Frjáls verslun - 01.04.2011, Síða 82
82 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
afi minn athafnamaðurinn
M
agnús Þorgeirsson í Pfaff
var í meira en hálfa öld ein
hver kunnasti kaupmaður
í Reykjavík og umtalaður
maður í bænum allt þar til
hann lést árið 1983 rúmlega áttræður. Hann
var farsæll verslunareigandi í hálfa öld en
frægð hans var ef til vill mest þegar leið að
ævilokum. Þá hélt hann svokallað „skugga
ráðuneyti“ á skrifstofu sinni á Bergstaða
stræti 7. Þetta var á miklum umbrotatímum
í íslenskum stjórnmálum eftir daga viðreisn
arstjórnarinnar og mjög deildar meiningar
um hvert bæri að stefna í stjórn landsins.
Magnús var íhaldsmaður af gamla
skólanumenvinmarguríöllumflokkum.Á
áttunda áratugnum tók að koma til hans í
morgunkaffihópurþjóðkunnramannaað
ræða landsins gagn og nauðsynjar. Þetta
gerðist klukkan tíu sex daga vikunnar og
það var króna í sekt fyrir að mæta ekki.
Þessi hópur gekk undir nafninu skugga
ráðu neytið. Það skipuðu Magnús Þorgeirs
son, húsráðandi og alltaf kenndur við Pfaff,
Kristmann Magnússon, sonur hans og
þá framkvæmdastjóri Pfaff, Albert Guð
munds son, Lúðvík Jósefsson, Pétur
Snæ land, framleiðandi svampdýna, Lárus
Blöndal bóksali, Ólafur Finnbogason í
Pennaviðgerðinni og Jónsteinn Haralds
son í Máli og menningu. Fleiri komu og voru
fastagestir, þar á meðal Guðmundur J.
Guð mundsson, öðru nafni Gvendur jaki, og
Stefán Jónsson fréttamaður.
Þarna voru sem sagt þingmenn, ráðherr
ar og athafnamenn og mjög þverþólitískur
hópur eins sagt væri í dag. Þetta þótti að
dá unarvert og sniðugt uppátæki hjá öllum
öðrum en sonardótturinni og unglingnum
Margréti.„AfivarmeðskrifstofuáBergstaða
stræti 7 og fjölskylda mín bjó á hæðun um
fyrir ofan,“ segir Margrét um góðlátlega
andstöðu sína við skuggaráðuneytið. „Þegar
égfluttiaðheimanfluttiégbaraniðurum
eina hæð, á sömu hæð og skrifstofa afa
var þar sem karl arnir sátu og voru oft ansi
háværir. Þetta var sérstaklega hvimleitt á
laugardagsmorgn um þegar ég hafði verið
úti að skemmta mér langt fram eftir nóttu og
þurfti svefn eins og unglinga er siður.“
Viðskipti byggð á trausti
Þettamorgunónæðierþófyrirgefiðfyrir
löngu og Margrét leynir ekki aðdáun sinni á
afa sínum. „Viðskipti hans byggðust á trausti
og þess um gömlu gildum,“ segir hún. „Hann
varmannþekkjarioghafðitilfinningufyrir
hverj um hann gat treyst.“ Hún nefnir sem
dæmiaðeittsinnfékkafihennarbréffrá
Ásmundi Stefánssyni á Akureyri, manni sem
hafði veikst alvarlega af berklum en hugðist
koma upp lítilli prjóna stofu. Hann spurðist fyrir
umkaupáprjónavélum.„Afiþekktimanninn
ekkert en sendi honum vél og bað hann að
borgaviðfyrstatækifæri.Þettavarupphafið
að Fata verk smiðjunni Heklu og gleymdi Ás
mundur aldrei þessum greiða og var traustur
viðskipta vinur í áratugi,“ segir Margrét.
Síbreytilegar aðstæður
AnnaðeinkenniáMagnúsiíPfaffvarhæfi
leikinn til að bregðast við breyttum að stæð um.
Það er ekki í fyrsta sinn núna sem aðstæður til
atvinnurekstrar eru ótryggar á Íslandi.
„Afistofnaðifyrirtækiðþegarkreppan
mikla var að skella á og byggði það upp
þrátt fyrir fátækt og heimsstyrjöld og svo
gjald eyrishöft og skammtanir eftir stríð,“
segirMargrét.„Íupphafivarinnflutningur
Pfaff frá Þýskalandi. Þau viðskipti stöðvuðust
alvegísíðariheimsstyrjöld.Þáfórafim.a.
aðflytjainnbarnavagna,marmaramulningá
hús og sprengiefni!“
Síðar hafa áherslur hjá fyrirtækinu breyst
með breyttum aðstæðum; til dæmis þegar
sauma og prjónaiðnaður hvarf úr landi fyrir
áratugum.„Þaðvarhreintilviljunaðafibyrjaði
á þess um rekstri,“ segir Margrét. „Emilía systir
hans bað hann árið 1929 að útvega sér
saumavél.Afivarþábúinnaðlæratöluvert
í þýsku í sjálfsnámi og hann skrifaði til Pfaff
og pant aði vél. Það gekk ekki að kaupa
eina vél en honum var boðið umboðið fyrir
Pfaff á Íslandi ef hann pantaði sex vélar og
það gerði hann.“ Magnús var ekki ókunn
ugur verslunar rekstri á þessum tíma. Hann
var þá verslunarstjóri hjá Verzlun Marteins
Einarssonar á Laugavegi – í húsinu þar sem
Biskups stofa er nú. Þar var þá ein glæsi
legasta tískuverslun landsins. Fyrir þann
tíma var Magnús bæði sendill og afgreiðslu
maður hjá kaupmönnum í Reykjavík. Hann
byrjaði raunar sem sendill hjá SS.
Nú á tímum er að mestu gleymt að Magnús
Þorgeirsson í Pfaff var líka afreksmaður í
einni vinsælustu íþróttagrein landsmanna í
upphafisíðustualdar.HannvarfyrstiÍslands
meistarinnífimleikumogvarífimleikaflokki
ÍR. Fimleikar voru sýningaratriði á öllum
alvörusamkomum í den.
„Afi var kaupmaður,“ segir Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff.
„Hann var kaupmaður eins og þeir voru áður í Reykjavík. Honum datt ekki í
hug að fara út úr húsi án þess að hafa hatt og frakka en í fyrirtækinu vann
hann öll verk sem þurfti að vinna.“
Viðskiptin
byggðust á trausti
„Það gekk ekki að kaupa
eina vél en honum var boðið
umboðið fyrir Pfaff á Íslandi
ef hann pantaði sex vélar og
það gerði hann.“
texti: gísli Kristjánsson
Afi minn AthAfnAmAðurinn – mArgrét KristmAnnsdóttir segir frá mAgnúsi í PfAff
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff.
Margrét Kristmannsdóttir, nýorðin stúdent 1982,
við hlið Magnúsar Þorgeirssonar afa síns.
- með þér alla leið -
www.miklaborg.is Síðumúla 13 108 Reykjavík Sími: 569 7000
Fáðu Innlit fyrir eignina þína!
Tryggðu eigninni þinni
samkeppnisforskot
Kynntu þér Innlitin á
www.miklaborg.is
flakkaðu á
milli hæða
nánari
upplýsingar
helstu
upplýsingar
flakkaðu á
milli herbergja
og áttaðu þig
á afstöðunni
utanhúss
sjónarhorn
skoðaðu
frá öðrum
sjónarhornum
náðu sambandi
við viðkomandi
sölumann