Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2011, Side 133

Frjáls verslun - 01.05.2011, Side 133
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 133 stjórnunar nálgun enda var hún hugs uður nýsköp unar, þar sem ómögulegt væri að skilja á milli starfsfólks og stjórnenda. Í því sambandi fjall aði hún fyrst allra um hugtakið empowerment, þar sem starfsfólk fær umboð til athafna og ber mikla ábyrgð og umboð til að framkvæma tiltekin verkefni. Valdið með eða valdið yfir Þessi umræða hennar um um ­ boð til athafna tengdist hug takinu vald. Hún talaði um tvenns konar vald: valdið með (power­with) og valdið yfir (power­over). Vald væri eitthvað sem yfirmaður og undirmaður ættu að þróa sam eiginlega og þvingunarlaust. Valdið með stuðlaði að per són u­ legri þróun starfsmanns ins, þ.e. að undirmenn fengju tækifæri til að þróa hæfileika sína og eiginleika. Slíkt viðhorf stuðlaði að samstarfi í stað samkeppni. Follett áleit að þegar starfsfólk blómstraði í starfi gerði viðkom­ andi skipulagsheild það einnig og skilaði þar með auknum arði til hluthafa. Hún sagði að vald­ dreifing innan skipulagsheilda væri óendanlega mikilvæg. Valdið yfir væri gamaldags og úr sér gengin stjórnunaraðferð innan stigveldisins (hierarchy). Hún vildi þar af leiðandi ekki einskorða valdið við formlegar stöður innan stigveldisins. Hún sá valdið sem ákveðna getu eða hæfileika til að framkvæma tiltekin verkefni. Valdið tengdist því þekkingu og reynslu viðkom­ andi starfsmanns hvar svo sem hann væri staðsettur innan stigveldisins. Áhrif og myndug­ leiki fylgdu þeirri þekkingu og reynslu sem væri fyrir hendi innan skipulagsheildar. Follett talaði um lögmál aðstæðna (the law of situations) sem birtist í því að leiðtoginn uppgötvaði lögmál aðstæðna og hlýddi þeim. Hann leiddi hópinn í því að finna út aðgerðir sem gripið skyldi til í ljósi aðstæðna. Al­ mennur starfsmaður gæti alveg eins og forstjórinn uppgötvað þetta lögmál aðstæðnanna. Þá gæti hann fræðilega gefið yfirmanni sínum skipun ef því væri að skipta. uppbyggilegur ágreiningur Follett skrifaði ritgerð árið 1925 sem fjallaði um ágreining og hvernig hann gæti verið upp­ byggi legur í stað þess að vera niðurbrjótandi. Ritgerðin bar heitið Constructive Conflict. Hún sagði í henni að ágreining­ ur væri óumflýjanlegur. Follett fjallaði í ítarlegu máli um lausn og stjórnun ágreiningsmála, þar sem málamiðlun ætti sér stað. Seinna var þessi boðskapur hennar umorðaður af öðrum fræði mönnum og nefndur win­win, þar sem deiluaðilar semja á þeim forsendum að halda reisn sinni og koma vel út úr ágreiningi. Á þann hátt yrði niðurstaðan ávinningur fyrir báða aðila. Leiðtogamennska og fylgdar­ mennska Follett sagði að farsæll leiðtogi væri sá sem gæti höndlað að ­ stæður eins og þær þróuðust hverju sinni. Hann væri sá sem umbreytti reynslu sinni og hóps­ ins í jákvæðar athafnir. Hún taldi að leiðtogamennska væri sam­ bland vísinda og lista. Hana væri hægt að læra og þróa. Hún mótmælti samtímaviðhorf­ um þess efnis að leiðtogar þyrftu að vera ráðandi og her­ skáir persónuleikar. Leiðtogar þyrftu frekar að vera auðmjúkir og sýna gott fordæmi með verk um sínum. Heilindi væru grundvallareiginleiki þeirra. Í allri umfjöllun sinni um starfs­ menn skipulagsheilda ítrekaði hún mikilvægi þess að þeir nytu þeirrar virðingar sem þeir ættu skilið. Hún talaði um leiðtoga og fylgjendur. Með því móti vildi hún gera fylgjendur sýnilega og minna á mikilvægi þeirra og þá staðreynd að leiðtogar væru ekki til án fylgjenda. Leiðtoga­ mennska og fylgdarmennska væru hvor sín hliðin á sama pen­ ingi ef svo mætti segja. Follett féll í gleymsku Eftir lát sitt árið 1933 féll hún fljótt í gleymsku í Bandaríkjun­ um. Ástæður þess voru ýmsar, eins og til dæmis kreppa fjórða áratugarins og hið gríðarlega atvinnuleysi sem fylgdi henni. Þá tóku styrjaldarárin við með alla sína sterku og ráðandi leið toga. Í kjölfar styrjaldarinnar tóku síðan við ár uppbyggingar þar sem áhersluatriði Follett áttu ekki upp á pallborðið hjá stjórnendum skipulagsheilda þess tíma í Bandaríkjunum. Hins vegar féll hún aldrei í gleym sku í Bretlandi, en í því landi var hún ávallt í hávegum höfð. Japanir mátu hana einnig mikils enda féllu hugmyndir hennar um hlutverk einstaklinga í hópum þeim vel í geð. Japanir stofnuðu sérstakt Follettfélag á miðjum sjötta áratug síðustu aldar, en innan vébanda þess rannsökuðu þeir verk hennar. Áhrifa hennar gætti mjög í þeirri efnahagslegu velgengni sem Japanir nutu á sjöunda og átt­ unda áratug síðustu aldar. Drucker uppgötvaði Follett Segja má, að það hafi verið Drucker sem uppgötvaði hinn gleymda snilling í Bandaríkjun­ um upp úr 1950. Hann nefndi hana völvu stjórnunarfræðanna þar sem hann áttaði sig á djúpu innsæi hennar og yfirsýn. Hún gerði sér skýra grein fyrir verðleikum starfsfólks og þeirri vannýttu auðlind sem það gat verið innan skipulagsheilda. Foll­ ett sagði að leysa þyrfti ork una úr læðingi sem byggi innra með hverri manneskju og þá mögu­ leika sem þar væru til staðar. Góðir stjórnendur þurfa að geta nýtt sér þessa auðlind fyrir tækjum sínum til heilla. Þeim sann leika mega leiðtogar og stjórn endur aldrei gleyma, að starfs fólkið er og verður stærsta og mikilvægasta auðlindin, sem hefur úrslitaáhrif á velgengni fyrir tækisins. jafnréttisstEfna fyrirtækja Follett fjallaði í ítarlegu máli um lausn og stjórnun ágrein­ ingsmála, þar sem málamiðlun ætti sér stað. Seinna var þessi boðskapur hennar umorð­ aður af öðrum fræðimönnum og nefndur win­ win, þar sem deiluaðilar semja á þeim for sendum að halda reisn sinni. Mary Parker Follett fæddist í Quincy í Massachusetts í Bandaríkjunum. Hún lauk prófi frá Radcliffe College í Harvardháskólanum. Hún var með hæstu einkunn í hagfræði, lögum, heimspeki og stjórnmálafræði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.