Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 52

Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 S T J Ó R N U N Bandaríski hugsuðurinn og fræðimaðurinn dr. Robert E. Kelley er heimsþekktur fyrir skrif sín á sviði stjórn ­unarfræða. Árið 1988 birti hann tímamótagrein í Harvard Business Review er ber heitið In Praise of Followers. Sú grein olli straumhvörfum innan stjórn­ unar fræð anna á þeim tíma. Í fyrsta skipti í meira en hálfa öld höfðu fylgjendur (followers) virku hlutverki að gegna í velgengni skipulagsheilda, eða frá því að Mary Parker Follett fjallaði sérstaklega um þá í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar. Í umræddri tímamótagrein segir Kelley frá niðurstöðum rann­ sóknar sinnar er laut að atferli fylgjenda. Hann sá fljótt að sá hópur skiptist í tvo meginflokka, annars vegar virka fylgjendur, hins vegar óvirka fylgjendur. Hann fann tvær undirliggjandi hegðunartengdar víddir í rann­ sóknum sínum: Sýna fylgjendur sjálfstæða gagnrýna hugsun eða horfa þeir til leiðtogans og lúta hugsun hans? Eru fylgjendur virkir í því að vinna af krafti fyrir viðkomandi skipulagsheild eða eru þeir bæði neikvæðir og óvirkir í afstöðu sinni? Fimm flokkar fylgjenda Kelley setti fram ákveðið flokkunarlíkan sem hann byggði á þess ­ um tveimur víddum. Innan þessa flokkunarlíkans má finna fimm grundvallarfylgjendagerðir. Sauðirnir (Sheep). Þeir eru óvirkir og horfa til leiðtogans sem sér um að hugsa fyrir þá og hvetja til ákveðinna verka. Þá skortir allt frumkvæði og ábyrgðartilfinningu. Já-fólkið (Yes-people). Það er jákvætt fólk sem er ávallt sammála leiðtoganum og lítur til hans eftir leiðsögn, stefnu og framtíðarsýn. Ef leiðtoginn biður það að gera eitthvað sérstakt, þá hefur það kraftinn til að framkvæma viðkomandi verkefni. Að því loknu kemur já­fólkið til leiðtogans og spyr: „Hvað viltu að ég geri næst?“ Fúll á móti (Alienated). Þetta fólk hugsar sitt, en er ákaflega nei kvætt. Í hvert sinn sem leiðtoginn eða skipulagsheildin reyna að stuðla að framförum og einhverri jákvæðri þróun finnur það nýjungunum allt til foráttu. Fúll á móti er ekki lausnamiðaður, heldur fullur efasemda og kaldhæðni. Þeir sem haga seglum eftir vindi (Survivors/ Pragmatists). Þetta fólk athugar hvaðan vindurinn blæs hverju sinni. Tækifærissinnar er hugtak sem lýsir því vel. Samt lítur það á sig sem vörslumenn óbreytts ástands (status quo). Þegar breytingar ganga yfir gerir það allt sem það getur til þess að lifa af og bíða af sér breytingar, þ.e. eins og einhver sem fer í skjól þegar stormurinn skellur á og bíður af sér óveðrið. Þetta fólk er mjög raunsætt, nytsamt og skynsamt. Það stillir sig eftir aðstæðum hverju sinni. Gullfólkið/Eldsálirnar/Fyrirmyndarfylgjendur (Effective Follow ers/The Star Followers). Þetta fólk er hugsandi og sjálfstætt. Það er jákvætt og kraftmikið. Það samþykkir ekki ákvörðun leiðtogans nema það sé sjálft sammála henni, þ.e. að því finnist ákvörðunin vera skipulagsheildinni til góðs. Ef gullfólkið er samþykkt ákvörð un leiðtogans veitir það honum fullan stuðning. Ef það er hins vegar á öndverðum meiði kemur það með aðra tillögu, sem er þá uppbyggileg og hjálpar leiðtoganum og skipulagsheildinni í viðkomandi máli. Það er stundum sagt, að þetta fólk sé „leiðtogar í dulargervi“. Það er þá sagt af þeim sem sjá ofsjónum yfir því að fylgjendur geti verið svona sjálfstæðir í hugsun, og verið jafnframt jákvæðir í allri framgöngu. Þetta er fólkið sem leiðtogar kalla sína „hægri hönd“. Gullfólkið er því virkir fylgjendur, í jafnvægi og ábyrgðarfullt, og getur unnið starf sitt af prýði án leiðsagnar sterks leiðtoga. FJÖLGUM GULLFÓLKINU TEXTI: BJARNI ÞÓR BJARNASON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON Fylgjendur á vinnustöðum: Hvers vegna fylgja starfsmenn sumum leiðtogum en öðrum ekki? Hvers vegna vaða þeir eld og brenni stein nánast í blindni fyrir suma en aðra ekki? Hvað er að vera fylgismaður og hvernig hegða fylgjendur sér á vinnustað? Gullfólkið er fyrirmyndarfylgjendur. Það er hugs- andi og sjálfstætt. Það er jákvætt og kraft mikið. Það samþykkir ekki ákvörðun leið togans nema það sé sjálft sammála henni, þ.e. að því finnist ákvörðunin vera fyrirtækinu til góðs. Greinarhöfundur, Bjarni Þór Bjarnason, er prestur og M.Sc. í mannauðsstjórnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.