Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.07.2011, Blaðsíða 45
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 45 Oxymap byggist á hugmynd dr. Einars Stefánssonar prófessors um að nýta geim tækni frá NASA við að skoða augnbotna. Einar hefur um þriggja áratuga skeið unnið að rannsóknum innan augnlækninga og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar á því sviði. Hann fékk gullverðlaun Evrópsku augn­ læknaakademíunnar árið 2009 fyrir uppfinn­ ingu sína, svokölluð GONIN­verðlaun. Hugmyndin er að nota tækni við fjarkönn­ un á yfirborði jarðar og yfirfæra hana til að rannsaka augnbotna. Í báðum tilvikum er leitast við að mæla efnasamsetningu úr fjarlægð. Við augnlækningar nýtist þetta til að finna hugsanlegan sjónskaða, til dæmis vegna sykursýki, hrörnunar í augnbotnum og gláku á fyrstu stigum. Til að skoða augnbotnana hefur tækið Oxi­ meter verið búið til hjá Oxymap. Einmitt þegar Frjáls verslun birti viðtal við frum­ kvöðulinn Einar Stefánsson í sprotablaðinu 2008 var hann að leggja á ráðin um næstu skref. Frumgerð Oximeter var orðin til og næst að prófa tækið á rannsóknarstofum, fá það viðurkennt og undirbúa fjöldafram­ leiðslu. ljón á Veginum Fyrirtækið var stofnað 2002 og hrunhaustið 2008 komu fjárfestar að verkefninu. Þar lögðu saman Nýsköpunarsjóður atvinnulíf s­ ins með 80% hlutafjár og níu fjárfestar með afganginn. Fyrir þeim hópi fór Árni Þór Árna son, áður einn af eigendum Austur­ bakka hf., nú framkvæmdastjóri Oxymap. Hvernig gekk að stíga skrefið frá vísindun um og út á markaðinn? „Það fyrsta sem gerðist var að tækið reynd ist of flókið til notkunar úti á rann­ sóknar stofum. Það var ákveðið að endur­ hanna það og einfalda,“ segir Árni. Meðal annars var ákveðið að nýta ekki gamlar augnbotnamyndavélar á stofunum. Þær reyndust oft ekki nógu góðar, stafrænni myndavélatækni hafði fleygt fram svo notaðar voru tvær myndavélar í stað einnar og betri gerð af augnbotnamyndavélum. Þetta var hinn tæknilegi vandi sem kom upp. Menn sem kunna á upphaflega tækið nota það vandræðalaust en fyrir ókunnuga reyndist þetta of flókið,“ segir Árni. Við þetta tafðist ferlið um eitt ár en nú er búið að framleiða sextán Oximeter­tæki. Sex eru í prófunum í Evrópu, önnur fjögur í Ameríku og verið að semja um sölu/leigu í fleiri heimsálfum. Íhlutir eru bandarískir og tækið er sett saman í Arizona. Verðmætasti hluti þess er þó hugbúnaðurinn sem þró að­ ur hefur verið hjá Oxymap á Íslandi. Árni segir að þetta sýni að það þurfi þol inmæði og fé til að koma nýrri tækni á markað. Sérstaklega reynir á þolinmæð ina þegar kemur að lækningatækjum. Þar þarf miklar prófanir við margar rannsóknarstofn­ anir og vottanir. „Við sýndum tækið fyrst á rannsóknar­ þingi í augnlækningum 2010 í Flórída og vakti það mikinn áhuga,“ segir Árni. „Marg ir af frægustu rannsóknarspítölun­ um vilja vera með en eru vanir að fá tækin gefins. Það gengur ekki hjá okkur og hægir það eitthvað á útbreiðslunni. Tækið sjálft kostar um átta milljónir króna. fé Úr ýmsum áttum Við stefnum á að fyrirtækið verði sjálfbært í ár,“ segir Árni. Hann segist mæla með því sem módeli að opinberir sjóðir og fjárfestar leggi saman við að ýta góðum hugmynd­ um áfram. „Einstakir fjárfestar geta ekki lagt alla sína peninga í nýja hugmynd en vilja gjarnan vera með,“ segir Árni. Þannig kom hann sjálfur að fyrirtækinu og þann­ ig er fjárhagslegur grundvöllur Oxymap myndaður. Í stjórninni eru fimm; tveir frá frumherjunum, aðrir tveir frá fjárfestum og kona sem var óháð fyrirtækinu en með reynslu af bæði vísindum og rekstri í heil­ brigðisgreinum. „Það styrkir fyrirtækið,“ segir Árni. tækið komið í prófun Oxymap er sprotafyrirtæki, sem fjallað var um í Frjálsri verslun fyrir þremur árum, árið 2008. Þá stóð fyrirtækið á tímamótum. Tiltekið vísind a- verkefni var komið á það stig að prófanir á fyrstu tækjum voru næstar. En hvernig hefur gengið síðan? Oxymap Árni Þór Árnason. „Við stefnum á að fyrirtækið verði sjálfbært í ár.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.