Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 29
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 29
Höfuðstöðvar CCP eru á Íslandi en fyrirtækið starfar víða og m.a. með
starfsemi í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kína. Hilmar Veigar Pétursson
er framkvæmdastjóri CCP.
Það var árið 2000 sem ráðist var í umfangsmikla fjáröflun með lok-
uðu útboði á hlutafé hjá CCP. Kaupþing annaðist það og í kassann
komu þrjár milljónir Bandaríkjadala. Þá var hægt að ráðast af krafti
í að koma EVE-Online á netið.
Hróður leiksins hefur verið að berast um heimsbyggðina síðustu
sjö árin. Milljónir manna eru áskrifendur að fjölþátttökuleikjum í heim-
inum og nýir leikir bætast við. Það er því eftir miklu að slægj ast enn fyrir
CCP og önnur íslensk fyrirtæki á þessum markaði.
Umsvifamest á markaðnum er erlent fyrirtæki sem heitir Blizzard og
heldur úti leiknum World Warcraft með yfir 10 milljónir áskrifenda.
Leikir eins og EVE-Online eru einnig heimur út af fyrir sig í þeim
skiln ingi að þar verður til heilt samfélag á netinu. Leikurinn er ein s
konar ímyndað hagkerfi úti í geimnum og það er á stærð við ís lenska
hagkerfið – þátttakendur eru nærri jafnmargir og íbúar á Íslandi.
Leikurinn gerist í framtíðinni úti í geimnum. Hver þátttakandi er
skipstjóri á geimskipi og getur keypt og selt vörur. Um er að ræða
ímyndað hagkerfi úti í geimnum og menn verða að þekkja helstu
hag fræðilögmálin til að geta spilað með árangri. Margir áskrifendur
eru einmitt viðskiptamenntað fólk.
CCP er skammstöfun fyrir „Crowd
Control Productions“ og vísar til þess að
fyrirtækið fæst við fjölþátttökuleiki. Þetta
er fyrirtæki sem malar gull. Það var með
um 6,8 milljarða í tekjur á síðasta ári og
yfir 800 milljónir í hagnað.
GOGOGIC
HEFUR ÞREFALDAST
FRÁ HRUNI
EVE-ONLINE
MALAR GULL
Miklar vonir eru bundnar við Gogogic. Félagið hefur
þre faldað umsvif sín frá hruni og draum ur inn er mögu
lega að rætast; að fyrirtækið fari að gefa vel af sér af
sölu leikja á netinu.
Tölvuleikjafyrirtækið
Gogogic:
Fyrir tveimur árum sagði Frjáls verslun frá sprota sem hlúð var að í heldur löku húsnæði við Brautarholt. Enginn annar vildi vera þar uppi á þriðju hæð í lyftu-lausu húsi eftir áralangt góðæri þar sem oft virtist
meira virði að berast á en ná árangri.
Þetta var tölvuleikjagerð sem hafði fengið hið undarlega nafn
Gogogic. „Talaðu við mig eftir tvö ár,“ sagði Jónas Björgvin
Antonsson framkvæmdastjóri þá. Fyrirtækið var rétt að hefja
raunverulegan rekstur og tekjur af tölvuleikjum engar enn.
Talaðu við mig eftir tvö ár!
Og nú eru liðin tvö ár og hvernig gengur? „Talaðu við mig
eftir tvö ár,“ segir Jónas aftur.
En gangurinn hefur verið þessi: Fyrirtækið er komið ofan af
loftinu í Brautarholti og inn í hús Kauphallarinnar við Lauga-
veg. Starfsmenn voru þá 12 og drógu mikið til björg í bú með
auglýsingagerð fyrir netsíður en fyrstu leikirnir voru komnir út
á netið en boðnir þar ókeypis til kynningar.
Jónas Björgvin Antonsson hjá tölvuleikjafyrirtækinu Gogogic.
Hann segir að CCP með EVE Online hafi rutt brautina fyrir
önnur hugbúnaðarfyrirtæki í netleikjum.
N E T L E I K I R