Frjáls verslun - 01.05.2011, Page 105
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 105
allir stjórnendur
Cintamani eru konur
Hlutfall kvenna á meðal stjórnenda Pennans er 55%; þ.m.t. framkvæmda s tjórn, sviðsstjórar og
versl unarstjórar. Það sitja tvær konur í stjórn
fyrir tækisins af fimm stjórnarmönn um.
Hversu margir kvendeildarstjórar starfa
hjá ykkur?
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðs
stjóri Pennans, segir að starfs stöðvar fyrir
tækisins séu dreifðar og tilheyri skrifstofu,
verslunum og lager: „Alls eru verslanir
Pennans 18 talsins á landsvísu. Á þessum
starfsstöðvum starfa samtals 16 konur sem
millistjórnendur. Það má því með sanni
segja að fyrirtækið búi yfir miklu og góðu
kvenlegu innsæi.
Penninn er með ákveðna stefnu í jafnrétt
ismálum sem er hluti af starfsmannastefnu
fyrirtækisins. Hún gengur í meginatriðum
út á að jafna stöðu karla og kvenna hjá fyrir
tækinu. Gætt er jafnréttis við ráðningar og
leitast er við að greiða jöfn laun fyrir sömu
eða jafnverðmæt störf. Sama gildir um
starfsþróun, stöðubreytingar, símenntun
og önnur starfsskilyrði. Eitt af markmiðum
fyrirtækisins er að láta ekki sitt eftir liggja í
að rjúfa staðalmyndir kynjanna á vinnu
markaði þannig að bæði kynin eiga að
geta gengið í öll störf. Þannig hámarkar
Penninn bestu nýtingu á starfsfólki og
eykur fjölbreytni og sveigjanleika á fáan
legum störfum innan fyrirtækisins. Þegar
fyrirtækið leitar eftir starfsfólki er horft á
hæfasta einstaklinginn fyrir starfið hverju
sinni, burtséð frá því hvort umsækjandi er
karl eða kona.´“
Stöðug þróun á
vörum og þjónuStu
Hvernig árar um þessar mundir hjá
Pennanum?
„Að undanförnu hafa staðið yfir hag ræð
ingar í rekstri fyrirtækisins og horfum við
björtum augum á framtíðina.“
Eru einhverjar nýjungar á döfinni?
„Við hjá Pennanum erum sífellt að þróa
vöru okkar og þjónustu sem sinnir þörfum
markaðarins hverju sinni. Á næstunni munu
t.d. rúmlega 120.000 erlendir rafbóka titlar
verða aðgengilegir á nýrri og bættri vef síðu;
eymundsson.is. Einnig erum við óneit anlega
stolt af því að stærsti hlutinn af sætum og
stólum sem valin voru inn í Hörpu tónlistar
hús eru frá Pennanum.“
Penninn er með
ákveðna stefnu í jafnréttismálum
„Á næstunni munu t.d. rúmlega 120.000 erlendir rafbókatitlar verða aðgengi-
legir á nýrri og bættri vefsíðu; eymundsson.is.“
Penninn
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Pennans.
Eitt af markmiðum Pennans er að láta ekki sitt eftir liggja í að rjúfa staðalmyndir kynjanna á vinnumarkaði þannig að bæði kynin eiga að geta gengið í öll störf.