Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
TÖLUR FRÁ ÚKRAÍNU OG VÍÐAR
TEXTI OG LJÓSMYND: PÁLL STEFÁNSSON
Bílar
FRÁ FJÖRU TIL FJALLS
Í
Tinna í Tíbet kemst Tinni í hann krapp an
þegar hann rekst á hinn ógurlega snjó-
mann Himalæjafjallanna. Hann er víst
til, þótt enginn nema Tinni hafi rekist á
hann undanfarin árhundruð. Ógurlegi
snjómaðurinn, þekkt þjóðsagnapersóna,
heitir á máli heimamanna Yeti. Það er líka
nafnið á nýjum jepplingi sem tékkneski
bifreiðaframleiðandinn Škoda frumsýnir um
þessar mundir. Bíll sem er eins og klæð-
skerasaumaður fyrir íslenskar aðstæður.
Eyðslugrannur og með fjórhjóladrifi sem
hent ar vegakerfi okkar og veðurfari fullkom-
lega.
Skodinn er sérstakur í útliti; framúr stefnu -
legur, hábyggður. Maður situr mjög hátt
í góðum sætum. Mælaborðið er feik i lega
vel gert og vandað. Allt á réttum stað.
Það leynir sér ekki að Yetiinn er frá Volks-
wagen-samsteypunni en á næsta ári eru
tuttugu ár síðan Volkswagen keypti Škoda
af tékkneska ríkinu.
Volkswagen-vélin er tveggja lítra túrbó-dísil,
140 hestafla vél sem vinnur feikivel með
DSG-sjálfskiptingunni. Fjórhjóladrifið er frá
hinu sænska Halden, notað í flestar gerðir
Volkswagen-bifreiða og þykir eitt það besta
sem völ er á fyrir minni tegundir bifreiða.
Botnplata Yeti er nokkuð sérstök, að
framan er hún Golf/Tiguan, en að aftan
Volkswagen Passat sem á að gefa aukinn
stöðugleika og betri aksturseiginleika.
Fjöðrunin er nokkuð stíf, en að sama skapi
liggur hann eins og klessa á veginum.
Yeti er með háu og lágu drifi, bíll til
að fara á jökla. Fjöðrunin, veghæðin og
fjórhjóladrifið gera þetta að frábærum
ferða bíl á fjallvegum landsins. Skódi
*****, spólar grjóti, svo sannarlega.
Yeti er nafnið á nýjum jepplingi sem tékkneski bifreiðaframleiðandinn Skoda frumsýnir um þessar mundir.