Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 9

Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 9
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 9 Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is með tölulegum gögnum með hvaða hætti má ákvarða vægi þjónustuþátta. Kynntar eru tvær aðferðir við að leggja mat á mikil­ vægi þjónustuþátta. Niðurstöður benda til þess að mikilvægt sé að nota báðar aðferð­ irnar þegar kemur að því að leggja mat á vægi þjónustuþátta. Þannig megi fá betri vísbendingar um þau atriði sem skipta máli. Í þriðju greininni, Samkeppni, þjónusta og tryggð, er lagt mat á áhrif samkeppni á væntingar, skynjun og tryggð við þjón ustu ­ tilboð. Stuðst er við gögn úr könnunum meðal nemenda á öðru ári við Háskóla Íslands og er meginniðurstaðan sú að nem endur í samkeppnisdeildum virðast í grund vallaratriðum hafa svipaðar væntingar til þjónustu og nemendur annarra deilda. Umburðarlyndi þeirra virðist hins vegar vera minna, sem bendir til þess að aukin samkeppni hafi þau áhrif að kröfur aukast. Niðurstöður benda enn fremur til þess að nemendur í samkeppnisdeildum sýni sinni deild minni tryggð en nemendur annarra deilda. Fjórða greinin, Service quality and uni­ versities, fjallar um þjónustugæði og þjón ustustjórnun í háskólum. Fjallað er um væntingar nemenda, áhrif samkeppni á skynjun, væntingar og tryggð, hvort nemendur í einkaskólum upplifi þjónustu með öðrum hætti en nemendur í opin­ berum háskólum og hvort nemendur hafi mismunandi áherslur eftir því hvers eðlis nám þeirra er. Niðurstöður benda til þess að samkeppni hafi umtalsverð áhrif á þessa þætti. Þá er í lokin kynnt til sögunnar rann­ sóknarlíkan höfundar sem kallað er CQL­model en þar eru dregin fram tengsl menn ingar við þjónustugæði og tryggð viðskiptavina. Núna eru fimmtán doktorsnemar við nám í viðskiptafræðideild, átta konur og sjö karlar. Fjölmenni var í hátíðarsal Háskóla Íslands þegar Þórhallur varði doktorsritgerð sína. Andmælendur ritgerðar: Dr. Svafa Grönfeldt, framkvæmdastjóri hjá Alvogen Inc, og dr. Anders Söderholm, rektor Mid Sweden University, Þórhalldur Örn Guðlaugsson og Ingjaldur Hannibalsson, forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.