Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 10
10 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0
Fyrst þetta ...
KEPPTU Á SARDINÍU
Evrópukeppni ungra frumkvöðla:
Fimm piltar úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar fóru um mitt sumar í vikuferð til
Sardiníu og kepptu í Evrópukeppni ungra frumkvöðla. Piltarnir úr Garðabæ
mættu með fyrirtæki sitt, Chronica, sem þróar netlægt tímaskráningarkerfi
og kepptu við á fjórða tug fyrirtækja.
TEXTI: RÓSA KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTIR
imm piltar úr Fjölbrautaskóla
Garða bæjar fóru í júlí sl. í vikuferð
til ítölsku eyjarinnar Sardiníu í
Evrópukeppni alþjóðlegu sam tak -
anna Junior Achievement – Young Enterprice
sem á Íslandi nefnast Ungir frumkvöðlar.
Samtökin standa fyrir viðskiptatengdum
námskeiðum og verkefnum fyrir ungt fólk
og hafa það að markmiði að efla viðskipta -
vitund, siðferði í viðskiptum, fjármálalæsi og
að virkja krafta ungs fólks til virkrar þátttöku
í viðskiptum.
Fyrirtækjasmiðjan er alþjóðlegt verkefni
sem gengur út á að semja viðskiptaáætlun,
stofna, reka og loka fyrirtæki á aðeins
þrettán vikum. Ábyrgð á undirbúningi og
framkvæmd er alfarið í höndum þátttakenda
en þeir fá ráðgjöf og aðhald frá kennurum
sínum og utanaðkomandi ráðgjöfum sem
fylgja fyrirtækjunum eftir.
Átta framhaldsskólar hafa að jafnaði tekið
þátt í verkefninu undanfarin ár og þykir
Fyrir tækjasmiðjan gæða hið bóklega náms -
efni miklu lífi og efla getu þátttakenda til
ábyrgðar og ákvarðanatöku. Evrópuráðið
hefur útnefnt Fyrirtækjasmiðjuna „best
practice“ þegar kemur að viðskiptatengdu
námsefni.
Það var einmitt í Fyrirtækjasmiðjunni sem
piltarnir úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar tóku
þátt og unnu keppni hér á Íslandi um besta
fyrirtækið með fyrirtæki sínu Chronica sem
þróaði netlægt tímaskráningarkerfi.
Á fjórða tug fyrirtækja frá Evrópu mætti
til keppni á Sardiníu. Þar hittu þau fyrir
gallharða dómnefnd sem skoðaði í kjölinn
viðskiptaáætlanir og ársskýrslur. Hvert fyrir -
tæki þurfti að kynna sig á sviði fyrir 500
manns í sal, halda úti sýningarbás og mæta
í krefjandi viðtöl um rekstur sinn og reynslu.
Undirbúningur fyrir keppnina var mikill og
á við heilan vetur í námi að sögn Chronica-
pilta. Mikil þýðingavinna og bæklingagerð fór
fram, útbúin voru risaplaköt, sviðskynningin
æfð í þaula og íslenskri eldfjallaösku pakk-
að sem minjagrip fyrir gesti keppninnar.
Það var mikil upplifun fyrir Chronica-menn
að taka þátt í keppninni og stóðu þeir sig
með prýði þó svo að verðlaunum væri ekki
landað. Eins og gengur og gerist í raun veru -
legu viðskiptalífi skiptast á skin og skúrir.
Svo óheppilega vildi til að farangur
Chronica-pilta týndist og fengu þeir hann
ekki fyrr en á lokadegi keppninnar. Þeir urðu
því að bjarga sér varðandi fatnað og komast
af án ýmissa gagna sem þeir ætluðu að
nota í keppninni. Það var mikill lærdómur
að bregðast við slíkum aðstæðum en það
gerðu þeir fumlaust og vel.
Samtökin Ungir frumkvöðlar á Íslandi vilja
stækka hóp þátttakenda og bjóða fleiri
framhaldsskólum að vera með. Til þess þarf
einnig virka þátttöku fyrirtækja og stofnana
sem standa straum af rekstri samtakanna,
sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða, og
bjóða skólum námsefnið án endurgjalds.
Þannig eru þau rekin á alþjóðavísu.
Upplýsingar um Unga frumkvöðla og
Chronica má finna á síðunum
www.ungirfrumkvodlar.is
www.chronica.is
Chronica-menn úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar
ásamt kennara sínum, Tinnu Ösp Arnardóttur.
Frá vinstri: Arnór Kristinn Hlynsson, Gunnar
Helgi Ólafsson, Gunnlaugur Freyr Arnarson,
Matthías Davíðsson, Tryggvi Thorarensen og
Tinna Ösp.
Hvert fyrirtæki þurfti að kynna sig á sviði fyrir
500 manns í sal, halda úti sýningarbás og mæta í
krefjandi viðtöl um rekstur sinn og reynslu.