Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
ATLI FREYR EINARSSON
framkvæmdastjóri DHL
Nafn: Atli Freyr Einarsson
Fæðingarstaður: Reykjavík, 17.
ágúst 1975
Foreldrar: Guðrún Jóhannsdóttir
og Einar Gylfi Jónsson
Maki: Anna Svandís Gísladóttir
Börn: Sigrún Ásta, 6 ára, og Gísli
Már, 3 ára
Menntun: Viðskiptafræðingur
Atli Freyr Einarsson.
„Næst á dagskrá er
fjölgun í fjölskyldunni
þar sem við eigum von á
okkar þriðja barni og ríkir
mikill spenningur
á heimilinu.“
Ég hóf störf sem bílstjóri hjá DHL í september 1997. Fyrirtækið hefur breyst talsvert á þeim þrettán árum sem liðin eru en kjarnagildin eru
þau sömu. Í upphafi árs 1999 fór ég í iðn-
rekstrarfræði og alþjóðamarkaðsfræði í
Tækniháskólanum sem síðan sameinaðist
Háskólanum í Reykjavík. Með námi vann
ég hjá DHL við innslátt flutningspappíra á
kvöldin og síðan í þjónustudeild í sumar- og
jólafríum. Að námi loknu starfaði ég sem
sölufulltrúi í söludeild og síðan sem sölu-
og markaðsstjóri í ein fimm ár þar til ég tók
við sem framkvæmdastjóri í ágústbyrjun.“
DHL hefur verið starfrækt á Íslandi síðan
1982 og var fyrst hraðflutningsfyrirtækja
til að hefja rekstur hér á landi. „Fyrir sjö
árum byrjuðum við að bjóða upp á flug- og
sjófrakt og höfum náð frábærum árangri
þar. Á síðasta ári bættum við enn við þjón -
ustuþætti og bjóðum nú hýsingu og dreif -
ingu. Nú einbeitum við okkur inn á við,
reynum að bæta enn frekar það sem við
gerum vel. Það er hátt þjónustustig sem
skilar því að viðskiptavinir velja DHL og
megin ástæðan fyrir því er starfsfólkið. Gott
starfs fólk gerir gæfumuninn.“
Atli Freyr kvæntist Önnu Svandísi Gísla-
dóttur hjúkrunarfræðingi árið 2006. „Anna
Svandís er Bolvíkingur og við reynum að
fara í Víkina nokkrum sinnum á ári. Það
er ómetanlegt að geta komist vestur í
afslappað og vinalegt umhverfi enda frá -
bært fólk sem býr í Bolungarvík. Þar eru
krakk arnir okkar í essinu sínu og fíla sig
alveg í botn enda upplifa þau meira frelsi
þar en í borginni. Frá Bolungarvík höfum við
farið í styttri ferðir yfir í Jökulfirðina og næst
er stefnan sett á að ganga Hornstrandir. Við
ferðumst mikið innanlands, sérstaklega á
sumrin. Síðastliðið sumar fórum við m.a. til
Vestmannaeyja þaðan sem föðurfjölskylda
mín er. Þar er yndislegt að vera og Eyja-
menn höfðingjar heim að sækja. Næst á
dagskrá er samt fjölgun í fjölskyldunni þar
sem við eigum von á okkar þriðja barni og
ríkir mikill spenningur á heimilinu.
Áhugamálin eru, auk útiveru og ferðalaga,
íþróttir. Ég er fæddur og uppalinn Vestur-
bæ ingur og lék körfuknattleik með KR
og sat síðan í stjórn deildarinnar. Fylgist
að sjálfsögðu einnig með knattspyrnuliði
stórveldisins. Ég er búinn að vera hálfgerður
byrjandi í golfi undanfarin ár, ætla að gera
skurk í því á næsta ári, þ.e. ef ég finn tvo
eða þrjá tíma sem ég get bætt við sólar-
hringinn. Ég á stóran og góðan vinahóp
sem kallast Dallas-klúbburinn. Hópurinn
var stofnaður fyrir 15 árum og telur 17
snillinga sem hittast reglulega við ýmis
tilefni. Í ágúst fórum við í árlega veiðiferð í
Veiðivötn, sem var virkilega skemmtileg að
vanda. Góðir og traustir vinir eru dýrmætir
og því eru það forréttindi að eiga eins gott
bakland og Dallas-klúbburinn er.“
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYND: GEIR ÓLAFSSON
Fólk