Frjáls verslun - 01.04.2011, Side 73
FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011 73
Ólafur
ThorS
Einu sinni voru Thorsarar
miðpunktur þjóðfélagsum-
ræðunnar á Íslandi. Þeir
mótuðu hefðir í stjórnmálum
og viðskipt um á fyrri hluta
20. aldar.
Ævisagan eftir á að hyggja – guðmundur
magnússon um thorsarana:
Einu sinni voru Thorsarar miðpunktur
þjóðfélagsumræðunnar á Íslandi. Þeir
mótuðu hefðir í stjórnmálum og viðskipt
um á fyrri hluta 20. aldar. Svo hurfu
þeir í skugga annarra umdeildra karla og
kvenna – allir nema einn. Það er Ólafur
Thors. Guðmundur Magnússon sagn
fræð ingur skrifaði sögu Thorsara fyrir
fimm árum. Hvernig lítur hann á verk
sitt núna eftir hrun?
ÓlAfur tHors er enn
fyrirmyndin
Saga Thorsaranna er ekki ævisaga heldur ættarsaga skrifuð með aðferðum ævisögunnar. Höfundurinn byggði á miklu af áður ókönnuðum frumheimildum, þar á meðal úr Landsbankanum og Þjóðskjala
safninu um Kveldúlf hf., og á einkaskjalasafni Ric h
ards Thors, eins valdamesta manns Íslandssögunnar,
eldri bróður Ólafs Thors, sem fimm sinnum var
forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins í
þrjá áratugi.
Guðmundur Magnússon segir að þegar hann skrif
aði söguna fyrir fimm árum hafi aðeins minning
Ólafs Thors lifað meðal almennings. Segja má að svo
sé enn. Ólafur varð þjóðsagnapesóna í lifanda lífi og
er það enn, nær hálfri öld eftir andlátið. Nöfn annarra
Thorsara af fyrri kynslóðum eru lítt kunn öllum
al menningi. Margir þjóðkunnir menn eru þó af ætt
Thorsara, en þeir eru þekktir af öðru en ætterninu.
sameinaði marga kosti
„Ég held að í það minnsta fyrir sjálfstæðismenn sé Ólaf
ur Thors enn fyrirmyndarleiðtoginn,“ segir Guðmund
ur. „Hann var allt í senn atkvæðamikill sem stjórnmála
maður og útgerðarmaður en líka alþýðleg ur og
nota legur. Hann þekkti kjör almennings og hann þekkti
þarfir atvinnulífsins og var orðheppinn og skemmtileg
ur. Síðari leiðtogar flokksins hafa ekki náð að sameina
allt þetta en þeir eru meðvitað eða ómeðvitað bornir
saman við fyrirmyndina.“ Í sögu Thorsaranna er Ólafur
fyrir ferðarmikill. Hann var andlit fjölskyldu sem í þrjár
kynslóðir eða meira en hálfa öld var meðal valdamestu
fjölskyldna á Íslandi – á tímabili sú valdamesta. Nær
alla öldina og langt fram á viðreisnarár voru Thorsarar
daglegt efni blaða og þjóðfélagsumræðunnar og Ólafur
oft ast. Hann var bæði hataður og dáður. „Þegar ég réðst
í að skrifa um Thorsarana var þetta fólk að miklu leyti
gleymt, að Ólafi undanteknum. Það er merkilegt, svo
umtalaðir og umdeildir sem Thorsarar voru áður,“ segir
Guðmundur.
texti:gísli Kristjánsson
myndir: BorgarsKjalasafn reyKjavíKUr