Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 65
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 65
Umtalsverður vöxtur og árangur hefur orðið hjá fjölmörgum af þeim fyrirtækjum sem Ný sköpunarmiðstöð Íslands
hýsir nú á sínum frumkvöðlasetrum. Um
þrjú hundruð manns vinna hjá þeim tæplega
hundrað fyrirtækjum sem nú eru á þeim átta
frum kvöðlasetrum sem NMÍ á hlut að.
Að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur,
framkvæmda stjóra Nýsköp unar miðstöðvar
Íslands og rekstr arstjóra frumkvöðlasetra,
hefur miðstöðin tólf ára farsæla reynslu af
rekstri frumkvöðlasetra: „Í kjölfar efna
hagskreppunnar skynjuðum við mikla þörf
á aðstoð sem þessari við framgang góðra
viðskiptahugmynda hjá frumkvöðlum
og litlum sprotafyrirtækjum. Upp úr því
voru stofnuð sjö ný setur. Hluti af þessari
velgengni var samstarf margra ólíkra aðila,
t.d. afar gott samstarf við Íslandsbanka við
opnun Kvosarinnar í Lækjargötu og við
Hafnarfjarðarbæ, Álftanes og Garðabæ,
sem eru samstarfsaðilar okkar varðandi
Kveikjuna í Strandgötu í Hafnarfirði. Eins
höfum við gert góðan samstarfssamning við
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar (Kadeco)
um aðkomu að rekstri frumkvöðlasetra á
Ásbrúarsvæðinu. Eitt af þessum setrum
er sérhæft fyrir heilbrigðistækni en það
er frumkvöðlasetrið Kím – Medical Park.
Það er fyrsta sérhæfða frumkvöðlasetrið
hér á landi og nú þegar eru þar fimmtán
fyrirtæki sem öll byggjast á rannsóknum
og þróun á heilsutæknitengdum hug
mynd um, s.s. þróun á heilaskanna,
þróun á svefnrannsóknartæki fyrir börn,
lækningamætti íslenskra jurta og nýjum
greiningaraðferðum á sviði krabba meins
lækninga.
Sprotar nútíðarinnar – stórfyrirtæki
framtíðarinnar
Við þurfum að hlúa vel að sprotum nú
tíðarinnar því á meðal þeirra leynast stór
fyrirtæki framtíðarinnar. Við klæðskera
saumum lausnir og aðstoð með hverju
fyrirtæki fyrir sig.
Nýsköpun er undirstaða hagvaxtar og
til að ná enn frekari árangri í nýsköpun
hér á landi er grundvallaratriði að fleiri
aðilar vinni saman að góðum viðskipta
hugmyndum.“
Klæðskerasaumaðar lausnir fyrir frumkvöðla og fyrirtæk
NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands og rekstrarstjóri frumkvöðlasetra NMÍ.
„Nýsköpun er undirstaða
hagvaxtar og til að ná enn
frekari árangri í nýsköpun hér
á landi er grundvallaratriði að
fleiri aðilar vinni saman að
góðum viðskiptahugmyndum.“
Japönsk sæbjúgu úr tilraunaeldisstöð Sæbýlis
ehf. sem hefur haft aðstöðu á Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Sæbýli ehf. hefur þróað SustainCycle™
aðferðafræðina við eldi á botnlægum
hryggleysingjum eins og stichopus japonicus, sem
er ein dýrasta sjávarafurð í heimi.
Ferskt sæbjúga.