Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 82

Frjáls verslun - 01.02.2010, Page 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 K yN N IN G Íslenskur iðnaður kaffitár verður 20 ára næstkomandi haust og í tilefni af því var gef-inn út nýr uppskriftabæklingur á dögunum. Haldið var teiti af tilefninu í hlýlegum húsakynnum fyrirtækisins á Höfðatorgi. Aðalheiður Héðinsdóttir, for- stjóri Kaffitárs, segir að fyrirtækið muni nýta afmælisárið vel: „Allt þetta ár verðum við með ýmsar uppákomur.“ Ljúffengt afmæliskaffi „Við munum kynna til sögunnar Afmæli- skaffi, nýja tegund frá búgarði í Brasilíu sem ég heimsótti í nóvember. Brasilíukaffi er þekkt fyrir að vera þykkt í munni og rúnnað með ákveðnum kryddtónum og sætri ferskju. Þessi búgarður er hluti af „Án krókaleiða“, þar sem við kaupum beint af bændum. Við byrjuðum að stunda slíka verslun árið 2006 og nú er stærsti hlutinn sem við kaupum Án krókaleiða, eða 75%. Ég fer til kaffiræktunarlandanna til þess að hitta bændur og velja kaffið en það tryggir mest gagnsæi og gæði, auk þess sem það styður við kaffibændurna. Þetta ár munum við áfram leggja áherslu á Kaffitár án krókaleiða því það skilar árangri og öruggum tengslum en fyrst og fremst fáum við mjög gott hráefni með þessum hætti. Bændurnir fá svo á móti hærra verð en ella. Þetta er líka bæði skemmtilegt og gefandi fyrirkomulag og maður á líka að hafa gaman af viðskiptum.“ Umhverfisstefnan í forgangi „Við viljum einnig leggja áherslu á umhverfisstefnu okkar. Auk almennrar flokkunar er allur lífrænn úrgangur hjá okkur flokkaður og við höfum náð að lækka sorpkostnað um tæp 30%. Nú erum við að byrja að flokka enn meira á kaffihúsunum og stefnum að því að fá umhverfisvottunina Svaninn. Við yrðum þá fyrsta íslenska veit- ingahúsið sem fær hana enda erum við með alla framleiðsluna sjálf. Eldhús Kaffitárs framleiðir mest allt bakkelsið sem er á boð- stólum á kaffihúsunum okkar. Lykillinn að ferskleika kaffis okkar er m.a. fólginn í því að kaffið sem er pantað í dag er framleitt á morgun og keyrt út hinn daginn. Við stimplum alltaf framleiðslu- daginn aftan á kaffipakkana og getum sýnt fram á ferskleika kaffisins. Við höfum t.d. malað kaffi ekki lengur en mánuð í búð- unum. Kaffitár hefur að leiðarljósi að velja góðar baunir og gera gott kaffi sem skilar sér í bolla neytandans.“ „kaffitár hefur að leiðarljósi að velja góðar baunir og gera gott kaffi sem skilar sér í bolla neytandans.“ kaffitár án krókaleiða KaFFItár Hafsteinn Tómas Sverrisson með ilmandi kaffi. Stella Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs. Svokallaðar ,,Netkonur.’’
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.