kynja. Þarna fengum við
svart á hvítu staðreyndir um að
það skilar bestum árangri. Við
í alþjóðanefnd Félags kvenna
í atvinnurekstri höfum verið
að vinna úr niðurstöðum ráð
stefnunnar. Þar er af nógu að
taka og hlökkum við til að
vinna þetta áfram á sam vinnu
grund velli beggja kynja. Það
skilar okkur mestum arði.“
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Benja Stig Fagerland er eigandi fyrir tæk isins TalentTuning.
Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Creditinfo og Ásbjörn Gíslason, forstjóri
Samskipa voru kynnar á ráðstefnunni.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans, flutti erindi um jafnréttis-
stefnu Landsbankans.
Árni Páll Árnason, efnahags- og við-
skiptaráðherra, setti ráð stefnuna.