Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
Pappírinn
endanlega út
Markús Guðmundsson
verkfræðingur hjá Unimaze:
Unimaze hóf starfsemi árið 2006 og hefur einbeitt sér að lausnum fyrir rafræn viðskipti, sem hafa það að markmiði að sjálfvirknivæða ferla milli fyrirtækja. Á bak við fyrirtækið standa Markús Guðmundsson tölvuverkfræðingur og
Heiðar Jón Hannesson eðlisfræðingur og MBA.
Markús segir að ferlar í rafrænum viðskiptum hafi lítið breyst frá
því að netið náði almennri hylli um 1980. Í þeim tilvikum þar sem
ferlar hafi verið rafvæddir hafi það ekki verið gert enda í enda og
þar með hafi full hagræðing ekki náðst.
Almennt eru hin rafrænu skjöl skrifuð út á pappír hjá sendanda og
færð handvirkt inn í rafrænt bókhald hjá móttakanda. Jafnvel þótt
rafrænn pappír sé sendur milli aðila inniheldur hann ekki nægar
upplýsingar til að hægt sé að færa hann sjálfvirkt inn. Í dag eru til
staðlar og aðferðir til þess að gera þessi samskipti alveg rafræn.
Dýr handavinna
Markmiðið er að spara útgjöld og hagræða með betri nýtingu auð-
linda hjá fyrirtækjum. Mikil vinna fer í að koma reikningum úr raf-
rænu bókhaldi í umslög og í póst. Því fylgir kostnaður hjá bæði
sendanda og móttakanda. Einföld mannleg mistök í úrvinnslunni
geta verið dýrkeypt. Ein ásláttarvilla með einu núlli of mikið eða of
lítið kostar mikla vinnu.
„Okkar markmið hefur alltaf verið að þróa þjónustu þar sem ólík
bókhaldskerfi geta sent gögn sín á milli og unnið saman,“ segir
Markús. Í upphafi þessa árs, eftir meira en þriggja ára þróunar-
vinnu, settum við lausnirnar á markað. Markhópar okkar eru allir
lögaðilar sem skiptast á reikningum og öðrum viðskiptaskjölum.
Dæmi um þjónustur eru dreifingarmiðstöð Sendils, www.sendill.is,
sem er nokkurs konar rafrænt pósthús fyrir stór sem smá fyrirtæki,
og einyrkjavefur fyrir aðra sem ekki hafa rafrænt bókhald.
Núna er einnig unnið að samningum við framleiðendur og þjón-
ustu aðila viðskiptakerfa um að þeir styðji og þjónusti lausnir
Unimaze. Í sumar var gengið frá samningum við DK hugbúnað og
Maritech og eru aðrir samningar í burðarliðnum.
Meðal notenda Sendils eru Penninn, verslanir Kaupáss og opin-
berar stofnanir og sveitarfélög s.s. Landspítalinn og Reykja víkur-
borg. Erlendis hefur til dæmis norska Síldarsölusamlagið tekið kerfi
Unimaze í notkun, en það er einn stærsti uppboðsmarkaður fyrir
fisk í heiminum. Auk þess tengjast 70.000 fyrirtæki í Danmörku.
Frá sprota til vaxtar
Til þessa hefur fyrirtækið verið dæmigert sprotafyrirtæki. Þróunar-
vinna hefur verið kostuð af frumkvöðlunum hingað til, en nú er
þjónustan komin í rekstur og þörf er
á fjármagni frá utanaðkomandi aðilum til að takast á við fyrir-
séðan vöxt. Viðskiptalíkanið gerir ráð fyrir að þjónustan nái fótfestu
á Íslandi og í EES-löndum.
„Það hefur ef til vill verið erfiðast að vera í mörgum hlutverkum
samtímis,“ segir Markús og á þar við að frumkvöðlarnir hafa orðið
að skipta með sér öllum verkum sem til falla innan fyrirtækis á
meðan tekna var aflað utan fyrirtækis.
„Í kjölfar hrunsins héldu fyrirtæki almennt að sér höndum í fjár-
festingum sem tafði fyrir upptöku á markaðnum,“ segir Markús.
„Nú er sá tími að baki. Fyrirtæki horfa nú til hagræðingar í rekstri
og upptaka á rafrænum reikningum er þar mikilvægur þáttur, sem
fellur vel að tímasetningu á innkomu okkar á markaðinn.“
„Markmið okkar er að þróa þjónustu þar
sem ólík bókhaldskerfi geta sent gögn
sín á milli og unnið saman með skil virk-
um hætti.“
Hugmyndin er að gera rafræn viðskipti að fullu
rafræn. Allir hafa veitt því athygli að svokölluðum
rafrænum viðskiptum fylgir mikið pappírsflóð
og handvirkir ferlar. Markús Guðmundsson hjá
Unimaze segir að þessu megi og þurfi að breyta.