Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
S t J ó r n u n
sér fjármálafræði og líta á heildarkostnað þegar pöntun er gerð.
Ekki er nóg að líta á magnafslætti, greiðslufresti, flutningsgjöld og
fleiri þætti sem hafa áhrif á innkaupakostnað, einnig þarf að taka
kostnað við fjárbindingu í birgðum með í
myndina.
Með skilvirkri stýringu innkaupa
og birgða og langra greiðslufresta hefur
mörgum fyrirtækjum tekist að vinna með
svokölluðu neikvæðu lausafé (“negative
working capital”) sem þýðir að þau greiða
lánadrottnum löngu eftir að vörurnar hafa
verið innheimtar hjá viðskiptavinum. Þessi
leið minnkar fjárþörf fyrirtækja og leiðir til minni fjárbindingar í
birgðum. Dæmi um slík fyrirtæki eru Dell og ALDI. Veltuhraði
birgða hjá slíkum fyrirtækjum er mjög hár og afhendingartími
mjög stuttur. Þau þurfa ekki að fjármagna birgðir sínar heldur
kemur það í hlut birgjanna.
tÆkiFÆrin eru VÍða
Nú eru tækifæri til að beita aðferðum
rekstrarstjórnunar til að ná auknum
árangri í rekstri fyrirtækja. Auknar kröfur
eru um meiri framleiðni, bætta nýtingu
og betra skipulag vinnuferla.
Fræðimenn á sviði stjórnunar telja
að nú sé komið að því að laga verkferla,
minnka vörubirgðir, bæta upplýsingaflæði milli fyrirtækja og bæta
þjónustu með aðferðum Rekstrarstjórnunar. Stjórnendur hafa
áttað sig á þessari staðreynd auk þess sem það leynast tækifæri til að
hagræða og ná fram hagnaði innan fyrirtækjanna í formi umbóta í
rekstri og samhæfingu vinnuferla. Þetta á við um öll fyrirtæki, jafnt
í þjónustugeiranum sem og í hvers konar framleiðslu, flutningum
og við dreifingu. Rekstrarstjórnun leikur lykilhlutverk hjá þeim
sem ná samkeppnisforskoti með hagræðingu. Í auknum mæli ein-
blína fyrirtæki á framleiðslu og hagræðingu, aukin afköst og gæði,
lækkun kostnaðar og betri nýtingu hráefna og framleiðsluþátta.
Það er markmið Rekstrarstjórnunar að fyrirtækin séu fljót að laga
sig að nýjum aðstæðum, séu betur í stakk búin að mæta aukinni
samkeppni og hafi getu til að vaxa í takt við væntingar.
nýtni, Framleiðni, SkilVirkni og VirðiSauki
eru lYkilorð rekStrarStJórnunar
Fyrirtæki geta nálgast hagræðingu í Rekstrarstjórnun með ýmsum
hætti. Þau geta nýtt starfskrafta innanhúss eða ráðið til sín sérhæfða
ráðgjafa. Hægt er að nálgast viðfangsefnið í eftirfarandi þrepum:
Úttekt, skoðun og greining• á núverandi stöðu m.a. grein-
ingu og skráningu á öllum virðisaukandi ferlum fyrirtækis-
ins. Mælingu á afköstum, nýtni og framleiðni.
Setning markmiða og mælikvarða um árangur • við innleið-
ingu Rekstrarstjórnunar í fyrirtækinu. Atriði eins og nýting
og afköst starfsfólks, gæði vinnubragða, veltuhraði birgða,
fjárbinding, aldurssamsetning birgða, rýrnun, gallar, hraði í
afgreiðslu, endursendingar, kostnaður og nýting vörugeymslu
svo eitthvað sé nefnt.
Val viðfangsefna• á fundi með stjórnendum og gerðar til-
lögur að forgangsröðuðum aðgerðarlista. Í framhaldinu er
aðgerðum fylgt eftir í samstarfi við lykilstarfsmenn. Verkefni
þessi taka yfirleitt um sex mánuði og eru hugsuð til 3-5 ára.
Ákvörðun um viðfangsefni til framtíðar• hvað varðar
Rekstrarstjórnun (“operations management policy”) sem
kemur inn á framleiðsluferlið, vöruferlið, innkaupastýringu,
birgðastýringu, gæðastýringu, þjónustumarkmið, nýtingu
upplýsingatækni o.fl. Hér er um að ræða ítarlega greiningu
og „strategískar“ tillögur til allt að 5-10 ára.
mikilvægustu
viðskiptavinirnir
Nú þegar Íslendingar glíma við afleiðingar bankahruns og
efnahagslægðar, er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þrátt
fyrir allt liggja tækifærin víða – og oft nær okkur en við höldum.
Eftir að kreppan hófst um mitt ár 2008 hafa fjölmörg fyrirtæki á
Íslandi tekið rækilega til í rekstrinum. Þau hafa greint sína styrk-
leika og veikleika, skoðað ógnanir og tækifæri. Þau hafa gert
stefnumótandi áætlun um að komast út úr kreppunni á styrkum
fótum. Auk þess að lækka rekstrarkostnað og „skera burt fitu“
sem safnaðist fyrir í góðærinu, hafa þau forgangsraðað í rekstr-
inum, eins og við gerum sjálf þegar við stjórnum okkar tíma.
Forgangsröðun í rekstri þýðir að fyrirtæki flokka verk-
efni, viðskiptavini, birgja, vörur og þjónustu í mikilvægisröð.
Mikilvægustu viðskiptavinirnir eru þeir sem greiða skilvíslega,
eru tryggir og gefa stöðug viðskipti. Oftast reynast um 20%
viðskiptavina gefa um 80% af framlegðinni. Á sama hátt eru
mikilvægustu vörurnar þær sem gefa mesta framlegð. Algengt
er að um 20% af vörunum gefi um 80% af framlegðinni. Það
er þekkt staðreynd að þótt birgjum, vörum og viðskiptavinum
sé fækkað um allt að 30%, þá stendur fyrirtækið oft í sömu
sporum hvað varðar afkomu og hagnað.
Við þurfum ekki að þjóna öllum og sigra í öllum orrustum.
Oft er hægt að ná meiri árangri með því að gera minna. Einnig
felst forgangsröðunin í því að einbeita sér að kjarnastarfsemi og
úthýsa öðrum verkefnum. „do what you do best ... outsource
the rest“ er góð lýsing á þessari nálgun. „the secret to success
is sacrifice,“ sagði Peter drucker og hvatti stjórnendur til að
skerpa fókusinn með því að fórna ákveðnum viðskiptum, verk-
efnum og viðfangsefnum. Stundum þarf að fórna vöruflokkum
og viðskiptavinum. Eitt mikilvægasta verkefni stjórnenda fyr-
irtækja í vanda er einmitt það að minnka lausafjárþörf þess.
Þetta er gert með því að draga úr fjárbindingu í birgðum og
útistandandi kröfum. Þannig verður fyrirtækið viðbragðsfljótara
og óháðara fjármagni.
oftast reynast um 20%
viðskiptavina gefa um 80% af
framlegðinni. á sama hátt eru
mikilvægustu vörurnar þær
sem gefa mesta framlegð.