Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 48

Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 48
48 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 Bill Gates var bæði útsjónarsamur og óvæginn stjórnandi: Bill Gates settist í helgan stein sumarið 2008, tæp lega 53 ára gamall. Þá mörg undanfarin ár talinn ríkasti maður heims og eftirsóttur fyrirlesari og rithöfundur. Snillingur í sinni grein og almennt í viðskiptum. Af hverju? TexTi: gíSli KriSTjánSSon Yfirleitt eru tvær ástæður tald­ar fyrir árangri Bills Gates í viðskiptum. Annars vegar yfirburðaþekking á forrit­un fyrir tölvur. Hins vegar þykir maðurinn ákaflega marksækinn. Sem stjórnandi er hann andstæða Steves Jobs, fyrrver andi stjóra hjá Apple. Þeir keppinautar eru jafngamlir en aðstæður í uppvexti voru ólíkar. William Henry Gates III er af vel stæðu fólki kominn; lögfræðingum og bankamönn um að langfeðgatali, og sjálfur átti hann að verða lögfræð ingur eins og faðir hans. Hann gekk á bestu einkaskóla og fór svo til Harvard. En áhuginn var ekki á lögfræði heldur á tölvum. Hann byrjaði að forrita 13 ára gamall, löngu áður en borðtölvur okkar tíma urðu til. Og 13 árum síðar – 26 ára gam all – samdi hann við IBM um að leggja skrifstofu­ vélarisanum til stýrikerfi í borðtölvur, svokallað MS­DOS. Þetta var upphafið að tölvubyltingunni, sem enn stendur. Síðar kom Windows­kerfið sem nú er í um 90% af öllum tölvum í heimin um. Yfirforritari var Bill Gates, forstjóri Microsoft. Bestur í sókn og vörn Þetta kann að virðast bein og breið braut. Undir stjórn Bills Gates náði Microsoft nán­ ast einokun á sviði stýrikerfa fyrir tölv ur. Allt varð helst að vera samhæft forr itum félagsins og helsti keppinaut urinn, Apple, lítill á þessum markaði. Ásakanir og lögsóknir vegna einokunar á markaði voru lengi eitt erfið asta vanda­ mál Microsoft. Stærsta málið var lögsókn Bandaríkjastjórnar árið 1998 vegna þess að Microsoft seldi netvafra sinn, Explorer, sem hluta af Windows. Það takmarkaði möguleika annarra framleiðanda vafra á að koma sinni vöru á markað. Við yfirheyrslur þótti Bill Gates frakk ur. Hann mundi ekki lengur mikilvæg atriði og reifst við dómarann um merkingu orða. Málið endaði í sátt þar sem Micro soft lofaði að leggja ekki stein í götu annarra. Núna hefur Apple reynt að koma sér upp svipaðri stöðu með i­n ot endabúnaði sínum. gefur allt sem hann græddi Bill Gates þótti harður stjórnandi. Hann varði stöðu fyrirtækisins með kjafti og klóm og undirmenn hans bera hon um ekki allir vel söguna. Hann þótti kaldhæð inn sem stjórnandi og átti það til að niðurlægja fólk á fundum. Aðalatriðið var alltaf að styrkja og verja stöðu fyrirtækisins. Þessi mynd stingur nokkuð í stúf við rólega og yfirvegaða framkomu Bills Gates á opinberum vetvangi núna. Hann er tal inn mikilvægur frumkvöðull í stjórnun enda hlýtur maður, sem náð hefur slíkum ár­ angri, að kunna sitthvað fyrir sér. Síðustu árin hjá Microsoft var hann fyrst og fremst stjórnandi og kom lítið að sjálfri þróunar­ vinnunni. Núna hefur Bill Gates það helst fyrir stafni að eyða auði sínum í góð málefni. Hann á að því er talið er um 40 milljarða Bandaríkjadala og er nú annar ríkasti mað ­ ur heims samkvæmt tímaritinu Forbes. Hann skrifar bækur um stjórnun, heldur fyrir lestra og er almennt miklu prúðari mað ur en hann var á yngri árum. Bill Gates var frá táningsaldri meðal fremstu forritara í heimi. „Hann mundi ekki lengur mikilvæg atriði og reifst við dómarann um merkingu orða.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.